BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.18.4//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20260101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270130T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270828T170000
DTSTAMP:20261024T174127Z
CREATED:20261022T003802Z
LAST-MODIFIED:20261024T174127Z
UID:10648-1801296000-1819472400@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2027
DESCRIPTION:Nýtt gönguár okkar Fjallavina hefst þann 30.janúar 2027\, og eins og alltaf þá hefjum við gönguárið á styttri og léttari göngum meðan skammdegið liggur enn yfir okkur\, en með hækkandi sól göngum við bæði lengra og hærra! \nEn\, á nýju ári munum við bæta við mjög spennandi göngum inn í verkefnið Fjöllin okkar 2027. Þeir sem mæta vel í upphafi verkefnis munu rúlla upp göngum sumarsins. Þú getur það og um leið hækkað heilsustigið\, líkamlega og andlega. Svo endilega skelltu þér með okkur og njóttu heilsueflingar úti í náttúrunni. Fátt er betra en það. \nVið verðum með fullt af æfingagöngum til enn frekari styrkingar! \nRegluleg hreyfing og þá sérstaklega utandyra í okkar fallegu og einstöku náttúru er með betri heilsueflingu sem hægt er að hugsa sér því þar nærum við bæði líkama og sál. Við aukum þol og styrk í skemmtilegum og hvetjandi félagskap! Njótum þess að vera saman og takast á við allskonar verkefni og áskoranir sem náttúruöflin bjóða upp á. Það er lítil heilsuefling fólgin í því að sitja inni og bíða eftir góðu veðri\, nýtum hvert tækifæri sem gefst og förum út og klæðum okkur samkvæmt því sem þetta dásamlega land okkar hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttar gönguleiðir sem gaman er að upplifa eru innan seilingar. \nVerkefnið er stútfullt af spennandi göngum þar sem við göngum heilsuna upp til að geta tekist á við lengri og meira krefjandi göngur síðar\, en ekki síður til að leggja inn í eigin heilsubanka. \nÞetta árið stefnum við á eftirfarandi göngur: \n30.janúar  laugardagur Mosfell \n4.febrúar   fimmtudagur   Helgafell Mosó \n6.febrúar   laugardagur    Grímannsfell frá Bringum \n11.febrúar fimmtudagur   Úlfarsfell \n13.febrúar laugardagur     Þverfell Mosó \n18.febrúar fimmtudagur   Úlfarsfell \n20.febrúar laugardagur     Múlafjall  \n25.febrúar fimmtudagur   Helgafell Hafnarfirði \n 6.mars   laugardagur    Meðalfell \n9.mars   þriðjudagur     Úlfarsfell \n11.mars  fimmtudagur  Úlfarsfell \n13.mars laugardagur    Hafnarfjall veljum tind er líður að. \n18.mars fimmtudagur  Þverfellshorn \n27.mars laugardagur   Óvissuferð á láglendi \n 3.apríl laugardagur    Móskörð Trana \n10.apríl laugardagur  Haukafjöll\, Þríhnúkar og Stardalshnúkar \n17.apríl laugardagur   Reyðarbarmur sá litli og stóri \n24.apríl laugardagur Miðfell og Dagmálafell \n 1.maí      laugardagur     Húsmúli Marardalur Nesjaskyggni \n8.maí      laugardagur    Kvígindisfell \n15. maí   laugardagur    Vestmannaeyjar\, helstu tindar* \n29.maí    laugardagur    Skarðshyrna \n 5. júní laugardagur      Skessuhorn \n12. júní laugardagur    Úlfljótsvatn\, Álútur-Reykjadalur \n19. júní laugardagur   Kjölur \n26.júní laugardagur   Löðmundur og Rauðufossar* \n 10.júlí laugardagur    Lómagnúpur* \n11. júlí sunnudagur    Kristínartindar* \n 4.ágúst     miðvikudagur  Syðstasúla \n21.ágúst   laugardagur     Kerlingarfjöll* \n*Vegna lengri dagsferða eins og t.d til Vestmannaeyja\, á Lómagnúp\, Kristínartinda\, Kjöl\, Löðmund og Kerlingafjöll má reikna með auka kostnaði vegna ferju eða rútu og eins gistikostnaði þegar það á við. Annars er líka möguleiki á að gera ráðstafanir með bíla innan hópsins og munum við leita bestu lausnar með það þegar nær dregur. \nVið minnum á að hægt er að fá styrki ýmist hjá atvinnurekendum og verkalýðsfélögum vegna heilsueflingar. \nAllir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum. Að auki fá allir páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir heppna þátttakendur. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nKveðja Þórður og Fríða \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2027/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/07/458415601_849658603811316_6431411625729767784_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270615
DTEND;VALUE=DATE:20270616
DTSTAMP:20261113T092632Z
CREATED:20261113T092632Z
LAST-MODIFIED:20261113T092632Z
UID:10769-1813017600-1813103999@fjallavinir.is
SUMMARY:Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár!
DESCRIPTION:Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár! \nAf því tilefni bjóðum við sérstakt verð í eina af okkar skemmtilegustu vorgöngum sem er yfir Leggjabrjót þann 15. júní 2027 og það er kvöldganga! \nJá\, við hófum göngur sem Fjallavinir haustið 2011 og höfum frá þeim tíma gengið vítt og breitt um landið okkar fallega og farið oftar en oft á mörg fjöll og fell. Þetta höfum við gert með ykkur\, okkar góðu og traustu fjallavinum og höfum þannig lagt inn í heilsubankann\, bæði andlega og líkamlega. Það er sannarlega mikil gæfa að hafa góða heilsu og enn mikilvægara að viðhalda henni. Heilsubankinn er mikilvægasti bankinn og þar þurfa allir að eiga innistæðu fyrir komandi ár. Að geta gengið til fjalla er algjörlega frábært\, að finna orkuna magnast\, vöðvana styrkjast\, þolið aukast\, kyrrðina\, fuglasönginn\, vindinn og náttúruna sem umvefur okkur er algjörlega einstök upplifun sem allir ættu að þekkja! \nOg við erum alls ekkert á því að hætta\, því lofum við! \nVerðið í þessa einstöku göngu verður 12.000\,- krónur en eftir göngu bjóðum við upp á veitingar og afmælisköku! \nGG sport mun einnig gefa vinning í tilefni af afmælis okkar! \n  \nKvöldganga (þriðjudagur) – hressing í lok göngu! \nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16-18 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6-7 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga en löng. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nVið munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk. \nHæð: 490\nGönguvegalengd: 16-18 km\nGöngutími: 6-7 klst\nGönguhækkun: 350 m\nBrottför: 16:30 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 12.000\,00\,-kr með rútu\nStaðfestingargjald: 6.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
URL:https://fjallavinir.is/event/vid-fjallavinir-fognum-16-ara-afmaeli-i-ar/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/105A9650-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270711
DTEND;VALUE=DATE:20270712
DTSTAMP:20261113T154709Z
CREATED:20261113T154709Z
LAST-MODIFIED:20261113T154709Z
UID:10778-1815264000-1815350399@fjallavinir.is
SUMMARY:Kristínartindar
DESCRIPTION:Kristínartindar \nKristínartinda sem eru 1126 metra háir og rísa upp af Skaftafellsheiði í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Tindarnir eru reyndar tveir\, eins og nafnið bendir til\, og er sá lægri 979 m en sá hærri 1126 m. Afar gott útsýni er af Kristínartindum yfir Morsárdal\, Kjós\, Skaftafellsjökuls og til Hrútfjallstinda og Hvannadalshnúks. Leiðin liggur um hina kjarri vöxnu Skaftafellsheiði\, áfram upp fyrir Skerhól\, upp á Fremrihnauk og Nyrðrihnauk\, um Gemludal og síðan áfram upp um brattar hlíðar þegar ofar dregur. Áætluð vegalengd er um 16-17 km  og hækkun á göngu er rúmlega 1000 metrar.   \nGera verður ráð fyrir að þessi ganga taki allan daginn! \nVerð:  17.900\,- kr \nStaðfestingargjald: 7.900\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15. júní 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSjá skilmála hér \n Hæð: 1126 \nGönguvegalengd: 17 km \nGöngutími: 8 klst \nGönguhækkun: 1000 m \nBrottför: Mæting kl. 09:00 við skálann í Skattafelli póstur kemur þegar nær dregur að göngu. \nVið viljum benda á\, og í raun mæla með að fólk gisti t.d á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur eða í næsta nágrenni svo stuttur akstur sé að upphafsstað göngu. Frá Kirkjubæjarklaustri er aðeins tæplega 1 klst akstur að Lómagnúpi. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess. \n  \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/kristinartindar/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2026/11/D27A8032-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270725
DTEND;VALUE=DATE:20270726
DTSTAMP:20261111T125741Z
CREATED:20261111T125741Z
LAST-MODIFIED:20261111T125741Z
UID:10749-1816473600-1816559999@fjallavinir.is
SUMMARY:Kerlingafjöll 25.júlí
DESCRIPTION:Kerlingafjöll 25.júlí  – Sunnudagur.\n\n\nÞetta er óneitanlega ein af fallegustu gönguleiðum landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi. \nVið hefjum gönguna í um 1000 m hæð og stefnum upp á Fannborgu. Þetta er auðveld leið og á allra færi og má reikna með að taki 1-1\,5 klst. Þaðan höldum við áfram í lækkun og hækkun á víxl upp á Snækoll í 1480 m og svo áfram upp á Snót en sá spotti frá Fannborgu tekur aðra 1\,5 klst. Hveradalir verða síðan skoðaðir á leið okkar til baka þegar komið er aftur í rútuna. \nEftir göngu er ætlunin að skella sér í Hálendisböðin og er það innifalið í verðinu.. Brottför frá Kerlingafjöllum er áætlað kl 19;00 \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1480 m\nGönguvegalengd: 7 km\nGöngutími: 5 klst\nGönguhækkun:  frá 1050 m upp í tæplega 1500 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 34.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 1. ágúst 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/kerlingafjoll-25-juli/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2026/11/D27A8772-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270807
DTEND;VALUE=DATE:20270808
DTSTAMP:20261111T114840Z
CREATED:20261111T114840Z
LAST-MODIFIED:20261111T114840Z
UID:10740-1817596800-1817683199@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  7. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  7. ágúst\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-7-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-3-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20270828
DTEND;VALUE=DATE:20270829
DTSTAMP:20261111T114403Z
CREATED:20261111T114403Z
LAST-MODIFIED:20261111T114403Z
UID:10735-1819411200-1819497599@fjallavinir.is
SUMMARY:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  28. ágúst
DESCRIPTION:Grænihryggur\, Skalli\, Laugar  28. ágúst\nÞetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins\, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.\n\n\nLeið A \nGengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst\, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður. \nLeið B \nSama leið gengin inn að Grænahrygg\, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti. \n  \nVið áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs. \nHæð:  1100 m\nGönguvegalengd: 16-20 km\nGöngutími: 8-11 klst\nGönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð\nBröttför: Frá Grjóthálsi með rútu \nErfiðleikastig: 2-3 \nVerð: 37.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 15.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir:  1.07 2027 \nkt: 531184-0849\n0111-26-501696 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
URL:https://fjallavinir.is/event/graenihryggur-skalli-laugar-28-agust/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2023/11/g-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270909T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20271113T170000
DTSTAMP:20261111T131513Z
CREATED:20261111T131513Z
LAST-MODIFIED:20261111T131513Z
UID:10766-1820511000-1826125200@fjallavinir.is
SUMMARY:Esjan haust með Úllanum 2027
DESCRIPTION:Esjan haust með Úllanum 2027\nGöngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi \nHaustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum. \nÞað verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið\, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni\, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum.. \nAllar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. \nAllir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút eins og tíðkast hefur\, en nú bjóðum við upp á þrjá liti sem eru að slá í gegn og eru árgerð 2027. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar. \nVið áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna. \nHlökkum til að sjá ykkur! \nVerð í verkefnið er 39.900\,-  Staðfestingargjald er 20.000\,- krónur. \nGreiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina\, \n0111-26-501696 og kt. 531184-0849\, Esjan haustið 2024 \nSkilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér. \nNánar síðar!
URL:https://fjallavinir.is/event/esjan-haust-med-ullanum-2027/
CATEGORIES:Esjan,Fjöllin okkar,Haustgöngur,Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2025/10/3F5A7236-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR