Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fjöllin okkar 2021

janúar 23, 2021 kl.09:00 - júní 26, 2021 kl.17:00

Frítt

Heilsuefling á fjöllum hefst þann 23.janúar 2021 og stendur til 26. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn. Hraði við allra hæfi. Gengið verður alla fimmtudaga frá 4.febrúar kl. 18:00 upp að Steini og fram til 1.apríl. Einnig förum við á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars og fram til 12.apríl. Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Þetta er verkefni fyrir alla sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap.

Allir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi. Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir Scarpa Mojito gönguskó frá Fjallakofanum. Einnig drögum við út heppinn þátttakanda sem fær grillpakka frá Réttinum að verðmæti 25.000,-kr. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.

Verð verkefnis er 57.000,-kr. Staðfestingargjald er 21.000,-kr.
Ganga þarf frá greiðslu eigi síðar en 10.janúar en semja má um greiðslufyrirkomulag.
Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

23.jan Helgafell Mosfellsbæ
30.jan Helgafell Hafnarfirði
13.feb Geitafell
14.feb Keilir
20.feb Kjölur
27.feb Meðalfell
13.mars Þyrill – Guðlaug eftir göngu
20.mars Múlafjall
3.apríl Mælifell
17.apríl Síldarmannagötur
24.apríl Jósefsdalshringur
8.maí Hrafnabjörg
15.maí Skessuhorn
22.maí Kristínartindar
5.júní Rjúpnafell – Tindfjöll
26.júní Rauðufossafjöll og Krakatindur

 

Details

Start:
janúar 23, 2021 kl.09:00
End:
júní 26, 2021 kl.17:00
Cost:
Frítt
Event Category:

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is