BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.16.2//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Fjallavinir
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250911T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251101T170000
DTSTAMP:20260516T153040
CREATED:20250729T231348Z
LAST-MODIFIED:20250902T105754Z
UID:9781-1757613600-1762016400@fjallavinir.is
SUMMARY:Esjan haust 2025
DESCRIPTION:Esjan haust með Úllanum 2025 \nGöngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi \nHaustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum. \nÞað verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið\, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni\, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum.. \nAllar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. \nAllir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli á einum fallegasta útsýnisstað Esjunnar. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa  og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar. \nVið áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna. \nHlökkum til að sjá ykkur! \nVerð í verkefnið er 39.900\,-  Staðfestingargjald er 20.000\,- krónur. \nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina\, \n0111-26-501696 og kt. 531184-0849\, Esjan haustið 2024 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \n  \n  \nFimmtudagur   11.sept                Úlfarsfell\, hittingur og spjall \nLaugardagur     13.sept                Dýjadalshnúkur frá Þjóðskarði \nFimmtudagur   18.sept                Steinn og Úlfarsfell \nÞriðjudagur       23.sept                Sandhryggur\, hringleið \nFimmtudagur   25.sept                Steinn eða stígakerfi Esjunnar \nLaugardagur     27.sept                Móskarðahnúkar og Laufskörð\, hringleið \nÞriðjudagur       30.sept                Kvensöðlar \nFimmtudagur   2.okt                     Úlfarsfell \nFimmtudagur   9.okt                     Úlfarsfell \nÞriðjudagur       14.okt                   Karl\, hringleið að Míganda \nFimmtudagur   16.okt                   Úlfarsfell \nFimmtudagur   23.okt                   Steinn og Úlfarsfell \nLaugardagur     25.okt                   Kistufell\, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar \nÞriðjudagur       28.okt                   Úlfarsfell \nLaugardagur     1.nóv                    Tröllafoss og Þríhnúkar \n  \n  \nVerð í verkefnið er 39.900\,- kr. \nStaðfestingargjald er 20.000\,- kr
URL:https://fjallavinir.is/event/esjan-haust-2025/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/07/3ff7760d-7dd3-40ad-a98b-2ec6d2f50bfb.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240831
DTEND;VALUE=DATE:20240901
DTSTAMP:20260516T153040
CREATED:20231108T192321Z
LAST-MODIFIED:20240817T100609Z
UID:8214-1725062400-1725148799@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar    31.ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar    31.ágúst \n\n ágúst\n\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. júlí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér \n                           \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-31-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-1-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240824
DTEND;VALUE=DATE:20240825
DTSTAMP:20260516T153040
CREATED:20231108T121958Z
LAST-MODIFIED:20240817T095500Z
UID:8211-1724457600-1724543999@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar    24.ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar \n\n ágúst\n\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald:\nFerð fullgreidd fyrir: \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér \n                            
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-24-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240810
DTEND;VALUE=DATE:20240811
DTSTAMP:20260516T153040
CREATED:20231107T143834Z
LAST-MODIFIED:20240621T121328Z
UID:8019-1723248000-1723334399@fjallavinir.is
SUMMARY:Hábarmur  - Grænihryggur\, Skalli\, Lauga 24.ágúst  Nýtt og spennandi
DESCRIPTION:Hábarmur  – Grænihryggur\, Skalli\, Lauga\n24.ágúst Nýtt og spennandi\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVið hefjum gönguna inn við Kirkjufellsvatn og göngum á Hábarm sem  gefur okkur magnað útsýni yfir Fjallabak enda hæsti barmur öskjunnar. Þaðan liggur leiðin niður að Grænahrygg\, Útigönguból\, Hattver\, Skalla og niður að Landmannalaugum. \nReikna má með 20-22 km langri göngu og um 10-12 klukkustundum\, allt eftir aðstæðum og því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150-200 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er krefjandi um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 20-22 km\nGöngutími: 10-12 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig:  3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. júlí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/habarmur-graenihryggur-skalli-lauga-10-agust-nytt-og-spennandi/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A1701-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240727T060000
DTEND;TZID=UTC:20240727T233000
DTSTAMP:20260516T153040
CREATED:20231107T115643Z
LAST-MODIFIED:20231109T111816Z
UID:7963-1722060000-1722123000@fjallavinir.is
SUMMARY:Álftavatn\, Torfajökull\, Jökulgil\, Hattur og Landmannalaugar  Nýtt og spennandi
DESCRIPTION:Álftavatn\, Torfajökull\, Jökulgil\, Hattver og Landmannalaugar\njúlí 27 Nýtt og spennandi\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nBrottför frá Grjóthálsi með rútu að Álftavatni. Gengið verður frá þaðan og yfir Torfajökul og niður í Jökulgil þar sem Jökulkvíslin verður vaðin. Síðan upp með Hatti eða Uppgönguhrygg og þaðan um Brandsgil eða Skall niður í Landmannalaugar. Gangan er  um 25-27 km og um 10-12 klst\, allt eftir aðstæðum og því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 540 m hæð og hækkum við okkur upp í um 970 m hæð. Gangan er krefjandi um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag sem jafnframt er ógleymanlegt. \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs og aðstæðna. \nHæð:  970 m\nGönguvegalengd: 25-27 km\nGöngutími: 10-12 klst \nUppsöfnuð hækkun  um 1400 m \nMesta hæð 970\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 970 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig:  3 \nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 17. júní 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/alftavatn-torfajokull-jokulgil-hattur-og-landmannalaugar-2/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A0478-2-Copy-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240711T080000
DTEND;TZID=UTC:20240715T170000
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20231106T171309Z
LAST-MODIFIED:20240508T162335Z
UID:7835-1720684800-1721062800@fjallavinir.is
SUMMARY:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!
DESCRIPTION:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi \n 11.júlí – 15. júlí\n  \nHér er á ferðinni einstaklega spennandi ganga með miklu innihaldi. Rúta mun aka okkur inn í Landmannalaugar og þar verður gengið um þetta fallega svæði\, á Bláhnúk og að Brennisteinsöldu eftir aðstæðum. Gist verður í Laugum. \nNæsta dag hefst svo hin eiginlega Laugavegsganga\, ein allra fallegasta gönguleið í landsins Við munum ganga í góðum takti frá Laugum að Álftavatni\, nokkuð löng dagleið en vel gerleg fyrir fólk í góðu gönguformi. Gist við Álftavatn. \nVöknum í rólegheitum og síðan gegnið af stað í Emstur. Góð dagleið.  Hugsanlega gengið á Hvanngilshnausa á leið okkar um Hvanngil\, en það ræðst að aðstæðum. Gist í Emstrum. \nFrá Emstrum verður síðan gengið inn í Bása. Nokkuð löng dagleið en frekar létt. Vaða þarf Þröngá áður en komið er inn í Þórsmörk. Síðan krossum við Krossá og komum okkur fyrir í skála í Básum\, grillum og gerum okkur glatt kvöld. \nÁ síðasta degi munum við haga seglum eftir vindi. Taka létta göngu í Básum og/eða ganga inn í Stakkholtsgjá og stoppa síðan við Merkurker þar sem við munum upplifa þetta skemmtilega svæði og vaða í gegnum hellinn.   Síðan haldið heim. \nListi vegna útbúnaðar og nánari upplýsinga verður sendur þátttakendum\, ásamt tillögu að matseðli þegar nær dregur \n  \nHeildargönguvegalengd: 60-70 km \nGöngutími: Misjafn eftir dögum\, 6-8 klst \nGönguhækkun og lækkun: Misjöfn eftir dögum\,  5-600 m mest \nBrottför:  Með rútu frá Grjóthálsi \n  \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 113.000\,00-kr \nStaðfestingargjald: 43.000\,-kr – Skal greitt viku eftir bókun. \nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér
URL:https://fjallavinir.is/event/laugavegurinn-med-meiru-5-daga-ferd-med-rutu-og-trussi-7/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2020/12/ThordurFrida.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240704
DTEND;VALUE=DATE:20240709
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20231106T172045Z
LAST-MODIFIED:20240815T120837Z
UID:7830-1720051200-1720483199@fjallavinir.is
SUMMARY:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!
DESCRIPTION:Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!\n4. júlí – júlí 8\n  \nHér er á ferðinni einstaklega spennandi ganga með miklu innihaldi. Rúta mun aka okkur inn í Landmannalaugar og þar verður gengið um þetta fallega svæði\, á Bláhnúk og að Brennisteinsöldu eftir aðstæðum. Gist verður í Laugum. \nNæsta dag hefst svo hin eiginlega Laugavegsganga\, ein allra fallegasta gönguleið í landsins Við munum ganga í góðum takti frá Laugum að Álftavatni\, nokkuð löng dagleið en vel gerleg fyrir fólk í góðu gönguformi. Gist við Álftavatn. \nVöknum í rólegheitum og síðan gegnið af stað í Emstur. Góð dagleið.  Hugsanlega gengið á Hvanngilshnausa á leið okkar um Hvanngil\, en það ræðst að aðstæðum. Gist í Emstrum. \nFrá Emstrum verður síðan gengið inn í Bása. Nokkuð löng dagleið en frekar létt. Vaða þarf Þröngá áður en komið er inn í Þórsmörk. Síðan krossum við Krossá og komum okkur fyrir í skála í Básum\, grillum og gerum okkur glatt kvöld. \nÁ síðasta degi munum við haga seglum eftir vindi. Taka létta göngu í Básum og/eða ganga inn í Stakkholtsgjá og stoppa síðan við Merkurker þar sem við munum upplifa þetta skemmtilega svæði og vaða í gegnum hellinn.   Síðan haldið heim. \nListi vegna útbúnaðar og nánari upplýsinga verður sendur þátttakendum\, ásamt tillögu að matseðli þegar nær dregur \n  \nHeildargönguvegalengd: 60-70 km \nGöngutími: Misjafn eftir dögum\, 6-8 klst \nGönguhækkun og lækkun: Misjöfn eftir dögum\,  5-600 m mest \nBrottför:  Með rútu frá Grjóthálsi \n  \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 113.000\,00-kr \nStaðfestingargjald: 43.000\,-kr – Skal greitt viku eftir bókun. \nFerð fullgreidd fyrir: 1.maí 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \n                   \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/laugavegurinn-med-meiru-5-daga-ferd-med-rutu-og-trussi-8/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Námskeið,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/10/Laugavegurinn_2022_10-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240420
DTEND;VALUE=DATE:20240421
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20231106T140621Z
LAST-MODIFIED:20231108T132446Z
UID:7769-1713571200-1713657599@fjallavinir.is
SUMMARY:Hvannadalshnúkur 2110 m  20. apríl
DESCRIPTION: Hvannadalshnúkur\nHvannadalshnúkur 2110 m\n20. apríl  \nGanga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands! \nFerðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. \nVið munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur. Því er mikilvægt að vera kominn austur snemma á föstudeginum og geta hvílt sig\, sofið og undirbúið nesti tímanlega. Varðandi hvíld/svefn er rétt að benda á þarna munum við óhjákvæmilega heyra jarm í rollum nánast við tjalddyrnar/húsdyrnar\, svo rétt er að vera með eyrnartappa til að reyna að útloka þá truflun\, því þó við séum nokkuð vön umferðarnið borgarinnar þá er ekki víst að við venjumst þessum sveitatónleikum strax. Mikilvægt er að borða góðan morgunmat fyrir gönguna\, og mælum við með hafragraut\, banana og ávaxtasafa eða álíka. \nVið upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega skv fyrirmælum og klárir í bátana\, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Rvk. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er\, kaldstart er gott\, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluvert. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar án þess að þurfa að taka af sér bakpokann. \nVið göngum svo af stað upp frekar brattar brekkur Sandfellsheiði\, á einstigi og þar munum við fara fetið. Fyrsta stopp verður við læk í um 390 m hæð og þar rennur ótrúlega gott og ferskt fjallavatnið og þar skal fyllt á brúsa. Annað stopp verður í um 700 m og þar tökum við stutt nestisstopp. Þaðan er haldið upp á jökulröndina\,  þriðja stopp er því í um 1100 m hæð. Þá er kominn matartími\, og að honum loknum verður hópunum skipt upp í ca 6 manna hópa. Þar setja menn á sig göngubelti og eru svo festir í línu. Eftir það gengur hver hópur sem einn maður/kona og hagar sér sem slíkur! \nLínustjórar munu þá fara yfir reglur\, öryggismál og hegðun göngumanna í línum\, en mikilvægt er að göngumenn fari í einu og öllu eftir þessum fyrirmælum. Þá er gengið áfram upp eftir langri brekku með nokkuð jöfnum og dágóðum halla næstu ca 4 km\, (þetta er brekkan endalausa – hér reynir á þolinmæðina) þar til við náum ca 1800 m hæð og komin upp á öskjubrúnina. Þá er stutt nestisstopp og þar er gjarnan reist sérstakt jökla-wc. Ef aðstæður leyfa er hægt að losa sig úr línu\, annars ekki. Svo er haldið af stað yfir öskju Öræfajökuls og að rótum Hvannadalshnjúks\, ca 2 km ganga\,  og þá er síðasta stopp fyrir lokahnykkinn en þá erum við í ca 2000 m hæð. Þarna setjum við á okkur broddana\, mundum ísöxina og göngum upp síðasta legginn. Hér er komið að bröttustu brekkunni sem jafnframt er vel krefjandi og víða sprungin. Hér þarf að fara með gát og nota ísöxina í hverju skrefi. Þetta er ekki nema um 200 m hækkun og þá stutt eftir á toppinn. Við munum ekki dvelja lengi á toppnum en allt ræðst það eftir aðstæðum og veðri. Síðan er haldið niður aftur\, broddar teknir af við bækistöðvarnar og sama  leið haldin til baka\, með tilheyrandi stoppum. Úr línum losnar fólk svo við jökulröndina og þaðan er haldið áfram niður\, en mikilvægt er að halda hópinn alla leið. \nRétt er að benda á að þó gangan sjálf sé ekki sú erfiðasta\, því hægt er farið\, þá er hún afar löng og krefst verulegs úthalds. Leiðin niður getur tekið verulega á. Talið er að þetta sé lengsta dagsganga í Evrópu\, með mestri hækkun á einum degi\, athugið það! Þegar á toppinn er komið erum við bara hálfnuð og  sama vegalengd eftir niðurá við. Hún reynist mörgum erfiðari en uppleiðin því þá er þreyta farin að segja til sín\, lærin búin og hné orðin aum. Snjóbráð er oft orðið mikið og færðin því þung. Þetta má ekki vanmeta. Þess vegna er nauðsynlegt að vera kominn í verulega gott gönguform og mælum við með reglulegum gönguferðum á fjöll. Gott er t.d. að prófa sig með því að fara tvisvar sinnum upp Esjuna í röð\,  en þá er hæðinni tæplega náð og ca tæpum helming göngutímans og svo meta sjálfan sig út frá því. Ef fólk er óvisst um líkamlegt ástand sitt (hjarta- og blóðþrýsting) er mikilvægt að fá mat læknis og grænt ljós frá honum. \nÁ leið upp þegar komið er í 1100 m hæð metur yfirfararstjóri göngumenn og getu þeirra til aðhalda áfram. Oft kemur fyrir að fólki er snúið við vegna getu\, þreytu eða veikinda og þá er það gert þarna áður en fólk fer í línur. Því er þá fylgt niður af fararstjóra. Að öllu jöfnu þarf fólk sem er hraust ekki að hafa áhyggjur að þynnra lofti í þessum hæðum\, nema það sé mjög viðkvæmt fyrir því\, það er yfirleitt ekki farið að hafa veruleg áhrif fyrr en í yfir 3000m hæð. \nEftir göngu dagsins er kjörið að gleðjast enn frekar saman eftir afrek dagsins og borða saman góða máltíð enda flestir orðnir hungraðir í góðan mat. \nSvo mælum við með góðri hvíld eftir afrek dagsins! \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hvannadalshnúk kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \nHæð: 2110 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 13-15 klst \nGönguhækkun: 2000 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBröttför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Sandfelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nErfiðleikastig: 4 skór \nVerð: 39.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 15.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15.mars 2024 \nkt: 531184-0849 \n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 1.febrúar og fram til 21.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars \nHaldinn verður fundur með göngumönnum fyrir ferðina. \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér \n                        \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/hvannadalshnukur-2110-m-20-april/
CATEGORIES:Fjöllin okkar,Jöklaferðir,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9921-3-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240323
DTEND;VALUE=DATE:20240324
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20231106T141941Z
LAST-MODIFIED:20231108T133712Z
UID:7817-1711152000-1711238399@fjallavinir.is
SUMMARY:Snæfellsjökull 1446 m.  23. mars
DESCRIPTION:Snæfellsjökull\nmars 23\nSnæfellsjökull 1446 m.\nmars 23 kl.07:00 – 19:00\nHægt er að gista á Arnarstapa  og njóta góðra veitinga og lúxus gistingar dagana 22.-23. Mars. \nTilboð fyrir þáttakendur: \nGisting í 2 manna herbergi með morgunverði í tvær nætur 50.000.00 kr. \nEins manns herbergi á kr.  21.000\,00kr \nÞriggja rétta Kvöldverður er á 8.900\,00kr per mann\, nesti kr.2.900\,00 kr per mann \nBókanir fyrir gistingu skal senda á  booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum. \nHægt er að skoða nánar um gistinguna á  www.arnarstapicenter.is \n  \nSnæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst\, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin\,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er. \n  \nSérstakur jöklabúnaður. \nÍ þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað\, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara. \n  \nHæð: 1446 m \nGönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum \nGöngutími: 6-8 klst \nGönguhækkun: 1200 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \n  \nBrottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \nErfiðleikastig: 3 skór \nVerð: 17.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 7.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 1.mars 2024 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \n  \nÞegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt\, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá  2.febrúar og fram til 30.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars. \n  \n  \nKlæðnaður – alls engar bómullarflíkur ! \nInnst klæða.  Ullarnærbolur\, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir. \nMillilag.  Göngubuxur eða flísbuxur\, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa\, primaloft jakki eða dúnjakki. \nYsta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun\, bæði buxur og jakki. \n  \nAnnar mikilvægur klæðnaður. \nHúfa\, höfuðklútar\, auka vettlingar\, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir\, vatnsheldir vettlingar\, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum. \n  \nAnnar búnaður. \n\nMyndavél\nSkíðagleraugu eða öflug sólgleraugu\nGöngustafir\, stillanlegir\nSessa\nSólarvörn og það þarf öfluga vörn\nSólarvarasalvi er mikilvægur (margir brenna illilega á vörum á jöklum)\nSjúkravörur s.s. íbúfen\, panodil\, hælsærisplástrar\, blöðruplástrar\, plástrar\, þrúgursykurtöflur\nAsmalyf mikilvæg fyrir þá sem þurfa\nOmnitape (íþróttateip 4-5 cm á breidd) Vinir geta deilt rúllu.\n\n  \nGóður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður\, auk nestis og nauðsynjavara\, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega. \nVið mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað\, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum\, sviðasultusneið\, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu\, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf. \nÞá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur\, möndlur\, rúsínur\, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1\,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum. \n        \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/snaefellsjokull-1446-m-mars-23-kl-0700-1900/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Jöklaferðir,Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2022/11/3G4A2409-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220305
DTEND;VALUE=DATE:20220306
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20211206T225820Z
LAST-MODIFIED:20220104T124659Z
UID:5295-1646438400-1646524799@fjallavinir.is
SUMMARY:Námskeið í vetrarfjallamennsku
DESCRIPTION:Laugardaginn 5.febrúar  munu Fjallavinir standa fyrir námskeiði í vetrarfjallamennsku. Þetta námskeið er hugsað fyrir fjallgöngufólk sem vill bæta þekkingu sína og verða öruggari með notkun á þessum búnaði. Þeir sem huga að göngu á jökla ættu sérstaklega að tryggja sér sæti. Þetta er bæði fróðlegt og skemmtilegt námskeið en fyrst og fremst afar gagnlegt. \nFarið verður yfir: \n\nTilheyrandi jöklabúnað\, axir og brodda\, og hvenær viðeigandi er að nota þennan búnað.\nBroddanotkun\, muninn á Esju-broddum og jöklabroddum og hvernig maður beitir þeim.\nVerklega göngutækni í snjó\, hjarni og ís.\nNotkun á ísexi þar sem við æfum ísaxarbremsu í mismunandi stellingum og hvernig skal beita henni í mismunandi aðstæðum.\nLeiðarval\nFjallað um snjóflóð og hvernig hægt er að forðast þau\, og eins þörfina á því að afla sér þekkingar á snjóflóðafræðum ef ætlunin er að ferðast í þannig landslagi.\nRætt um ferðahegðun og ákvarðanatöku\, “BUDDY” kerfi og veðurþáttinn.\n\nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina 0111-26-501696 og kt 531184-0849.\nVerð fyrir þetta námskeið er 15.000\,-kr. Fjöldi takmarkast við 20 manns
URL:https://fjallavinir.is/event/namsekeid-i-vetrarfjallamennsku-2/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/12/Vetrarfjallamennska.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220206
DTSTAMP:20260516T153041
CREATED:20211206T224235Z
LAST-MODIFIED:20220104T124926Z
UID:5283-1644019200-1644105599@fjallavinir.is
SUMMARY:Námskeið í vetrarfjallamennsku
DESCRIPTION:Laugardaginn 5.febrúar  munu Fjallavinir standa fyrir námskeiði í vetrarfjallamennsku. Þetta námskeið er hugsað fyrir fjallgöngufólk sem vill bæta þekkingu sína og verða öruggari með notkun á þessum búnaði. Þeir sem huga að göngu á jökla ættu sérstaklega að tryggja sér sæti. Þetta er bæði fróðlegt og skemmtilegt námskeið en fyrst og fremst afar gagnlegt. \nFarið verður yfir: \n\nTilheyrandi jöklabúnað\, axir og brodda\, og hvenær viðeigandi er að nota þennan búnað.\nBroddanotkun\, muninn á Esju-broddum og jöklabroddum og hvernig maður beitir þeim.\nVerklega göngutækni í snjó\, hjarni og ís.\nNotkun á ísexi þar sem við æfum ísaxarbremsu í mismunandi stellingum og hvernig skal beita henni í mismunandi aðstæðum.\nLeiðarval\nFjallað um snjóflóð og hvernig hægt er að forðast þau\, og eins þörfina á því að afla sér þekkingar á snjóflóðafræðum ef ætlunin er að ferðast í þannig landslagi.\nRætt um ferðahegðun og ákvarðanatöku\, “BUDDY” kerfi og veðurþáttinn.\n\nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina 0111-26-501696 og kt 531184-0849.\nVerð fyrir þetta námskeið er 15.000\,-kr. Fjöldi takmarkast við 20 manns\n \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/namsekeid-i-vetrarfjallamennsku/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/12/Vetrarfjallamennska.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR