BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.17.2//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240606T170000
DTEND;TZID=UTC:20240606T233000
DTSTAMP:20240815T120350Z
CREATED:20231106T125617Z
LAST-MODIFIED:20240815T120350Z
UID:7777-1717693200-1717716600@fjallavinir.is
SUMMARY:Leggjabrjótur – Kvöldganga   6. júní  kl.17:00 - 00:00
DESCRIPTION:4Leggjabrjótur – Kvöldganga\njúní 6 kl.17:00 – 23:00 \n  \nkvöldganga (Fimmtudagur ) – hressing í lok göngu!\nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490\nGönguvegalengd: 16 km  – 18 km\nGöngutími: 6/7 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 2  (hér viljum við tákn t.d. skó ) \nVerð: 14.500\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 5.500\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 5.maí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/leggjabrjotur-kvoldganga-6/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A0768-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240530T170000
DTEND;TZID=UTC:20240530T170000
DTSTAMP:20240427T221031Z
CREATED:20231106T120302Z
LAST-MODIFIED:20240427T221031Z
UID:7774-1717088400-1717088400@fjallavinir.is
SUMMARY:Leggjabrjótur – Kvöldganga 30. maí kl.17:00 - 00:00
DESCRIPTION:Leggjabrjótur – Kvöldganga \n\n maí kl.17:00– 23:00\n\n  \nkvöldganga (Fimmtudagur ) – hressing í lok göngu! \nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490\nGönguvegalengd: 16 km  – 18 km\nGöngutími: 6/7 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 2 \nVerð: 14.500\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 5.500\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n           
URL:https://fjallavinir.is/event/leggjabrjotur-kvoldganga-5/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A0768-2-1-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240427
DTEND;VALUE=DATE:20240428
DTSTAMP:20231206T132715Z
CREATED:20231206T132715Z
LAST-MODIFIED:20231206T132715Z
UID:8570-1714176000-1714262399@fjallavinir.is
SUMMARY:Sveinstindur  2044 m
DESCRIPTION:Sveinstindur  2044 m\n\n\n apríl 2024\n\n\n  \nHér skartar náttúran sínu allra fegursta enda stórkostlegt og stórbrotið landslag. Gönguleiðin er algjörlega einstök og gefur óviðjafnanlegt útsýni um víðáttumikið landssvæði enda næst hæsti tindur landsins. Ganga á Sveinstind er bæði krefjandi og löng og því aðeins fyrir fólk í góðu gönguformi. Gengið verður frá Kvískerjum. \n  \nLagt verður af stað í gönguna á bilinu 02:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna. \nGönguleiðin Frá Kvískerjum \nHæð: 2044 m \nGönguvegalengd 24 km \nGöngutími:  16-18 klst \nGönguhækkun: 2011 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBrottför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Kvískerjum \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Sveinstind  kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nErfiðleikastig: 5 skór \nVerð:  39.900\,- \nStaðfestingargjald: 20.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.apríl 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 1.febrúar og fram til 21.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars.
URL:https://fjallavinir.is/event/sveinstindur-2044-m/
CATEGORIES:Fjöllin okkar,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/bbbbbb-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240420
DTEND;VALUE=DATE:20240421
DTSTAMP:20231108T132446Z
CREATED:20231106T140621Z
LAST-MODIFIED:20231108T132446Z
UID:7769-1713571200-1713657599@fjallavinir.is
SUMMARY:Hvannadalshnúkur 2110 m  20. apríl
DESCRIPTION: Hvannadalshnúkur\nHvannadalshnúkur 2110 m\n20. apríl  \nGanga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands! \nFerðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. \nVið munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur. Því er mikilvægt að vera kominn austur snemma á föstudeginum og geta hvílt sig\, sofið og undirbúið nesti tímanlega. Varðandi hvíld/svefn er rétt að benda á þarna munum við óhjákvæmilega heyra jarm í rollum nánast við tjalddyrnar/húsdyrnar\, svo rétt er að vera með eyrnartappa til að reyna að útloka þá truflun\, því þó við séum nokkuð vön umferðarnið borgarinnar þá er ekki víst að við venjumst þessum sveitatónleikum strax. Mikilvægt er að borða góðan morgunmat fyrir gönguna\, og mælum við með hafragraut\, banana og ávaxtasafa eða álíka. \nVið upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega skv fyrirmælum og klárir í bátana\, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Rvk. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er\, kaldstart er gott\, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluvert. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar án þess að þurfa að taka af sér bakpokann. \nVið göngum svo af stað upp frekar brattar brekkur Sandfellsheiði\, á einstigi og þar munum við fara fetið. Fyrsta stopp verður við læk í um 390 m hæð og þar rennur ótrúlega gott og ferskt fjallavatnið og þar skal fyllt á brúsa. Annað stopp verður í um 700 m og þar tökum við stutt nestisstopp. Þaðan er haldið upp á jökulröndina\,  þriðja stopp er því í um 1100 m hæð. Þá er kominn matartími\, og að honum loknum verður hópunum skipt upp í ca 6 manna hópa. Þar setja menn á sig göngubelti og eru svo festir í línu. Eftir það gengur hver hópur sem einn maður/kona og hagar sér sem slíkur! \nLínustjórar munu þá fara yfir reglur\, öryggismál og hegðun göngumanna í línum\, en mikilvægt er að göngumenn fari í einu og öllu eftir þessum fyrirmælum. Þá er gengið áfram upp eftir langri brekku með nokkuð jöfnum og dágóðum halla næstu ca 4 km\, (þetta er brekkan endalausa – hér reynir á þolinmæðina) þar til við náum ca 1800 m hæð og komin upp á öskjubrúnina. Þá er stutt nestisstopp og þar er gjarnan reist sérstakt jökla-wc. Ef aðstæður leyfa er hægt að losa sig úr línu\, annars ekki. Svo er haldið af stað yfir öskju Öræfajökuls og að rótum Hvannadalshnjúks\, ca 2 km ganga\,  og þá er síðasta stopp fyrir lokahnykkinn en þá erum við í ca 2000 m hæð. Þarna setjum við á okkur broddana\, mundum ísöxina og göngum upp síðasta legginn. Hér er komið að bröttustu brekkunni sem jafnframt er vel krefjandi og víða sprungin. Hér þarf að fara með gát og nota ísöxina í hverju skrefi. Þetta er ekki nema um 200 m hækkun og þá stutt eftir á toppinn. Við munum ekki dvelja lengi á toppnum en allt ræðst það eftir aðstæðum og veðri. Síðan er haldið niður aftur\, broddar teknir af við bækistöðvarnar og sama  leið haldin til baka\, með tilheyrandi stoppum. Úr línum losnar fólk svo við jökulröndina og þaðan er haldið áfram niður\, en mikilvægt er að halda hópinn alla leið. \nRétt er að benda á að þó gangan sjálf sé ekki sú erfiðasta\, því hægt er farið\, þá er hún afar löng og krefst verulegs úthalds. Leiðin niður getur tekið verulega á. Talið er að þetta sé lengsta dagsganga í Evrópu\, með mestri hækkun á einum degi\, athugið það! Þegar á toppinn er komið erum við bara hálfnuð og  sama vegalengd eftir niðurá við. Hún reynist mörgum erfiðari en uppleiðin því þá er þreyta farin að segja til sín\, lærin búin og hné orðin aum. Snjóbráð er oft orðið mikið og færðin því þung. Þetta má ekki vanmeta. Þess vegna er nauðsynlegt að vera kominn í verulega gott gönguform og mælum við með reglulegum gönguferðum á fjöll. Gott er t.d. að prófa sig með því að fara tvisvar sinnum upp Esjuna í röð\,  en þá er hæðinni tæplega náð og ca tæpum helming göngutímans og svo meta sjálfan sig út frá því. Ef fólk er óvisst um líkamlegt ástand sitt (hjarta- og blóðþrýsting) er mikilvægt að fá mat læknis og grænt ljós frá honum. \nÁ leið upp þegar komið er í 1100 m hæð metur yfirfararstjóri göngumenn og getu þeirra til aðhalda áfram. Oft kemur fyrir að fólki er snúið við vegna getu\, þreytu eða veikinda og þá er það gert þarna áður en fólk fer í línur. Því er þá fylgt niður af fararstjóra. Að öllu jöfnu þarf fólk sem er hraust ekki að hafa áhyggjur að þynnra lofti í þessum hæðum\, nema það sé mjög viðkvæmt fyrir því\, það er yfirleitt ekki farið að hafa veruleg áhrif fyrr en í yfir 3000m hæð. \nEftir göngu dagsins er kjörið að gleðjast enn frekar saman eftir afrek dagsins og borða saman góða máltíð enda flestir orðnir hungraðir í góðan mat. \nSvo mælum við með góðri hvíld eftir afrek dagsins! \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hvannadalshnúk kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nHæð: 2110 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 13-15 klst \nGönguhækkun: 2000 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBröttför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Sandfelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nErfiðleikastig: 4 skór \nVerð: 39.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 15.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15.mars 2024 \nkt: 531184-0849 \n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 1.febrúar og fram til 21.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars \nHaldinn verður fundur með göngumönnum fyrir ferðina. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér \n                        \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/hvannadalshnukur-2110-m-20-april/
CATEGORIES:Fjöllin okkar,Jöklaferðir,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9921-3-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240323
DTEND;VALUE=DATE:20240324
DTSTAMP:20231108T133712Z
CREATED:20231106T141941Z
LAST-MODIFIED:20231108T133712Z
UID:7817-1711152000-1711238399@fjallavinir.is
SUMMARY:Snæfellsjökull 1446 m.  23. mars
DESCRIPTION:Snæfellsjökull\nmars 23\nSnæfellsjökull 1446 m.\nmars 23 kl.07:00 – 19:00\nHægt er að gista á Arnarstapa  og njóta góðra veitinga og lúxus gistingar dagana 22.-23. Mars. \nTilboð fyrir þáttakendur: \nGisting í 2 manna herbergi með morgunverði í tvær nætur 50.000.00 kr. \nEins manns herbergi á kr.  21.000\,00kr \nÞriggja rétta Kvöldverður er á 8.900\,00kr per mann\, nesti kr.2.900\,00 kr per mann \nBókanir fyrir gistingu skal senda á  booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum. \nHægt er að skoða nánar um gistinguna á  www.arnarstapicenter.is \n  \nSnæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst\, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin\,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er. \n  \nSérstakur jöklabúnaður. \nÍ þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað\, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara. \n  \nHæð: 1446 m \nGönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum \nGöngutími: 6-8 klst \nGönguhækkun: 1200 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \n  \nBrottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 skór \nVerð: 17.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 7.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.mars 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá  2.febrúar og fram til 30.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars. \n  \n  \nKlæðnaður – alls engar bómullarflíkur ! \nInnst klæða.  Ullarnærbolur\, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir. \nMillilag.  Göngubuxur eða flísbuxur\, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa\, primaloft jakki eða dúnjakki. \nYsta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun\, bæði buxur og jakki. \n  \nAnnar mikilvægur klæðnaður. \nHúfa\, höfuðklútar\, auka vettlingar\, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir\, vatnsheldir vettlingar\, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum. \n  \nAnnar búnaður. \n\nMyndavél\nSkíðagleraugu eða öflug sólgleraugu\nGöngustafir\, stillanlegir\nSessa\nSólarvörn og það þarf öfluga vörn\nSólarvarasalvi er mikilvægur (margir brenna illilega á vörum á jöklum)\nSjúkravörur s.s. íbúfen\, panodil\, hælsærisplástrar\, blöðruplástrar\, plástrar\, þrúgursykurtöflur\nAsmalyf mikilvæg fyrir þá sem þurfa\nOmnitape (íþróttateip 4-5 cm á breidd) Vinir geta deilt rúllu.\n\n  \nGóður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður\, auk nestis og nauðsynjavara\, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega. \nVið mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað\, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum\, sviðasultusneið\, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu\, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf. \nÞá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur\, möndlur\, rúsínur\, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1\,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum. \n        \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/snaefellsjokull-1446-m-mars-23-kl-0700-1900/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Jöklaferðir,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2022/11/3G4A2409-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240127
DTEND;VALUE=DATE:20240623
DTSTAMP:20240128T102747Z
CREATED:20231102T144908Z
LAST-MODIFIED:20240128T102747Z
UID:7724-1706313600-1719100799@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2024  - Hefst 27. janúar      
DESCRIPTION: Fjöllin okkar 2024 \nFjöll og félagsskapur\nHeilsuefling á fjöllum hefst þann 27.janúar 2024 og stendur til 22. júní. Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. Mikið innihald og stútfullt af góðum göngum! \nMunum að heilsubankinn vill sitt. \nVið hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn. \nGengið verður á hin ýmsu fjöll. Einnig verða æfingagöngur alla fimmtudaga frá 1.feb- til 21.mars upp að Steini sem hefjast kl 17:30. \nFellin tökum við svo í mars á þriðjudögum.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. \nAllir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. \nÍ byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir góða gönguskó. Allir fá svo páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir þátttakendudr. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \n  \nVerð verkefnis er 73.000\,-kr. Staðfestingargjald er 33.000\,-kr.  \nGanga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 7.janúar.  \nSemja má um greiðslufyrirkomulag.     \nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849  \n                                             \n27.jan   laugardagur       Mosfell Mosfellsbæ \n1.feb fimmtudagur     Esja að Steini \n 8.feb   fimmtudagur     Esja að Steini \n10.feb   laugardagur       Meðalfell í Kjós   \n15.feb   fimmtudagur     Esja að Steini \n17.feb   laugardagur       Þyrill  \n22.feb   fimmtudagur     Esja að Steini \n 24.feb   laugardagur       Þorbjörn Grindavík eða Búrfell Grímsnesi \n 29.feb   fimmtudagur     Esja að Steini \n 4.mars   mánudagur      Helgafell í Hafnarfirði \n5.mars  þriðjudagur       Reykjafell  \n 7.mars fimmtudagur     Esja að Steini \n9.mars   laugardagur       Stóra Kóngsfell og Drottning       \n11.mars  mánudagur      Helgafell Hafnarfirði \n12.mars   þriðjudagur      Þverfell  \n 14.mars  fimmtudagur     Esja að Steini \n 16.mars   laugardagur      Dýjadalshnjúkur  \n 18.mars   mánudagur     Helgafell í Hafnarfirði \n  19.mars    þriðjudagur       Grímannsfell  \n   21.mars  fimmtudagur    Esja að Steini \n   25.mars    mánudagur     Helgafell í Hafnarfirði \n   26.mars    þriðjudagur      Búrfell og Búrfellsgjá  \n   30.mars   laugardagur       Kjölur  frá Fossá  \n  13.apríl   laugardagur       Hengill langur            \n  20.apríl   laugardagur       Hrafnabjörg \n  4.maí    laugardagur       Sauðadalahnjúkar \n 11.maí    laugardagur       Geirhnjúkur         \n  18.maí    laugardagur       Fanntófell  \n   1.júní    laugardagur       Skjaldbreiður  \n   22.júní    laugardagur       Þórisjökull eða Ok\, frjálst val \n  \n  \nSkráning á www.fjallavinir.is \nNokkrar myndir úr ferðum okkar í ár 2023; \n                   \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2024/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Fimmvorduhals_2022_3-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230128
DTEND;VALUE=DATE:20230625
DTSTAMP:20221218T083244Z
CREATED:20220919T111342Z
LAST-MODIFIED:20221218T083244Z
UID:6035-1674864000-1687651199@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2023
DESCRIPTION:Fjöllin okkar 2023\nFjöll og félagsskapur         \nHeilsuefling á fjöllum hefst þann 28.janúar 2023 og stendur til 24. júní. Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. Mikið innihald og stútfullt af góðum göngum!\nVið hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn.\nGengið verður á hin ýmsu fjöll. Einnig verða æfingagöngur alla fimmtudaga frá 2.feb-30.mars upp að Steini og á mánudögum í mars bætast við æfingagöngur á Helgafell í Hafnarfirði.\nFellin tökum við svo í  mars á þriðjudögum.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Vegna göngu á Elliðahamar verður gisting á Arnarstapa fyrir þá sem vilja\, en greitt er sérstaklega fyrir það. Þá er greitt sérstaklega fyrir rútu þegar gengið verður um Kóngsveg. \nAllir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. \nÍ byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir gönguskó. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nVerð verkefnis er 71.000\,00\,-kr. Staðfestingargjald er 31.000\,-kr.\nGanga þarf frá greiðslu viku eftir skráningu eða eigi síðar en 6.janúar. Semja má um greiðslufyrirkomulag.\nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849 \n28.jan     laugardagur       Helgafell Hafnarfirði\n2.feb        fimmtudagur     Esja að Steini\n9.feb        fimmtudagur     Esja að Steini\n11.feb       laugardagur       Hafrahlíð – Reykjaborg- Þverfell\n16.feb      fimmtudagur     Esja að Steini\n18.feb      laugardagur       Skálafell Hellsiheiði\n23.feb      fimmtudagur     Esja að Steini\n25.feb      laugardagur       Akrafjall\n2.mars    fimmtudagur     Esja að Steini\n6.mars    mánudagur        Helgafell Hafnarfirði\n7.mars    þriðjudagur        Reykjafell\n9.mars    fimmtud              Esja að Steini\n11.mars   laugardagur       Dalfell\n13.mars   mánudagur        Helgafell Hafnarfirði\n14.mars   þriðjudagur        Húsfell\n16.mars   fimmtudagur    Esja að Steini\n18.mars   laugardagur      Blákollur\n20.mars  mánudagur       Helgafell Hafnarfirði\n21.mars   þriðjudagur      Grímannsfell\n23.mars   fimmtudagur    Esja að Steini\n27.mars   mánudagur       Helgafell Hafnarfirði\n28.mars   þriðjudagur      Vífilsfell\n30.mars   fimmtudagur   Esja að Steini\n1.apríl       laugardagur     Kóngsvegur\n15.apríl     laugardagur     Reynivallaháls\n22.apríl    laugardagur     Hróarstindur\n6.maí        laugardagur     Laugarvatnsfjall\n13.maí      laugardagur     Kvígindisfell\n20.maí     laugardagur      Elliðahamar\n3.júní       laugardagur      Hrútaborgir og Kolbeinstaðafjall\n24.júní    laugardagur     Hvalfell \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2023-2/
CATEGORIES:Fjöllin okkar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/esjan-haust-2021--scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220626
DTSTAMP:20220202T105803Z
CREATED:20210610T160204Z
LAST-MODIFIED:20220202T105803Z
UID:4604-1642809600-1656201599@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2022
DESCRIPTION:Fjöll og félagsskapur\nHeilsuefling á fjöllum hefst þann 22.janúar 2022 og stendur til 25. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn. \nGengið verður alla fimmtudaga kl 18:00 upp að Steini frá 3.febrúar og fram til 31.mars. Einnig förum við á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars og fram til 11.apríl.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Farið verður með rútu bæði að Kattartjarnarleið og Löðmund og greitt er sérstaklega fyrir það þegar að því kemur. Þeir sem vilja geta gist i Eyjum\, annars er ferjan tekin til baka. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir rútuferðir\, ferju og gistingu. \nÞetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. \nAllir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. \nÍ byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir Scarpa Mojito gönguskó frá Fjallakofanum. Einnig drögum við út heppinn þátttakanda sem fær glæsilegan grillpakka frá Réttinum að verðmæti 28.000\,-kr. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nVerð verkefnis er 63.000\,-kr. Staðfestingargjald er 27.000\,-kr. \nGanga þarf frá greiðslu eigi síðar en 10.janúar en semja má um greiðslufyrirkomulag. \nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849 \n22. jan.    Mosfell\n29.  jan.   Helgafell Hafnarfirði\n12. feb.    Arnarfell og Miðfell\n19. feb.    Grímannsfell\n26. feb.    Hafnarfjall\n12. mars  Brekkukambur – Guðlaug eftir göngu\n19. mars  Hvalfellshringur\n2.  apríl    Þríhyrningur\n16. apríl   Blikdalshringur  A / Blikdalurinn B\n23. apríl   Kattartjarnaleið\n7.  maí     Ármannsfell\n14. maí    Kvígindisfell\n21. maí    Vestmannaeyjar – gengið á helstu tindana\n4.  júní     Prestahnjúkur\n25. júní    Löðmundur \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2022/
LOCATION:Esjan\, Rétt hjá moso\, Mosó\, Gullbringusýsla\, Iceland
CATEGORIES:Fjöllin okkar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/06/FjollinOkkar2022-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210123T090000
DTEND;TZID=UTC:20210626T170000
DTSTAMP:20210305T095131Z
CREATED:20210119T183835Z
LAST-MODIFIED:20210305T095131Z
UID:3539-1611392400-1624726800@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2021
DESCRIPTION:Heilsuefling á fjöllum hefst þann 23.janúar 2021 og stendur til 26. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn. Hraði við allra hæfi. Gengið verður alla fimmtudaga frá 4.febrúar kl. 18:00 upp að Steini og fram til 1.apríl. Einnig förum við á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars og fram til 12.apríl. Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Þetta er verkefni fyrir alla sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. \nAllir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir Scarpa Mojito gönguskó frá Fjallakofanum. Einnig drögum við út heppinn þátttakanda sem fær grillpakka frá Réttinum að verðmæti 25.000\,-kr. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nVerð verkefnis er 57.000\,-kr. Staðfestingargjald er 21.000\,-kr.\nGanga þarf frá greiðslu eigi síðar en 10.janúar en semja má um greiðslufyrirkomulag.\nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849 \n23.jan Helgafell Mosfellsbæ\n30.jan Helgafell Hafnarfirði\n13.feb Geitafell\n14.feb Keilir\n20.feb Kjölur\n27.feb Meðalfell\n13.mars Þyrill – Guðlaug eftir göngu\n20.mars Múlafjall\n3.apríl Mælifell\n17.apríl Síldarmannagötur\n24.apríl Jósefsdalshringur\n8.maí Hrafnabjörg\n15.maí Skessuhorn\n22.maí Kristínartindar\n5.júní Rjúpnafell – Tindfjöll\n26.júní Rauðufossafjöll og Krakatindur \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2021/
CATEGORIES:Fjöllin okkar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A7460-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR