BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fjallavinir - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://fjallavinir.is
X-WR-CALDESC:Events for Fjallavinir
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210619
DTEND;VALUE=DATE:20210620
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210106T122832Z
LAST-MODIFIED:20210609T131302Z
UID:3470-1624060800-1624147199@fjallavinir.is
SUMMARY:Þórisjökull 1329 m
DESCRIPTION:  \nÞórisjökull  – Sólstöðuganga! \nGanga á Þórisjökul er nokkuð krefjandi. Hún hefst frá fjallvegi á Kaldadal og liggur að jökli um nokkuð slétta mela en síðan upp allbrattar skriður. Af fjallsbrúninni blasir svo jökullinn við nokkru austar. Leiðin upp að jöklinum er nokkuð grýtt í upphafi en lagast svo er nær dregur að jökli og uppgangan á jökuljaðarinn er auðveld. Gangan á jöklinum sjálfum er þægileg og frekar auðveld. Ekki er þörf á línu fyrr en komið er á hábunguna. \nHæð: 1329 m \nGönguvegalengd: 17 km \nGöngutími: 7-8 klst. \nGönguhækkun: 790 m \nSérstakur útbúnaður: Esju-brodda og að auki jöklabúnað; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBrottför: Frá bílastæðinu við Þingvallaveg undir Helgafelli kl: 17:00 eða 17:30 \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu og þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.  \n  \nErfiðleikastig: 3-4 skór \nVerð: 11.000\,- kr \nStaðfestigngargjald: 7.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 15.júní 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/thorisjokull-1329-m/
CATEGORIES:Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/64919881_2481379081912626_7170677479558873088_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210612T070000
DTEND;TZID=UTC:20210612T230000
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210120T182124Z
LAST-MODIFIED:20210609T132300Z
UID:3570-1623481200-1623538800@fjallavinir.is
SUMMARY:Fimmvörðuháls
DESCRIPTION:Leiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum\, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls\, yfir í Goðaland til Þórsmerkur. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu og mögnuðustu gönguleið á Íslandi en e.t.v. þá viðsjárverðustu sakir snöggra breytinga sem geta orðið á veðri á hvaða árstíma sem er. Það getur verið blítt og stillt veður á láglendi en þegar komið er upp á háhálsinn getur skollið á svarta þoka svo að ekki sér handa skil. \nGönguleiðin er ægifagur og munum við í fyrsta hluta göngunnar ganga með fram Skógá en fjöldinn allur af stórkostlegum fossum mun blasa við okkur á þeirri leið og eðlilega stöldrum við við þá. Stefnan verður þá tekin á Baldvinsskála en eftir það tekur við lækkun og hækkun á víxl þar til við komum að Magna og Móða. Eftir það liggur leiðin niður á við um stórkostlega náttúru sem orð fá varla lýst og sjón sannarlega sögu ríkari. \nGangan hefst í um 25 m hæð með snarpri hækkun í tröppum í upphafi göngu við Skógarfoss en síðan er þægileg og aflíðandi stöðug hækkun næstu 15 km upp í rétt rúma 1000 m. Eftir það tekur við lækkun og hækkun á víxl\, en búast má við uppsafnaðri hækkun um 1400 m. Þetta er löng og krefjandi ganga sem kallar á gott gönguþol. \nRúta mun aka okkur að Skógum og sækja okkur inn að Strákagili eftir göngu. \nUpplýsingar um útbúnað og nesti verður sent þátttakendum \nHæð: 1040 m\nGönguvegalengd: 25 km\nGöngutími: 9-10 klst\nBröttför: Frá Grjóthálsi \nErfiðleikastig: 3 \nVerð: 21.000\,- kr með rútu\nStaðfestingargjald: 11.000\,-kr\nFerð fullgreidd fyrir: 22.maí 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696 \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fimmvorduhals/
CATEGORIES:Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A4784-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210610T170000
DTEND;TZID=UTC:20210610T235900
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210120T181352Z
LAST-MODIFIED:20210602T183346Z
UID:3565-1623344400-1623369540@fjallavinir.is
SUMMARY:Leggjabrjótur - Kvöldganga – happdrætti\, gjafir og gleði!
DESCRIPTION:kvöldganga – happdrætti og hressing í lok göngu! \n  \nLeggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng\, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum\, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði\, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm\, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta\, en ekki þjóta. \nAllir þátttakendur í göngunni fara sjálfkrafa í pott og munum við draga út heppna þátttakendur sem hreppa veglega vinninga. Fyrsti vinningur er glæsilegur grillpakki frá Réttinum að verðmæti 28.000\,-króna. Fleiri vinningar verða einnig dregnir út fyrir heppna þáttakendur. Við munum  svo fagna göngulokum með ykkur\, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk inni í Botnsdal. \n  \nHæð: 490 \nGönguvegalengd: 16 km  – 18 km  \nGöngutími: 6/7 klst \nGönguhækkun: 350 m \nBrottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg \n  \nErfiðleikastig: 2  (hér viljum við tákn t.d. skó ) \nVerð: 10.500\,-kr með rútu \nStaðfestingargjald: 5.000\,-kr \nFerð fullgreidd fyrir: 20.maí 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/leggjabrjotur/
CATEGORIES:Sumarferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A0768-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20210530
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210106T122709Z
LAST-MODIFIED:20210309T155231Z
UID:3468-1622246400-1622332799@fjallavinir.is
SUMMARY:Birnudalstindur 1326 m
DESCRIPTION:Birnudalstindur er 1326 m hár\, glæsilegur tindur í Kálfafellsfjöllum í Suðursveit\, leiðin um þessa fjallasali er sannarlega stórkostleg og gleymist seint. Tindurinn er sunnan við jökuljaðarinn og austan Kálfafellsdals. Gönguleiðin er í stórbrotnu landslagi og útsýnið er hreint út sagt magnað í allar áttir meðal annars til Öræfajökuls\, Þverártindseggja og víðar. \nGangan sjálf er frekar krefjandi\, eða um 18 km og  gæti tekið okkur 8-10 klst. sem eðlilega fer eftir aðstæðum og pásum og hversu langt við náum að aka inn eftir Staðardalnum. \nHæð: 1326 m \nGönguvegalengd: 18 km \nGöngutími: 8-10 klst \nGönguhækkun: 1800 m \nBrottför: milli 7-9 \nGisting: Í Suðursveit \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu og þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.  \n  \nErfiðleikastig: 4-5 skór \nVerð: 21.000\,- kr \nStaðfestingargjald: 9.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 8.maí 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/birnudalstindur-1326-m/
CATEGORIES:Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/02/Birnudalstindur2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210508
DTEND;VALUE=DATE:20210509
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210106T122622Z
LAST-MODIFIED:20210309T155148Z
UID:3466-1620432000-1620518399@fjallavinir.is
SUMMARY:Hrútfjallstindar 1756 m
DESCRIPTION:Hér er um langa og krefjandi göngu að ræða en jafnframt eina af mögnuðustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðu-austurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn og Esjufjöll! \nLagt verður af stað í gönguna á bilinu 03:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna\, en hægt er að gista á Hofi og Svínafelli og auðvitað víðar. Á Svínafelli er hægt að gista í tjöldum en þar er góð aðstaða fyrir tjöld\, tjaldvagna eða hvers konar aftaníhýbýli. Þar er einnig góð eldunaraðstaða\, stór matsalur\, kæliskápar\, sturtur og wc. \nGönguleiðin. Leiðin er nokkuð brött og eins er nokkuð um lækkanir á leiðinni og þess vegna telst hún erfiðari en ganga á Hvannadalshnúk. Við munum hefja gönguna við Hafrafell og ganga upp bratta brekkuna og inn að Sveltisskarði. Efrimenn og Fremrimenn blasa við okkur ásamt stórkostlegu útsýni yfir einstaka náttúru. Hér er um að ræða eina af skemmtilegustu gönguleiðum landsins\, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðurátt\, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn\, Esjufjöll og víðar.  Hrútfjallstindar eru fjórir; Hátindur 1875 m\, Vesturtindur\, Suðurtindur og Miðtindur og munum við stefna á Hátind. Reikna með 24-25 km og 15 tíma göngu og að auki uppsafnaðri hækkun upp á 2200 m.  \n  \nHæð: 1875 m \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 15-17 klst \nGönguhækkun: 2100 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBrottför: Á bilinu 03:00-05:00 frá Hafrafelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.  \nErfiðleikastig: 5 skór \nVerð: 25.000\,-kr \nStaðfestingargjald: 10.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 17.apríl 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696 \n\n			\n		\n	\n		\n 
URL:https://fjallavinir.is/event/hrutfjallstindar-1756-m/
CATEGORIES:Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/10285548_741471879236697_2756270933134335268_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210501
DTEND;VALUE=DATE:20210502
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210106T122432Z
LAST-MODIFIED:20210309T172638Z
UID:3464-1619827200-1619913599@fjallavinir.is
SUMMARY:Hvannadalshnúkur 2110 m
DESCRIPTION:Ganga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands!  \n  \nFerðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. \nVið munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins 03.júní. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur. Því er mikilvægt að vera kominn austur snemma á föstudeginum og geta hvílt sig\, sofið og undirbúið nesti tímanlega. Varðandi hvíld/svefn er rétt að benda á þarna munum við óhjákvæmilega heyra jarm í rollum nánast við tjalddyrnar/húsdyrnar\, svo rétt er að vera með eyrnartappa til að reyna að útloka þá truflun\, því þó við séum nokkuð vön umferðarnið borgarinnar þá er ekki víst að við venjumst þessum sveitatónleikum strax. Mikilvægt er að borða góðan morgunmat fyrir gönguna\, og mælum við með hafragraut\, banana og ávaxtasafa eða álíka. \nVið upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega skv fyrirmælum og klárir í bátana\, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Rvk. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er\, kaldstart er gott\, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluvert. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar án þess að þurfa að taka af sér bakpokann.  \n  \nVið göngum svo af stað upp frekar brattar brekkur Sandfellsheiði\, á einstigi og þar munum við fara fetið. Fyrsta stopp verður við læk í um 350 m hæð og þar rennur ótrúlega gott og ferskt fjallavatnið og þar skal fyllt á brúsa. Annað stopp verður í um 700 m og þar tökum við stutt nestisstopp. Þaðan er haldið upp á jökulröndina\,  þriðja stopp er því í um 1100 m hæð. Þá er kominn matartími\, og að honum loknum verður hópunum skipt upp í ca 7- 8 manna hópa. Þar setja menn á sig göngubelti og eru svo festir í línu. Eftir það gengur hver hópur sem einn maður/kona og hagar sér sem slíkur! \nLínustjórar munu þá fara yfir reglur\, öryggismál og hegðun göngumanna í línum\, en mikilvægt er að göngumenn fari í einu og öllu eftir þessum fyrirmælum. Þá er gengið áfram upp eftir langri brekku með nokkuð jöfnum og dágóðum halla næstu ca 4 km\, (þetta er brekkan endalausa – hér reynir á þolinmæðina) þar til við náum ca 1800 m hæð og komin upp á öskjubrúnina. Þá er stutt nestisstopp og þar er gjarnan reist sérstakt jökla-wc. Ef aðstæður leyfa er hægt að losa sig úr línu\, annars ekki. Svo er haldið af stað yfir öskju Öræfajökuls og að rótum Hvannadalshnjúks\, ca 2 km ganga\,  og þá er síðasta stopp fyrir lokahnykkinn en þá erum við í ca 2000 m hæð. Þarna setjum við á okkur broddana\, mundum ísöxina og göngum upp síðasta legginn. Hér er komið að bröttustu brekkunni sem jafnframt er vel krefjandi og víða sprungin. Hér þarf að fara með gát og nota ísöxina í hverju skrefi. Þetta er ekki nema um 200 m hækkun og þá stutt eftir á toppinn. Við munum ekki dvelja lengi á toppnum en allt ræðst það eftir aðstæðum og veðri. Síðan er haldið niður aftur\, broddar teknir af við bækistöðvarnar og sama  leið haldin til baka\, með tilheyrandi stoppum. Úr línum losnar fólk svo við jökulröndina og þaðan er haldið áfram niður\, en mikilvægt er að halda hópinn alla leið. \n  \nRétt er að benda á að þó gangan sjálf sé ekki sú erfiðasta\, því hægt er farið\, þá er hún afar löng og krefst verulegs úthalds. Leiðin niður getur tekið verulega á. Talið er að þetta sé lengsta dagsganga í Evrópu\, með mestri hækkun á einum degi\, athugið það! Þegar á toppinn er komið erum við bara hálfnuð og  sama vegalengd eftir niðurá við. Hún reynist mörgum erfiðari en uppleiðin því þá er þreyta farin að segja til sín\, lærin búin og hné orðin aum. Snjóbráð er oft orðið mikið og færðin því þung. Þetta má ekki vanmeta. Þess vegna er nauðsynlegt að vera kominn í verulega gott gönguform og mælum við með reglulegum gönguferðum á fjöll. Gott er t.d. að prófa sig með því að fara tvisvar sinnum upp Esjuna í röð\,  en þá er hæðinni tæplega náð og ca tæpum helming göngutímans og svo meta sjálfan sig út frá því. Ef fólk er óvisst um líkamlegt ástand sitt (hjarta- og blóðþrýsting) er mikilvægt að fá mat læknis og grænt ljós frá honum. \nÁ leið upp þegar komið er í 1100 m hæð metur yfirfararstjóri göngumenn og getu þeirra til aðhalda áfram. Oft kemur fyrir að fólki er snúið við vegna getu\, þreytu eða veikinda og þá er það gert þarna áður en fólk fer í línur. Því er þá fylgt niður af fararstjóra. Að öllu jöfnu þarf fólk sem er hraust ekki að hafa áhyggjur að þynnra lofti í þessum hæðum\, nema það sé mjög viðkvæmt fyrir því\, það er yfirleitt ekki farið að hafa veruleg áhrif fyrr en í yfir 3000m hæð. \nEftir göngu dagsins er kjörið að gleðjast enn frekar saman eftir afrek dagsins og borða saman góða máltíð enda flestir orðnir hungraðir í góðan mat.  \n  \nSvo mælum við með góðri hvíld eftir afrek dagsins! \n  \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hvannadalshnúk kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.  \nHæð: 2110 m \n  \nGönguvegalengd: 25 km \nGöngutími: 12-15 klst \nGönguhækkun: 2000 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \nBröttför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Sandfelli \nGisting: Á eigin vegum í Öræfum \nErfiðleikastig: 4 skór  \nVerð: 25.000\,- kr \nStaðfestingargjald: 10.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 10.apríl 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696
URL:https://fjallavinir.is/event/hvannadalshnukur-2110-m/
CATEGORIES:Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/482524_545268345523719_498451558_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210327T070000
DTEND;TZID=UTC:20210327T190000
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210106T111201Z
LAST-MODIFIED:20210309T152302Z
UID:3456-1616828400-1616871600@fjallavinir.is
SUMMARY:Snæfellsjökull 1446 m
DESCRIPTION:Snæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst\, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin\,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er. \n  \nSérstakur jöklabúnaður. \nÍ þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað\, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara. \n  \nHæð: 1446 m \nGönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum \nGöngutími: 6-8 klst \nGönguhækkun: 1200 m \nSérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi\, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum. \n  \nBrottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði. \nBreytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu\, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.  \n  \nErfiðleikastig: 3 skór  \nVerð: 13.000\,- kr \nStaðfestingargjald: 6.000\,- kr \nFerð fullgreidd fyrir: 11.mars 2021 \nkt. 531184-0849\n0111-26-501696 \n  \nKlæðnaður – alls engar bómullarflíkur ! \nInnst klæða.  Ullarnærbolur\, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar „boxer“ ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir. \nMillilag.  Göngubuxur eða flísbuxur\, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa\, primaloft jakki eða dúnjakki. \nYsta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun\, bæði buxur og jakki. \n  \nAnnar mikilvægur klæðnaður. \nHúfa\, höfuðklútar\, auka vettlingar\, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir\, vatnsheldir vettlingar\, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum. \n  \nAnnar búnaður. \n\nMyndavél\nSkíðagleraugu eða öflug sólgleraugu\nGöngustafir\, stillanlegir\nSessa\nSólarvörn og það þarf öfluga vörn\nSólarvarasalvi er mikilvægur (margir brenna illilega á vörum á jöklum)\nSjúkravörur s.s. íbúfen\, panodil\, hælsærisplástrar\, blöðruplástrar\, plástrar\, þrúgursykurtöflur \nAsmalyf mikilvæg fyrir þá sem þurfa \nOmnitape (íþróttateip 4-5 cm á breidd) Vinir geta deilt rúllu.\n\n  \nGóður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður\, auk nestis og nauðsynjavara\, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega. \nVið mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað\, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum\, sviðasultusneið\, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu\, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf. \nÞá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur\, möndlur\, rúsínur\, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1\,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum.
URL:https://fjallavinir.is/event/snaefellsjokull-1446-m/
CATEGORIES:Jöklaferðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/56380162_2345380608845808_4049481667033694208_o.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210123T090000
DTEND;TZID=UTC:20210626T170000
DTSTAMP:20260421T112812
CREATED:20210119T183835Z
LAST-MODIFIED:20210305T095131Z
UID:3539-1611392400-1624726800@fjallavinir.is
SUMMARY:Fjöllin okkar 2021
DESCRIPTION:Heilsuefling á fjöllum hefst þann 23.janúar 2021 og stendur til 26. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn. Hraði við allra hæfi. Gengið verður alla fimmtudaga frá 4.febrúar kl. 18:00 upp að Steini og fram til 1.apríl. Einnig förum við á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars og fram til 12.apríl. Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Þetta er verkefni fyrir alla sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. \nAllir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir Scarpa Mojito gönguskó frá Fjallakofanum. Einnig drögum við út heppinn þátttakanda sem fær grillpakka frá Réttinum að verðmæti 25.000\,-kr. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram. \nVerð verkefnis er 57.000\,-kr. Staðfestingargjald er 21.000\,-kr.\nGanga þarf frá greiðslu eigi síðar en 10.janúar en semja má um greiðslufyrirkomulag.\nGreiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849 \n23.jan Helgafell Mosfellsbæ\n30.jan Helgafell Hafnarfirði\n13.feb Geitafell\n14.feb Keilir\n20.feb Kjölur\n27.feb Meðalfell\n13.mars Þyrill – Guðlaug eftir göngu\n20.mars Múlafjall\n3.apríl Mælifell\n17.apríl Síldarmannagötur\n24.apríl Jósefsdalshringur\n8.maí Hrafnabjörg\n15.maí Skessuhorn\n22.maí Kristínartindar\n5.júní Rjúpnafell – Tindfjöll\n26.júní Rauðufossafjöll og Krakatindur \n 
URL:https://fjallavinir.is/event/fjollin-okkar-2021/
CATEGORIES:Fjöllin okkar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fjallavinir.is/wp-content/uploads/2021/01/3G4A7460-2-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%9E%C3%B3r%C3%B0ur Ingi Marelsson":MAILTO:thordur@fjallavinir.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR