BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Fjallavinir
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260131T000000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270131T235900
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T084903Z
LAST-MODIFIED:20260109T203241Z
UID:9859-1769817600-1801439940@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 31.janúar 2026
DESCRIPTION:Heil og sæl kæru fjallavinir \nNýtt gönguár okkar Fjallavina hefst þann 31.janúar 2026\, og eins og alltaf  þá hefjum við gönguárið á styttri og léttari göngum meðan skammdegið liggur enn yfir okkur\, en með hækkandi sól göngum við bæði lengra og hærra! \nVið verðum með fullt af æfingagöngum til frekari styrkingar! \nRegluleg hreyfing og þá sérstaklega utandyra í okkar fallegu og einstöku náttúru er með betri heilsueflingu sem hægt er að hugsa sér því þar nærum við bæði líkama og sál. Við aukum þol og styrk í skemmtilegum og hvetjandi félagskap! Njótum þess að vera saman og takast á við allskonar verkefni og áskoranir sem náttúruöflin bjóða upp á. Það er lítil heilsuefling fólgin í því að sitja inni og bíða eftir góðu veðri\, nýtum hvert tækifæri sem gefst og förum út og klæðum okkur samkvæmt því sem þetta dásamlega land okkar hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttar gönguleiðir sem gaman er að upplifa. Verkefnið er stútfullt af spennandi göngum  þar sem við göngum heilsuna upp til að geta tekist á við lengri og meira krefjandi göngur. \nÞetta árið stefnum við á eftirfarandi göngur: \n31.janúar          laugardagur    Tröllafoss \n5.feb                    fimmtudagur  Mosfell \n7.feb                    laugardagur    Grímannsfell frá Bringum. \n12.feb                  fimmtudagur  Úlfarsfell \n14.feb                  laugardagur    Ölkelduhnjúkur \n19.feb                  fimmtudagur  Úlfarsfell \n21.feb                  laugardagur    Búrfell í Grímsnesi \n26.feb                  fimmtudagur  Helgafell Hafnarfirði \n7.mars                laugardagur    Þrasaborgir \n12.mars             fimmtudagur  Úlfarsfell \n14.mars             laugardagur    Álútur \n19.mars             fimmtudagur  Esja að Steini \n28.mars             laugardagur    Óvissuferð \n11.apríl               laugardagur    Brekkukambur \n18.apríl               laugardagur    Reyðarbarmur \n2.maí                   laugardagur    Ólafsskarðsvegur \n9.maí                   laugardagur    Mælifell – Baula til vara \n16.maí                 laugardagur    Vestmannaeyjar – helstu tindar. Dagsferð* \n30.maí                 laugardagur    Lómagnúpur* \n27.júní                laugardagur    Vörðuskeggi \n4.júlí                     laugardagur    Fimmvörðuháls* \n5.ágúst               miðvikudagur Herðubreið*  \nVegna dagsferða til Vestmannaeyja\, yfir Fimmvörðuháls og á Lómagnúp mun bætast við auka kostnaður vegna rútu eða ferju og vegna göngu á Herðubreið má reikna með ferða- og gistikostnaði fyrir norðan. \nAllir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum. \nAð auki fá allir páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir heppna þátttakendur. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nEf þú ætlar að vera með okkur og okkar góðu fjallavinum þá er um að gera að skrá sig sem fyrst!  \nVerð verkefnis er 79.000\,-kr. Staðfestingargjald er 39.000\,-kr. \nGanga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 10.janúar. \nSemja má um greiðslufyrirkomulag.  \nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \nVerið velkomin með okkur Fjallavinum 😊\nKveðja Þórður og Fríða \n  \n  \n                                            \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2026/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/105A4274-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260321
DTEND;VALUE=DATE:20260322
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T154642Z
LAST-MODIFIED:20251103T192256Z
UID:9900-1774051200-1774137599@fjallavinir.is
SUMMARY:Eyjafjallajökul\, laugardaginn þann 21.mars 2026
DESCRIPTION:Eyjafjallajökul\, laugardaginn þann 21.mars 2026  \nVið munum hittast við Grjóthálsinn kl. 05:00\, sameinast í bíla og aka þaðan eins fljótt og hægt er eftir Suðurlandsveginum\, þjóðvegi 1\, austur fyrir fjall að Seljavöllum undir Eyjafjöllum. \nFrá Grjóthálslinum munu þetta vera uþb 140km austur \nBúast má við spennandi göngu á Eyjafjallajökul\, eftir fallegri leið upp frá Seljavöllum en þarna er undurfalleg náttúra og býður upp á gott útsýni í allar áttir þegar vel viðrar. Gangan gæti orðið um 13-14  km löng og um 8-10 klst en fer eðlilega eftir aðstæðum. \nKlæðnaður: Mikilvægt að búa sig vel\,  í ullina innst klæða\, þá flíspeysu og svo vatns- og vindheldan klæðnað yst\,  og eins og vanalega á þessum árstíma hafa meðferðis húfu\, vettlinga og skíðagleraugu/sólgleraugu.  Þá er mikilvægt að vera með aukafatnað í bakpokanum\, sérstaklega eitthvað hlýtt  til að bregða yfir sig í pásum og matartímum\, auka húfu og vettlinga.  Kahtoola broddarnar eru nauðsynlegir með. \nÍ þessa ferð  þarf alvöru jöklabúnað\, s.s brodda\, ísöxi og belti með karabínu! \nNesti: Hafið meðferðis gott\, matarmikið og kolvetnaríkt nesti  t.d. 2 samlokur\, sviðasultu (þær geymast vel og fara ekki illa í bakpokanum)\, eða flatkökur með hangikjöti\,  nasl (t.d rúsínum\, hunangsristuðum hnetum\, súkkulað\, kex eða því um líku) og mikilvægt að hafa nóg að drekka eða a.m.k. 1\,5-2 ltr og eitthvað heitt á brúsa að auki. Orkudrykkir koma sér vel á langri göngu því við töpum miklum vökva og steinefnum með svita og hitafrástreymi\,  og þá er gott að grípa í þess háttar drykki ef þess er þörf. Þúgursykurtöflur geta komið sér vel sem neyðarinngrip en þær frásogast fljótt og vel. Fást í öllum apótekum.
URL:https://fjallavinir.is/event/eyjafjallajokul-laugardaginn-thann-21-mars-2026/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Hrutfallstindar_2022_18-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260423
DTEND;VALUE=DATE:20260424
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T134542Z
LAST-MODIFIED:20251104T134542Z
UID:10106-1776902400-1776988799@fjallavinir.is
SUMMARY:Snæfellsjökull 1446 m.  Sumardagurinn fyrsti 23.apríl  kl.05:00 – 19:00
DESCRIPTION:Snæfellsjökull 1446 m. \nSumardagurinn fyrsti 23.apríl  kl.05:00 – 19:00 \n  \nSnæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst\, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin\,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er. \n  \nHægt er að gista á Arnarstapa  og njóta góðra veitinga og lúxus gistingu 23.apríl. \nTilboð fyrir þáttakendur: \nBókanir fyrir gistingu skal senda á  booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum. \nHægt er að skoða nánar um gistinguna á  www.arnarstapicenter.is \n  \nSérstakur jöklabúnaður. \nÍ þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað\, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara. \n  \nHæð: 1446 m \nGönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum \nGöngutími: 6-8 klst \nGönguhækkun: 1200 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \n  \nBrottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Snæfellsjökull kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 skór \nVerð: 19.900 \nStaðfestingargjald: 9.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.apríl  2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2026 og mæta í allar þær göngur er eru í viðri viku. \n  \nKlæðnaður – alls engar bómullarflíkur ! \nInnst klæða.  Ullarnærbolur\, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir. \nMillilag.  Göngubuxur eða flísbuxur\, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa\, primaloft jakki eða dúnjakki. \nYsta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun\, bæði buxur og jakki. \n  \nAnnar mikilvægur klæðnaður. \nHúfa\, höfuðklútar\, auka vettlingar\, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir\, vatnsheldir vettlingar\, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum. \n  \n  \nGóður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður\, auk nestis og nauðsynjavara\, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega. \nVið mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað\, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum\, sviðasultusneið\, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu\, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf. \nÞá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur\, möndlur\, rúsínur\, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1\,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/snaefellsjokull-1446-m-sumardagurinn-fyrsti-23-april-kl-0500-1900/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2022/11/3G4A2409-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260425
DTEND;VALUE=DATE:20270426
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T155432Z
LAST-MODIFIED:20251109T154545Z
UID:9912-1777075200-1808697599@fjallavinir.is
SUMMARY:Hvannadalshnúkur 2110 m  25. apríl
DESCRIPTION:Hvannadalshnúkur 2110 m  25. apríl\n\n\nGanga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands! \nFerðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. \nVið munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur. Því er mikilvægt að vera kominn austur snemma á föstudeginum og geta hvílt sig\, sofið og undirbúið nesti tímanlega. Varðandi hvíld/svefn er rétt að benda á þarna munum við óhjákvæmilega heyra jarm í rollum nánast við tjalddyrnar/húsdyrnar\, svo rétt er að vera með eyrnartappa til að reyna að útloka þá truflun\, því þó við séum nokkuð vön umferðarnið borgarinnar þá er ekki víst að við venjumst þessum sveitatónleikum strax. Mikilvægt er að borða góðan morgunmat fyrir gönguna\, og mælum við með hafragraut\, banana og ávaxtasafa eða álíka. \nVið upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega skv fyrirmælum og klárir í bátana\, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Rvk. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er\, kaldstart er gott\, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluvert. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar án þess að þurfa að taka af sér bakpokann. \nVið göngum svo af stað upp frekar brattar brekkur Sandfellsheiði\, á einstigi og þar munum við fara fetið. Fyrsta stopp verður við læk í um 390 m hæð og þar rennur ótrúlega gott og ferskt fjallavatnið og þar skal fyllt á brúsa. Annað stopp verður í um 700 m og þar tökum við stutt nestisstopp. Þaðan er haldið upp á jökulröndina\,  þriðja stopp er því í um 1100 m hæð. Þá er kominn matartími\, og að honum loknum verður hópunum skipt upp í ca 6 manna hópa. Þar setja menn á sig göngubelti og eru svo festir í línu. Eftir það gengur hver hópur sem einn maður/kona og hagar sér sem slíkur! \nLínustjórar munu þá fara yfir reglur\, öryggismál og hegðun göngumanna í línum\, en mikilvægt er að göngumenn fari í einu og öllu eftir þessum fyrirmælum. Þá er gengið áfram upp eftir langri brekku með nokkuð jöfnum og dágóðum halla næstu ca 4 km\, (þetta er brekkan endalausa – hér reynir á þolinmæðina) þar til við náum ca 1800 m hæð og komin upp á öskjubrúnina. Þá er stutt nestisstopp og þar er gjarnan reist sérstakt jökla-wc. Ef aðstæður leyfa er hægt að losa sig úr línu\, annars ekki. Svo er haldið af stað yfir öskju Öræfajökuls og að rótum Hvannadalshnjúks\, ca 2 km ganga\,  og þá er síðasta stopp fyrir lokahnykkinn en þá erum við í ca 2000 m hæð. Þarna setjum við á okkur broddana\, mundum ísöxina og göngum upp síðasta legginn. Hér er komið að bröttustu brekkunni sem jafnframt er vel krefjandi og víða sprungin. Hér þarf að fara með gát og nota ísöxina í hverju skrefi. Þetta er ekki nema um 200 m hækkun og þá stutt eftir á toppinn. Við munum ekki dvelja lengi á toppnum en allt ræðst það eftir aðstæðum og veðri. Síðan er haldið niður aftur\, broddar teknir af við bækistöðvarnar og sama  leið haldin til baka\, með tilheyrandi stoppum. Úr línum losnar fólk svo við jökulröndina og þaðan er haldið áfram niður\, en mikilvægt er að halda hópinn alla leið. \nRétt er að benda á að þó gangan sjálf sé ekki sú erfiðasta\, því hægt er farið\, þá er hún afar löng og krefst verulegs úthalds. Leiðin niður getur tekið verulega á. Talið er að þetta sé lengsta dagsganga í Evrópu\, með mestri hækkun á einum degi\, athugið það! Þegar á toppinn er komið erum við bara hálfnuð og  sama vegalengd eftir niðurá við. Hún reynist mörgum erfiðari en uppleiðin því þá er þreyta farin að segja til sín\, lærin búin og hné orðin aum. Snjóbráð er oft orðið mikið og færðin því þung. Þetta má ekki vanmeta. Þess vegna er nauðsynlegt að vera kominn í verulega gott gönguform og mælum við með reglulegum gönguferðum á fjöll. Gott er t.d. að prófa sig með því að fara tvisvar sinnum upp Esjuna í röð\,  en þá er hæðinni tæplega náð og ca tæpum helming göngutímans og svo meta sjálfan sig út frá því. Ef fólk er óvisst um líkamlegt ástand sitt (hjarta- og blóðþrýsting) er mikilvægt að fá mat læknis og grænt ljós frá honum. \nÁ leið upp þegar komið er í 1100 m hæð metur yfirfararstjóri göngumenn og getu þeirra til aðhalda áfram. Oft kemur fyrir að fólki er snúið við vegna getu\, þreytu eða veikinda og þá er það gert þarna áður en fólk fer í línur. Því er þá fylgt niður af fararstjóra. Að öllu jöfnu þarf fólk sem er hraust ekki að hafa áhyggjur að þynnra lofti í þessum hæðum\, nema það sé mjög viðkvæmt fyrir því\, það er yfirleitt ekki farið að hafa veruleg áhrif fyrr en í yfir 3000m hæð. \nEftir göngu dagsins er kjörið að gleðjast enn frekar saman eftir afrek dagsins og borða saman góða máltíð enda flestir orðnir hungraðir í góðan mat. \nSvo mælum við með góðri hvíld eftir afrek dagsins! \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hvannadalshnúk kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nHæð: 2110 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 13-15 klst \nGönguhækkun: 2000 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBröttför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Sandfelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nErfiðleikastig: 4 skór \nVerð: 39.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 15.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15.mars 2026 \nkt: 531184-0849 \n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2026  í allar þær göngur er eru í viðri viku. \nHaldinn verður fundur með göngumönnum fyrir ferðina. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/hvannadalshnukur-2110-m-25-april/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2024/10/105A9921-3-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260502
DTEND;VALUE=DATE:20260503
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251203T182449Z
LAST-MODIFIED:20251203T192832Z
UID:10205-1777680000-1777766399@fjallavinir.is
SUMMARY:Hrútfjallstindar 1756 m\,
DESCRIPTION:Hrútfjallstindar 1756 m\,\nHér er um langa og krefjandi göngu að ræða en jafnframt eina af mögnuðustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðu-austurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn og Esjufjöll! \nLagt verður af stað í gönguna á bilinu 02:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna\, en hægt er að gista á Hofi og Svínafelli og auðvitað víðar. Á Svínafelli er hægt að gista í tjöldum en þar er góð aðstaða fyrir tjöld\, tjaldvagna eða hvers konar aftaníhýbýli. Þar er einnig góð eldunaraðstaða\, stór matsalur\, kæliskápar\, sturtur og wc. \nGönguleiðin. Leiðin er nokkuð brött og eins er nokkuð um lækkanir á leiðinni og þess vegna telst hún erfiðari en ganga á Hvannadalshnúk. Við munum hefja gönguna við Hafrafell og ganga upp bratta brekkuna og inn að Sveltisskarði. Efrimenn og Fremrimenn blasa við okkur ásamt stórkostlegu útsýni yfir einstaka náttúru. Hér er um að ræða eina af skemmtilegustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn\, Esjufjöll og víðar.  Hrútfjallstindar eru fjórir; Hátindur 1875 m\, Vesturtindur\, Suðurtindur og Miðtindur og munum við stefna á Hátind. Reikna með 24-25 km og 14/15 tíma göngu og að auki uppsafnaðri hækkun upp á 2200 m. \n  \nHæð: 1875 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 14-15 klst \nGönguhækkun: 2100 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBrottför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Hafrafelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nErfiðleikastig: 5 skór \nVerð: 39.900\,-kr \nStaðfestingargjald: 10.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.apríl 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2026  í allar þær göngur er eru í viðri viku.
URL:https://fjallavinir.is/event/10205/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2024/10/3G4A2911-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T132930Z
LAST-MODIFIED:20260408T115115Z
UID:10102-1779987600-1779987600@fjallavinir.is
SUMMARY:Leggjabrjótur – Kvöldganga  28.maí 2026 
DESCRIPTION:Leggjabrjótur – Kvöldganga  28.maí 2026 \n\n\n  \nkvöldganga (Fimmtudagur ) – hressing í lok göngu! \nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490\nGönguvegalengd: 16 km  – 18 km\nGöngutími: 6/7 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 2 \nVerð: 15.900\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 6.500\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/leggjabrjotur-kvoldganga-28-mai-2026-2/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9650-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260530
DTEND;VALUE=DATE:20260531
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251107T092735Z
LAST-MODIFIED:20251222T090900Z
UID:9923-1780099200-1780185599@fjallavinir.is
SUMMARY:Lómagnúpur 30.maí 2026 kl.06:00 – 22:00
DESCRIPTION:Lómagnúpur 30.maí 2026 kl.06:00 – 22:00\nEinstaklega skemmtileg ganga enda Lómagnúpur með tignarlegri fjöllum landsins og gangan kemur verulega á óvart. Gönguleiðin er í heildina ekki mjög erfið\, en hún er alllöng og reynir vel á úthaldið\, rúmlega 19 km og það má alveg reikna með rúmum 8 klst eða eftir aðstæðum eins og gefur að skilja. Byrjunarhæðin er í um 80 m og hæsti toppur er 794 m á miðju fjallinu. Uppsöfnuð hækkun fer yfir 1000 m. Útsýnið er stórkostlegt og sannarlega mögnuð upplifun ofan af fjallinu og þá ekki síst af syðsta hluta þess. \n30.maí 2026 Lómagnúpur \nHæð: 794 \nGönguvegalengd: 19 km \nGöngutími: 8 klst \nGönguhækkun: 1000 m \nBrottför: Mæting kl. 09:00 við Lómagnúp\, póstur kemur þegar nær dregur að göngu. \nVið viljum benda á\, og í raun mæla með að fólk gisti t.d á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur eða í næsta nágrenni svo stuttur akstur sé að upphafsstað göngu. Frá Kirkjubæjarklaustri er aðeins tæplega 1 klst akstur að Lómagnúpi. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 19.900\,-kr \nStaðfestingargjald: 9.900\,- \nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/lomagnupur-30-mai-2026-kl-0600-2200/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/d-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260604T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260604T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T141041Z
LAST-MODIFIED:20251107T111345Z
UID:10115-1780588800-1780592400@fjallavinir.is
SUMMARY:Síldarmannagötur – Kvöldganga 4. júní
DESCRIPTION:Síldarmannagötur – Kvöldganga 4. júní\njúní 4 kl.17:00\n\n\n\nKvöldganga (Fimmtudagur ) – hressing í lok göngu! \nVið munum aka inn í Botnsdal og hefja gönguna þaðan. Leiðin er auðveld en hækkun er strax í byrjun göngunnar. Á leiðinni þarf að stika yfir nokkrar sprænur og læki sem mun alls ekki verða farartálmi en mikilvægt að vatnsverja skóna sína vel!  Eins er nokkurt mýrlendi þarna á stöku stað! Þarna er afar fallegt útsýni yfir Hvalfjörðinn sem við höfum reyndar séð yfir frá ýmsum öðrum sjónarhornum en einnig gríðarlega fallegt að koma niður í Skorradalinn! \nVið munum svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490 m\nGönguvegalengd: 14 km\nGöngutími: 6 klst\nGönguhækkun:  450 m\nBrottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 2 \nVerð: 15.900\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 6.900\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/sildarmannagotur-kvoldganga-4-juni/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A0768-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260613
DTEND;VALUE=DATE:20260614
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251113T112733Z
LAST-MODIFIED:20260406T164231Z
UID:10067-1781308800-1781395199@fjallavinir.is
SUMMARY:Kjölur frá Fossá...nýtt og spennandi
DESCRIPTION:  \nKjölur – Laugardagur  13.júní 2026 \n\n\n  \nGangan mun hefjast við Fossá. Reikna má með um 20 km langri göngu sem gæti tekið um 8 klst. Þetta er löng ganga en ekki mjög krefjandi. Þó nokkuð samfelld 8 km hækkun úr 50 m og upp í rúmlega 700 m hæð en eftir það tekur við flatneskja næstu kílómetrana og síðan lækkun í átt til Þingvalla. Útsýnið ofan af Kili kemur á óvart og er hreint út sagt magnað\, en þaðan er einstaklega víðsýnt. Það  lagt verður af stað klukkan 08:00 frá Helgafelli í Mosfellsbæ.  Á leiðinni er vað\, svo takið með vaðskó! \nHressing í lok göngu! \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 750\nGönguvegalengd: 20 km\nGöngutími: 7-8 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 08:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 15.900\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 6.500\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/kjolur-fra-fossa-nytt-og-spennandi/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A2166-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260626
DTEND;VALUE=DATE:20260627
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T170415Z
LAST-MODIFIED:20251104T170628Z
UID:10121-1782432000-1782518399@fjallavinir.is
SUMMARY:Kattartjarnaleið 25.06 Kvöldganga
DESCRIPTION:Kattartjarnaleið 25.06 Kvöldganga\n\n\n\n\n\nÞetta er létt ganga um fáfarið svæði og hentar flestu göngufólki sem vill njóta útiveru í fallegri náttúru og fá góða hreyfingu í góðum félagsskap á björtu sumarkvöldi. Gönguhækkun mun verða róleg inn í ótrúlega falleg gil og gljúfur\, stöldrum við við Kattartjarnir og höldum síðan áfram inn að heitu böðuðum í Reykjadalnum svo þeir sem vilja taka með sundföt og létt handklæði. Eins er mikilvægt að hafa meðferðis vaðskó.\n\n\n\nAllir göngumenn munu fá Fjallavina höfuðklút og að göngu lokinni munum við svo fagna og bjóða upp á  léttan drykk \nHæð: 395 m\nGönguvegalengd: 16 km\nGöngutími: 6 klst\nGönguhækkun: 280 m\nBrottför: Kl 17:00 frá Grjóthálsi með rútu\nRúta: Innifalið í verði\nBöð: Í Reykjadal geta þeir sem vilja skellt sér í heitu böðin\, svo sundföt og handklæði með í för \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nErfiðleikastig: 1\nVerð: 15.900\,- kr\nStaðfestingargjald: 5.900\,- kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.júní 2026 \n531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér
URL:https://fjallavinir.is/event/kattartjarnaleid-25-06-kvoldganga/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/11/540184983_10234810265815810_5114123110340510542_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260704
DTEND;VALUE=DATE:20260705
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251107T092005Z
LAST-MODIFIED:20260408T120058Z
UID:9933-1783123200-1783209599@fjallavinir.is
SUMMARY:Fimmvörðuháls 4. júlí 2026 kl.06:00 – 22:00
DESCRIPTION:Fimmvörðuháls 4. júlí 2026 kl.06:00 – 22:00\n\n\n			\n		\n	\n		\nLeiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum\, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls\, yfir í Goðaland til Þórsmerkur. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu og mögnuðustu gönguleið á Íslandi en e.t.v. þá viðsjárverðustu sakir snöggra breytinga sem geta orðið á veðri á hvaða árstíma sem er. Það getur verið blítt og stillt veður á láglendi en þegar komið er upp á háhálsinn getur skollið á svarta þoka svo að ekki sér handa skil. \n\n\n\nGönguleiðin er ægifagur og munum við í fyrsta hluta göngunnar ganga með fram Skógá en fjöldinn allur af stórkostlegum fossum mun blasa við okkur á þeirri leið og eðlilega stöldrum við við þá. Stefnan verður þá tekin á Baldvinsskála en eftir það tekur við lækkun og hækkun á víxl þar til við komum að Magna og Móða. Eftir það liggur leiðin niður á við um stórkostlega náttúru sem orð fá varla lýst og sjón sannarlega sögu ríkari. \nGangan hefst í um 25 m hæð með snarpri hækkun í tröppum í upphafi göngu við Skógarfoss en síðan er þægileg og aflíðandi stöðug hækkun næstu 15 km upp í rétt rúma 1000 m. Eftir það tekur við lækkun og hækkun á víxl\, en búast má við uppsafnaðri hækkun um 1400 m. Þetta er löng og krefjandi ganga sem kallar á gott gönguþol. \nRúta mun aka okkur að Skógum og sækja okkur inn að Strákagili eftir göngu. \nUpplýsingar um útbúnað og nesti verður sent þátttakendum \nHæð: 1040 m\nGönguvegalengd: 25 km\nGöngutími: 9-10 klst\nBröttför: Frá Grjóthálsi \nErfiðleikastig: 3\nVerð: 27.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 7.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. Júní 2026 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/fimmvorduhals-4-juli-2026-kl-0600-2200/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Basar_2022_fossida-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260710T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260714T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T194457Z
LAST-MODIFIED:20251104T084101Z
UID:9992-1783670400-1784048400@fjallavinir.is
SUMMARY:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!
DESCRIPTION:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!\n10. júlí  – 14. júlí \n\n\n  \nHér er á ferðinni einstaklega spennandi ganga með miklu innihaldi. Rúta mun aka okkur inn í Landmannalaugar og þar verður gengið um þetta fallega svæði\, á Bláhnúk og að Brennisteinsöldu eftir aðstæðum. Gist verður í Laugum. \nNæsta dag hefst svo hin eiginlega Laugavegsganga\, ein allra fallegasta gönguleið í landsins Við munum ganga í góðum takti frá Laugum að Álftavatni\, nokkuð löng dagleið en vel gerleg fyrir fólk í góðu gönguformi. Gist við Álftavatn. \nVöknum í rólegheitum og síðan gegnið af stað í Emstur. Góð dagleið.  Hugsanlega gengið á Hvanngilshnausa á leið okkar um Hvanngil\, en það ræðst að aðstæðum. Gist í Emstrum. \nFrá Emstrum verður síðan gengið inn í Bása. Nokkuð löng dagleið en frekar létt. Vaða þarf Þröngá áður en komið er inn í Þórsmörk. Síðan krossum við Krossá og komum okkur fyrir í skála í Básum\, grillum og gerum okkur glatt kvöld. \nÁ síðasta degi munum við haga seglum eftir vindi. Taka létta göngu í Básum og/eða ganga inn í Stakkholtsgjá og stoppa síðan við Merkurker þar sem við munum upplifa þetta skemmtilega svæði og vaða í gegnum hellinn.   Síðan haldið heim. \nListi vegna útbúnaðar og nánari upplýsinga verður sendur þátttakendum\, ásamt tillögu að matseðli þegar nær dregur \n  \nHeildargönguvegalengd: 60-70 km \nGöngutími: Misjafn eftir dögum\, 6-8 klst \nGönguhækkun og lækkun: Misjöfn eftir dögum\,  5-600 m mest \nBrottför:  Með rútu frá Grjóthálsi \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 139.000\,00-kr \nStaðfestingargjald: 43.000\,-kr – Skal greitt viku eftir bókun. \nFerð fullgreidd fyrir: 5.maí 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér
URL:https://fjallavinir.is/event/laugavegurinn-med-meiru-5-daga-ferd-med-rutu-og-trussi-10/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/11/105A4211-Copy-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260711
DTEND;VALUE=DATE:20270324
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T161129Z
LAST-MODIFIED:20251107T094508Z
UID:10022-1783728000-1805846399@fjallavinir.is
SUMMARY:Kerlingafjöll 11.júlí
DESCRIPTION:Kerlingafjöll 11.júlí\n\n\nÞetta er óneitanlega ein af fallegustu gönguleiðum landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVið hefjum gönguna í um 1000 m hæð og stefnum upp á Fannborgu. Þetta er auðveld leið og á allra færi og má reikna með að taki 1-1\,5 klst. Þaðan höldum við áfram í lækkun og hækkun á víxl upp á Snækoll í 1480 m og svo áfram upp á Snót en sá spotti frá Fannborgu tekur aðra 1\,5 klst. Hveradalir verða síðan skoðaðir á leið okkar til baka þegar komið er aftur í rútuna. \nEftir göngu er ætlunin að skella sér í Hálendisböðin og er það innifalið í verðinu.. Brottför frá Kerlingafjöllum er áætlað kl 19;00 \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1480 m\nGönguvegalengd: 7 km\nGöngutími: 5 klst\nGönguhækkun:  frá 1050 m upp í tæplega 1500 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 34.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. júní 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/kerlingafjoll-11-juli/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/11/105A3823-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260716T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260720T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251102T085600Z
LAST-MODIFIED:20251106T105429Z
UID:9958-1784188800-1784566800@fjallavinir.is
SUMMARY:Norðurfjörður á Ströndum
DESCRIPTION:Norðurfjörður á Ströndum\n\n16. júlí 2026 – 20. júlí 2026\n\n\nHér er um  ævintýraland að ræða fyrir göngufólk sem vill ganga á nýjar slóðir. Það sem er innifalið í verðinu sem er 101.900\,- krónur er; fjögurra nátta gisting á Bergistanga og kvöldmatur á föstudegi\, laugardegi og sunnudeginum. Matseðillinn birtist í júlí\, en reikna má með súpu\, fiskibollum og lambi á grillið. Einnig er siglingin frá Norðurfirði yfir í Reykjarfjörð innifalin. Fólk sér að öðru leiti um allan annan mat sjálft\, bæði morgunmat og allt nesti. Ferðalangar eru á eigin bilum. Við munum einnig skoða mjög áhugaverða og einstaka staði\, svo sem Kistuvog og Grástein og reglulega munum við láta líða úr okkur í Krossneslaug.\nEftir aðstæðum munum við bregða á leik utandyra\, svo sem með jóga og öndunaræfingum og öðru dekri líkt og meðfylgjandi myndir sýna.\n\nFyrirhugað ferðaplan.\n\n16.júlí  fimmtudagur. Komið í Bergistanga þar sem gist verður. Gengið á Reykjaneshyrnu. Reikna má með um 4 km og 1\,5  klst göngu. \n17.júlí föstudagur. Siglt inn í Reykjarfjörð og gengið á Geirólfsnúp sem er á milli Reykjarfjarðar oag Skjaldbjarnarvíkur. Reikna má með uþb 9\,5 km göngu og 5 klst. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði. \n18.júlí laugardagur. Gengið að einum fallegasta fossi Vestfjarða\, Rjúkanda  sem er inn af Ófeigsfirði. Reikna má með um 6\,5 km göngu og tæplega 3 klst. \n19.júlí sunnudagur.Gengið á Glissu 741 m. Um 12-13 km ganga. \n20.júlí mánudagur. Farið frá Norðurfirði. Síðan er eftirfarandi hugsanlegur möguleiki\, en fer alfarið eftir aðstæðum því okkur þykir mjög spennandi að taka stefnuna út í Grímsey í Steingrímsfirði. Það er aðlgjörlega háð veðri og sjólagi. Rölt verður um eyjuna og svo hugsanlega sjósund og að lokum heitir pottar á Drangsnesi.  Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðina út í eyju\, verði hún farin. \nAthugið\, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.\n\nVerð: 101.900\,-kr Staðfestingargjald: 37.000\,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696\nSjá skilmála hér
URL:https://fjallavinir.is/event/nordurfjordur-a-strondum-2/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/105A4344-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260726
DTEND;VALUE=DATE:20260727
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T135327Z
LAST-MODIFIED:20251107T094421Z
UID:10111-1785024000-1785110399@fjallavinir.is
SUMMARY:Kerlingafjöll 26.júlí  sunnudagur
DESCRIPTION:Kerlingafjöll 26.júlí\n\n\nÞetta er óneitanlega ein af fallegustu gönguleiðum landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVið hefjum gönguna í um 1000 m hæð og stefnum upp á Fannborgu. Þetta er auðveld leið og á allra færi og má reikna með að taki 1-1\,5 klst. Þaðan höldum við áfram í lækkun og hækkun á víxl upp á Snækoll í 1480 m og svo áfram upp á Snót en sá spotti frá Fannborgu tekur aðra 1\,5 klst. Hveradalir verða síðan skoðaðir á leið okkar til baka þegar komið er aftur í rútuna. \nEftir göngu er ætlunin að skella sér í Hálendisböðin og er það innifalið í verðinu.. Brottför frá Kerlingafjöllum er áætlað kl 19;00 \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1480 m\nGönguvegalengd: 7 km\nGöngutími: 5 klst\nGönguhækkun:  frá 1050 m upp í tæplega 1500 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 34.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. júní 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/kerlingafjoll-26-juli-sunnudagur-2/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/11/105A3823-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260805
DTEND;VALUE=DATE:20260806
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251107T091250Z
LAST-MODIFIED:20251107T091353Z
UID:10136-1785888000-1785974399@fjallavinir.is
SUMMARY:Herðubreið – drottningin sjálf!   5. ágúst
DESCRIPTION:Herðubreið  5.ágúst \n\n\n\n\nHerðubreið – drottningin sjálf!   \nHerðubreið er 1682 m hátt móbergsfjall í Ódáðahrauni\, norðan Vatnajökuls og innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er gjarnan nefnd “Drottning íslenskra fjalla” þar sem hún þykir einstaklega formfalleg. Að auki var Herðubreið valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002. Lengi vel var hún talin ókleif\, en árið 1908 var fyrst gengið á hana. \nUppgöngutími er áætlaður um 4\,5 klst með góðum stoppum\, en gangan sjálf fram og til baka er aðeins rúmir 6 km frá fjallsrótum að toppi. Hækkun er snörp\, úr tæpum 700 m upp í tæpa 1700 m. Að göngu lokinni munum við svo fagna og skála í léttum drykk fyrir göngu dagsins. \nAðeins er jeppafært inn að upphafsstað göngunnar!  \nHæð: 1682\nGönguvegalengd: 6\,2 km\nGöngutími: 6-7 klst\nGönguhækkun: 1016 m\nBrottför:  Fararstjórar Fjallavina fara úr bænum á föstudagsmorgni og munum við keyra Mývatnsöræfin inn að Herðubreiðarlindum þar sem fararstjórar munu gista. Þar er hægt að panta í skála. \nVið munum hittast á tjaldsvæðinu við skálann klukka 9:00 og hefja gönguna stuttu síðar. Það gæti þó breyst\, en nánari póstur mun koma þegar nær dregur. \n5.ágúst (6.ágúst til vara) \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 21.000\,00\,-kr\nStaðfestingargjald: 9.000\,- kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.júlí 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má finna  hér
URL:https://fjallavinir.is/event/10136/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Herdubreid_2022_F-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260808T060000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260808T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251103T135549Z
LAST-MODIFIED:20251104T084817Z
UID:10078-1786168800-1786208400@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  8. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur  Skalli LaugarGrænihryggur  Skalli Laugar\nGrænihryggur\, Skalli\, Laugar  8. ágúst\n\n\n\n\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-8-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/11/3F5A6707-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260815T060000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260815T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251103T190200Z
LAST-MODIFIED:20251104T085043Z
UID:10086-1786773600-1786813200@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  15. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur  Skalli LaugarGrænihryggur  Skalli Laugar\nGrænihryggur\, Skalli\, Laugar  15. ágúst\n\n\n\n\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-15-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A7574-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T060000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T170000
DTSTAMP:20260414T072436
CREATED:20251104T085755Z
LAST-MODIFIED:20251104T085755Z
UID:10092-1787983200-1788022800@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  29. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur  Skalli LaugarGrænihryggur  Skalli Laugar\nGrænihryggur\, Skalli\, Laugar  29. ágúst\n\n\n\n\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2026 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-29-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-2-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR