BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.18.4//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261110T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261129T170000
DTSTAMP:20261024T174715Z
CREATED:20261015T125821Z
LAST-MODIFIED:20261024T174715Z
UID:10645-1794297600-1795971600@fjallavinir.is
SUMMARY:Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell
DESCRIPTION:Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell \n  \nFjallavinir fara af stað með Níuna þann 10. nóvember\, og er ætlunin að trítla á fell og fjall fram í lok nóvember. \nVið munum þræða svæði á Esju og Úllanum\, allt eftir aðstæðum hverju sinni og áskiljum okkur því rétt til að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru göngumönnum í hag. \nMarkmiðið er að viðhalda góðri heilsu í þessu mesta skammdegi og lýsa upp myrkrið í aðdraganda jóla. \nAllar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. \nAllir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa undir lok verkefnisins. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna. \nHlökkum til að sjá ykkur! \nVerð í verkefnið fyrir ykkur er  kr. 18.000\,00 \nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina\, \n0111-26-501696 og kt. 531184-0849\, \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \nÞriðjudagur    10.nóvember      Úlfarsfell\, hittingur og spjall \nFimmtudagur     12.nóvember       Steinn og Úlfarsfell \nLaugardagur     14.nóvember          Tröllafoss  2/ 3 klst \nÞriðjudagur       17.nóvember    Úlfarsfell \nFimmtudagur   19.nóvember    Stígakerfi Esjunnar \nLaugardagur     21.nóvember    Óvissuferð eftir veðri á topp Esjunnar \nÞriðjudagur       24.nóvember    Úlfarsfell og eða Steinn \nFimmtudagur   26. nóvember   Úlfarsfell \nLaugardagur        28. Nóvember     Óvissuferð \n  \n  \nSvo er það verkefnið Fjöllin okkar 2027! \nÞetta er metnaðarfullt verkefni sem smellpassar fyrir þig og þína! \nSvo er þetta tilvalin jólagjöf frá þér til þín eða þinna 😉 \nVerkefnið hefst 29.janúar 2027 \nSkráning er hafin. Aðeins 37 sæti í boði! \nVerkefnið verður nánar kynnt á næstu dögum á heimasíðu okkar. \nKveðja Þórður og Fríða
URL:https://fjallavinir.is/event/nian-i-november-esjan-og-ulfarsfell/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/0c3fda69-5854-45eb-9855-611edd96d822.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270130T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270828T170000
DTSTAMP:20261024T174127Z
CREATED:20261022T003802Z
LAST-MODIFIED:20261024T174127Z
UID:10648-1801296000-1819472400@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2027
DESCRIPTION:Nýtt gönguár okkar Fjallavina hefst þann 30.janúar 2027\, og eins og alltaf þá hefjum við gönguárið á styttri og léttari göngum meðan skammdegið liggur enn yfir okkur\, en með hækkandi sól göngum við bæði lengra og hærra! \nEn\, á nýju ári munum við bæta við mjög spennandi göngum inn í verkefnið Fjöllin okkar 2027. Þeir sem mæta vel í upphafi verkefnis munu rúlla upp göngum sumarsins. Þú getur það og um leið hækkað heilsustigið\, líkamlega og andlega. Svo endilega skelltu þér með okkur og njóttu heilsueflingar úti í náttúrunni. Fátt er betra en það. \nVið verðum með fullt af æfingagöngum til enn frekari styrkingar! \nRegluleg hreyfing og þá sérstaklega utandyra í okkar fallegu og einstöku náttúru er með betri heilsueflingu sem hægt er að hugsa sér því þar nærum við bæði líkama og sál. Við aukum þol og styrk í skemmtilegum og hvetjandi félagskap! Njótum þess að vera saman og takast á við allskonar verkefni og áskoranir sem náttúruöflin bjóða upp á. Það er lítil heilsuefling fólgin í því að sitja inni og bíða eftir góðu veðri\, nýtum hvert tækifæri sem gefst og förum út og klæðum okkur samkvæmt því sem þetta dásamlega land okkar hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttar gönguleiðir sem gaman er að upplifa eru innan seilingar. \nVerkefnið er stútfullt af spennandi göngum þar sem við göngum heilsuna upp til að geta tekist á við lengri og meira krefjandi göngur síðar\, en ekki síður til að leggja inn í eigin heilsubanka. \nÞetta árið stefnum við á eftirfarandi göngur: \n30.janúar  laugardagur Mosfell \n4.febrúar   fimmtudagur   Helgafell Mosó \n6.febrúar   laugardagur    Grímannsfell frá Bringum \n11.febrúar fimmtudagur   Úlfarsfell \n13.febrúar laugardagur     Þverfell Mosó \n18.febrúar fimmtudagur   Úlfarsfell \n20.febrúar laugardagur     Múlafjall  \n25.febrúar fimmtudagur   Helgafell Hafnarfirði \n 6.mars   laugardagur    Meðalfell \n9.mars   þriðjudagur     Úlfarsfell \n11.mars  fimmtudagur  Úlfarsfell \n13.mars laugardagur    Hafnarfjall veljum tind er líður að. \n18.mars fimmtudagur  Þverfellshorn \n27.mars laugardagur   Óvissuferð á láglendi \n 3.apríl laugardagur    Móskörð Trana \n10.apríl laugardagur  Haukafjöll\, Þríhnúkar og Stardalshnúkar \n17.apríl laugardagur   Reyðarbarmur sá litli og stóri \n24.apríl laugardagur Miðfell og Dagmálafell \n 1.maí      laugardagur     Húsmúli Marardalur Nesjaskyggni \n8.maí      laugardagur    Kvígindisfell \n15. maí   laugardagur    Vestmannaeyjar\, helstu tindar* \n29.maí    laugardagur    Skarðshyrna \n 5. júní laugardagur      Skessuhorn \n12. júní laugardagur    Úlfljótsvatn\, Álútur-Reykjadalur \n19. júní laugardagur   Kjölur \n26.júní laugardagur   Löðmundur og Rauðufossar* \n 10.júlí laugardagur    Lómagnúpur* \n11. júlí sunnudagur    Kristínartindar* \n 4.ágúst     miðvikudagur  Syðstasúla \n21.ágúst   laugardagur     Kerlingarfjöll* \n*Vegna lengri dagsferða eins og t.d til Vestmannaeyja\, á Lómagnúp\, Kristínartinda\, Kjöl\, Löðmund og Kerlingafjöll má reikna með auka kostnaði vegna ferju eða rútu og eins gistikostnaði þegar það á við. Annars er líka möguleiki á að gera ráðstafanir með bíla innan hópsins og munum við leita bestu lausnar með það þegar nær dregur. \nVið minnum á að hægt er að fá styrki ýmist hjá atvinnurekendum og verkalýðsfélögum vegna heilsueflingar. \nAllir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum. Að auki fá allir páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir heppna þátttakendur. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nKveðja Þórður og Fríða \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2027/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/07/458415601_849658603811316_6431411625729767784_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270320
DTEND;VALUE=DATE:20270321
DTSTAMP:20261110T112521Z
CREATED:20261110T111146Z
LAST-MODIFIED:20261110T112521Z
UID:10673-1805500800-1805587199@fjallavinir.is
SUMMARY:Snæfellsjökull   20. mars
DESCRIPTION:Snæfellsjökull 1446 m. \nLaugardagurinn 20.mars  kl.05:00 – 19:00 \n  \nSnæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst\, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin\,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er. \n  \nHægt er að gista á Arnarstapa  og njóta góðra veitinga og lúxus gistingu 23.apríl. \nTilboð fyrir þáttakendur: \nBókanir fyrir gistingu skal senda á  booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum. \nHægt er að skoða nánar um gistinguna á  www.arnarstapicenter.is \n  \nSérstakur jöklabúnaður. \nÍ þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað\, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara. \n  \nHæð: 1446 m \nGönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum \nGöngutími: 6-8 klst \nGönguhækkun: 1200 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \n  \nBrottför: Lagt af stað frá Reykjavík kl. 05:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Snæfellsjökull kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 skór \nVerð: 19.900 \nStaðfestingargjald: 9.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.mars 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2026 og mæta í allar þær göngur er eru í viðri viku. \n  \nKlæðnaður – alls engar bómullarflíkur ! \nInnst klæða.  Ullarnærbolur\, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir. \nMillilag.  Göngubuxur eða flísbuxur\, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa\, primaloft jakki eða dúnjakki. \nYsta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun\, bæði buxur og jakki. \n  \nAnnar mikilvægur klæðnaður. \nHúfa\, höfuðklútar\, auka vettlingar\, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir\, vatnsheldir vettlingar\, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum. \n  \n  \nGóður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður\, auk nestis og nauðsynjavara\, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega. \nVið mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað\, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum\, sviðasultusneið\, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu\, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf. \nÞá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur\, möndlur\, rúsínur\, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1\,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/snaefellsjokull-20-mars/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9689-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270424
DTEND;VALUE=DATE:20270425
DTSTAMP:20261110T104808Z
CREATED:20261110T104808Z
LAST-MODIFIED:20261110T104808Z
UID:10677-1808524800-1808611199@fjallavinir.is
SUMMARY:Hvannadalshnúkur 2110 m
DESCRIPTION:Hvannadalshnúkur 2110 m 24. apríl \nGanga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands! \nFerðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. \nVið munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur. Því er mikilvægt að vera kominn austur snemma á föstudeginum og geta hvílt sig\, sofið og undirbúið nesti tímanlega. Varðandi hvíld/svefn er rétt að benda á þarna munum við óhjákvæmilega heyra jarm í rollum nánast við tjalddyrnar/húsdyrnar\, svo rétt er að vera með eyrnartappa til að reyna að útloka þá truflun\, því þó við séum nokkuð vön umferðarnið borgarinnar þá er ekki víst að við venjumst þessum sveitatónleikum strax. Mikilvægt er að borða góðan morgunmat fyrir gönguna\, og mælum við með hafragraut\, banana og ávaxtasafa eða álíka. \nVið upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega skv fyrirmælum og klárir í bátana\, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Rvk. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er\, kaldstart er gott\, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluvert. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar án þess að þurfa að taka af sér bakpokann. \nVið göngum svo af stað upp frekar brattar brekkur Sandfellsheiði\, á einstigi og þar munum við fara fetið. Fyrsta stopp verður við læk í um 390 m hæð og þar rennur ótrúlega gott og ferskt fjallavatnið og þar skal fyllt á brúsa. Annað stopp verður í um 700 m og þar tökum við stutt nestisstopp. Þaðan er haldið upp á jökulröndina\,  þriðja stopp er því í um 1100 m hæð. Þá er kominn matartími\, og að honum loknum verður hópunum skipt upp í ca 6 manna hópa. Þar setja menn á sig göngubelti og eru svo festir í línu. Eftir það gengur hver hópur sem einn maður/kona og hagar sér sem slíkur! \nLínustjórar munu þá fara yfir reglur\, öryggismál og hegðun göngumanna í línum\, en mikilvægt er að göngumenn fari í einu og öllu eftir þessum fyrirmælum. Þá er gengið áfram upp eftir langri brekku með nokkuð jöfnum og dágóðum halla næstu ca 4 km\, (þetta er brekkan endalausa – hér reynir á þolinmæðina) þar til við náum ca 1800 m hæð og komin upp á öskjubrúnina. Þá er stutt nestisstopp og þar er gjarnan reist sérstakt jökla-wc. Ef aðstæður leyfa er hægt að losa sig úr línu\, annars ekki. Svo er haldið af stað yfir öskju Öræfajökuls og að rótum Hvannadalshnjúks\, ca 2 km ganga\,  og þá er síðasta stopp fyrir lokahnykkinn en þá erum við í ca 2000 m hæð. Þarna setjum við á okkur broddana\, mundum ísöxina og göngum upp síðasta legginn. Hér er komið að bröttustu brekkunni sem jafnframt er vel krefjandi og víða sprungin. Hér þarf að fara með gát og nota ísöxina í hverju skrefi. Þetta er ekki nema um 200 m hækkun og þá stutt eftir á toppinn. Við munum ekki dvelja lengi á toppnum en allt ræðst það eftir aðstæðum og veðri. Síðan er haldið niður aftur\, broddar teknir af við bækistöðvarnar og sama  leið haldin til baka\, með tilheyrandi stoppum. Úr línum losnar fólk svo við jökulröndina og þaðan er haldið áfram niður\, en mikilvægt er að halda hópinn alla leið. \nRétt er að benda á að þó gangan sjálf sé ekki sú erfiðasta\, því hægt er farið\, þá er hún afar löng og krefst verulegs úthalds. Leiðin niður getur tekið verulega á. Talið er að þetta sé lengsta dagsganga í Evrópu\, með mestri hækkun á einum degi\, athugið það! Þegar á toppinn er komið erum við bara hálfnuð og  sama vegalengd eftir niðurá við. Hún reynist mörgum erfiðari en uppleiðin því þá er þreyta farin að segja til sín\, lærin búin og hné orðin aum. Snjóbráð er oft orðið mikið og færðin því þung. Þetta má ekki vanmeta. Þess vegna er nauðsynlegt að vera kominn í verulega gott gönguform og mælum við með reglulegum gönguferðum á fjöll. Gott er t.d. að prófa sig með því að fara tvisvar sinnum upp Esjuna í röð\,  en þá er hæðinni tæplega náð og ca tæpum helming göngutímans og svo meta sjálfan sig út frá því. Ef fólk er óvisst um líkamlegt ástand sitt (hjarta- og blóðþrýsting) er mikilvægt að fá mat læknis og grænt ljós frá honum. \nÁ leið upp þegar komið er í 1100 m hæð metur yfirfararstjóri göngumenn og getu þeirra til aðhalda áfram. Oft kemur fyrir að fólki er snúið við vegna getu\, þreytu eða veikinda og þá er það gert þarna áður en fólk fer í línur. Því er þá fylgt niður af fararstjóra. Að öllu jöfnu þarf fólk sem er hraust ekki að hafa áhyggjur að þynnra lofti í þessum hæðum\, nema það sé mjög viðkvæmt fyrir því\, það er yfirleitt ekki farið að hafa veruleg áhrif fyrr en í yfir 3000m hæð. \nEftir göngu dagsins er kjörið að gleðjast enn frekar saman eftir afrek dagsins og borða saman góða máltíð enda flestir orðnir hungraðir í góðan mat. \nSvo mælum við með góðri hvíld eftir afrek dagsins! \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hvannadalshnúk kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nHæð: 2110 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 13-15 klst \nGönguhækkun: 2000 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBröttför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Sandfelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nErfiðleikastig: 4 skór \nVerð: 39.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 15.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 11.mars 2027 \nkt: 531184-0849 \n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 1.febrúar og fram til 21.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars \nHaldinn verður fundur með göngumönnum fyrir ferðina. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/hvannadalshnukur-2110-m-4/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_2515.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270508
DTEND;VALUE=DATE:20270509
DTSTAMP:20261110T112757Z
CREATED:20261110T112757Z
LAST-MODIFIED:20261110T112757Z
UID:10683-1809734400-1809820799@fjallavinir.is
SUMMARY:Hrútfjallstindar 1756 m\, 8.maí
DESCRIPTION:Hrútfjallstindar 1756 m\,\nHér er um langa og krefjandi göngu að ræða en jafnframt eina af mögnuðustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðu-austurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn og Esjufjöll! \nLagt verður af stað í gönguna á bilinu 02:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna\, en hægt er að gista á Hofi og Svínafelli og auðvitað víðar. Á Svínafelli er hægt að gista í tjöldum en þar er góð aðstaða fyrir tjöld\, tjaldvagna eða hvers konar aftaníhýbýli. Þar er einnig góð eldunaraðstaða\, stór matsalur\, kæliskápar\, sturtur og wc. \nGönguleiðin. Leiðin er nokkuð brött og eins er nokkuð um lækkanir á leiðinni og þess vegna telst hún erfiðari en ganga á Hvannadalshnúk. Við munum hefja gönguna við Hafrafell og ganga upp bratta brekkuna og inn að Sveltisskarði. Efrimenn og Fremrimenn blasa við okkur ásamt stórkostlegu útsýni yfir einstaka náttúru. Hér er um að ræða eina af skemmtilegustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn\, Esjufjöll og víðar.  Hrútfjallstindar eru fjórir; Hátindur 1875 m\, Vesturtindur\, Suðurtindur og Miðtindur og munum við stefna á Hátind. Reikna með 24-25 km og 14/15 tíma göngu og að auki uppsafnaðri hækkun upp á 2200 m. \n  \nHæð: 1875 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 14-15 klst \nGönguhækkun: 2100 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBrottför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Hafrafelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nErfiðleikastig: 5 skór \nVerð: 39.900\,-kr \nStaðfestingargjald: 10.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.apríl 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2026  í allar þær göngur er eru í viðri viku.
URL:https://fjallavinir.is/event/hrutfjallstindar-1756-m-8-mai/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Hrutfallstindar_2022_15-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270515
DTEND;VALUE=DATE:20270516
DTSTAMP:20261110T114019Z
CREATED:20261110T114019Z
LAST-MODIFIED:20261110T114019Z
UID:10688-1810339200-1810425599@fjallavinir.is
SUMMARY:Vestmannaeyjar dagsferð\, Gengið á helstu tindana.
DESCRIPTION:Vestmannaeyjar dagsferð\, 15. maí. 2027 \nLandeyjahöfn brottför: 8:00 göngumenn koma sér á staðinn. \nInnifalið farastjórn í Vestmannaeyjum \nVestmannaeyjar – gengið á helstu tindana!   \nLaugardagur: 15. maí Gangan mun hefjast klukkan 09:00 og reikna má með hún taki allan daginn. Þetta er einstök gönguferð um dásamlega eyju sem skilur eftir sig góðar minningar. Við hefjum gönguna á Heimakletti en þaðan er svo tekin hringleið um helstu tindana sem gefa okkur dásamlegt útsýni í allar áttir.  Reikna má með um 18 km langri göngu sem tekur um 8 klst með stoppum. Uppsöfnuð gönguhækkun eru tæpir 1100 m. \nEftir göngu er kjörið að skella sér í sundlaugina en eftir það borðar hópurinn saman á  veitingastaðnum Tanginn og njótum góðrar samveru. \nÞátttakendur sjá sjálfir um að panta í Herjólf\, sjá www.herjolfur.is \nVerð:  17.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 7.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1. maí  2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nInnifalið farastjórn í Vestmannaeyjum
URL:https://fjallavinir.is/event/vestmannaeyjar-dagsferd-gengid-a-helstu-tindana/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2022/12/3G4A3250-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270615
DTEND;VALUE=DATE:20270616
DTSTAMP:20261113T092632Z
CREATED:20261113T092632Z
LAST-MODIFIED:20261113T092632Z
UID:10769-1813017600-1813103999@fjallavinir.is
SUMMARY:Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár!
DESCRIPTION:Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár! \nAf því tilefni bjóðum við sérstakt verð í eina af okkar skemmtilegustu vorgöngum sem er yfir Leggjabrjót þann 15. júní 2027 og það er kvöldganga! \nJá\, við hófum göngur sem Fjallavinir haustið 2011 og höfum frá þeim tíma gengið vítt og breitt um landið okkar fallega og farið oftar en oft á mörg fjöll og fell. Þetta höfum við gert með ykkur\, okkar góðu og traustu fjallavinum og höfum þannig lagt inn í heilsubankann\, bæði andlega og líkamlega. Það er sannarlega mikil gæfa að hafa góða heilsu og enn mikilvægara að viðhalda henni. Heilsubankinn er mikilvægasti bankinn og þar þurfa allir að eiga innistæðu fyrir komandi ár. Að geta gengið til fjalla er algjörlega frábært\, að finna orkuna magnast\, vöðvana styrkjast\, þolið aukast\, kyrrðina\, fuglasönginn\, vindinn og náttúruna sem umvefur okkur er algjörlega einstök upplifun sem allir ættu að þekkja! \nOg við erum alls ekkert á því að hætta\, því lofum við! \nVerðið í þessa einstöku göngu verður 12.000\,- krónur en eftir göngu bjóðum við upp á veitingar og afmælisköku! \nGG sport mun einnig gefa vinning í tilefni af afmælis okkar! \n  \nKvöldganga (þriðjudagur) – hressing í lok göngu! \nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16-18 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6-7 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga en löng. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490\nGönguvegalengd: 16-18 km\nGöngutími: 6-7 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 16:30 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 12.000\,00\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 6.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/vid-fjallavinir-fognum-16-ara-afmaeli-i-ar/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9650-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270710
DTEND;VALUE=DATE:20270711
DTSTAMP:20261111T104639Z
CREATED:20261111T104639Z
LAST-MODIFIED:20261111T104639Z
UID:10724-1815177600-1815263999@fjallavinir.is
SUMMARY:Lómagnúpur 10. júlí 2027 kl.06:00 – 22:00
DESCRIPTION:Lómagnúpur 10.júlí 2027 kl.06:00 – 22:00\nEinstaklega skemmtileg ganga enda Lómagnúpur með tignarlegri fjöllum landsins og gangan kemur verulega á óvart. Gönguleiðin er í heildina ekki mjög erfið\, en hún er alllöng og reynir vel á úthaldið\, rúmlega 19 km og það má alveg reikna með rúmum 8 klst eða eftir aðstæðum eins og gefur að skilja. Byrjunarhæðin er í um 80 m og hæsti toppur er 794 m á miðju fjallinu. Uppsöfnuð hækkun fer yfir 1000 m. Útsýnið er stórkostlegt og sannarlega mögnuð upplifun ofan af fjallinu og þá ekki síst af syðsta hluta þess. \n10.júli 2027 Lómagnúpur \nHæð: 794 \nGönguvegalengd: 19 km \nGöngutími: 8 klst \nGönguhækkun: 1000 m \nBrottför: Mæting kl. 09:00 við Lómagnúp\, póstur kemur þegar nær dregur að göngu. \nVið viljum benda á\, og í raun mæla með að fólk gisti t.d á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur eða í næsta nágrenni svo stuttur akstur sé að upphafsstað göngu. Frá Kirkjubæjarklaustri er aðeins tæplega 1 klst akstur að Lómagnúpi. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 21.900\,-kr \nStaðfestingargjald: 9.900\,- \nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/lomagnupur-10-juli-2027-kl-0600-2200/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2026/11/822398565_10240219507043460_5144508662954256736_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270711
DTEND;VALUE=DATE:20270712
DTSTAMP:20261113T154709Z
CREATED:20261113T154709Z
LAST-MODIFIED:20261113T154709Z
UID:10778-1815264000-1815350399@fjallavinir.is
SUMMARY:Kristínartindar
DESCRIPTION:Kristínartindar \nKristínartinda sem eru 1126 metra háir og rísa upp af Skaftafellsheiði í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Tindarnir eru reyndar tveir\, eins og nafnið bendir til\, og er sá lægri 979 m en sá hærri 1126 m. Afar gott útsýni er af Kristínartindum yfir Morsárdal\, Kjós\, Skaftafellsjökuls og til Hrútfjallstinda og Hvannadalshnúks. Leiðin liggur um hina kjarri vöxnu Skaftafellsheiði\, áfram upp fyrir Skerhól\, upp á Fremrihnauk og Nyrðrihnauk\, um Gemludal og síðan áfram upp um brattar hlíðar þegar ofar dregur. Áætluð vegalengd er um 16-17 km  og hækkun á göngu er rúmlega 1000 metrar.   \nGera verður ráð fyrir að þessi ganga taki allan daginn! \nVerð:  17.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 7.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15. júní 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \n Hæð: 1126 \nGönguvegalengd: 17 km \nGöngutími: 8 klst \nGönguhækkun: 1000 m \nBrottför: Mæting kl. 09:00 við skálann í Skattafelli póstur kemur þegar nær dregur að göngu. \nVið viljum benda á\, og í raun mæla með að fólk gisti t.d á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur eða í næsta nágrenni svo stuttur akstur sé að upphafsstað göngu. Frá Kirkjubæjarklaustri er aðeins tæplega 1 klst akstur að Lómagnúpi. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/kristinartindar/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2026/11/D27A8032-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270725
DTEND;VALUE=DATE:20270726
DTSTAMP:20261111T125741Z
CREATED:20261111T125741Z
LAST-MODIFIED:20261111T125741Z
UID:10749-1816473600-1816559999@fjallavinir.is
SUMMARY:Kerlingafjöll 25.júlí
DESCRIPTION:Kerlingafjöll 25.júlí  – Sunnudagur.\n\n\nÞetta er óneitanlega ein af fallegustu gönguleiðum landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVið hefjum gönguna í um 1000 m hæð og stefnum upp á Fannborgu. Þetta er auðveld leið og á allra færi og má reikna með að taki 1-1\,5 klst. Þaðan höldum við áfram í lækkun og hækkun á víxl upp á Snækoll í 1480 m og svo áfram upp á Snót en sá spotti frá Fannborgu tekur aðra 1\,5 klst. Hveradalir verða síðan skoðaðir á leið okkar til baka þegar komið er aftur í rútuna. \nEftir göngu er ætlunin að skella sér í Hálendisböðin og er það innifalið í verðinu.. Brottför frá Kerlingafjöllum er áætlað kl 19;00 \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1480 m\nGönguvegalengd: 7 km\nGöngutími: 5 klst\nGönguhækkun:  frá 1050 m upp í tæplega 1500 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 34.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. ágúst 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/kerlingafjoll-25-juli/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2026/11/D27A8772-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270807
DTEND;VALUE=DATE:20270808
DTSTAMP:20261111T114840Z
CREATED:20261111T114840Z
LAST-MODIFIED:20261111T114840Z
UID:10740-1817596800-1817683199@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  7. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  7. ágúst\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-7-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-3-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270828
DTEND;VALUE=DATE:20270829
DTSTAMP:20261111T114403Z
CREATED:20261111T114403Z
LAST-MODIFIED:20261111T114403Z
UID:10735-1819411200-1819497599@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  28. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  28. ágúst\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-28-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270909T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20271113T170000
DTSTAMP:20261111T131513Z
CREATED:20261111T131513Z
LAST-MODIFIED:20261111T131513Z
UID:10766-1820511000-1826125200@fjallavinir.is
SUMMARY:Esjan haust með Úllanum 2027
DESCRIPTION:Esjan haust með Úllanum 2027\nGöngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi \nHaustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum. \nÞað verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið\, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni\, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum.. \nAllar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. \nAllir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút eins og tíðkast hefur\, en nú bjóðum við upp á þrjá liti sem eru að slá í gegn og eru árgerð 2027. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar. \nVið áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna. \nHlökkum til að sjá ykkur! \nVerð í verkefnið er 39.900\,-  Staðfestingargjald er 20.000\,- krónur. \nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina\, \n0111-26-501696 og kt. 531184-0849\, Esjan haustið 2024 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \nNánar síðar!
URL:https://fjallavinir.is/event/esjan-haust-med-ullanum-2027/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/3F5A7236-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR