Loading Göngur

« Allar Göngur

Leggjabrjótur – Kvöldganga  28.maí 2026 

maí 28 kl.17:00
Gjaldfrjálst

Við Fjallavinir fögnum 15 ára afmæli í ár!

Af því tilefni bjóðum við sérstakt verð í eina af okkar skemmtilegustu vorgöngum sem er yfir Leggjabrjót þann 28.maí 2026 og það er kvöldganga!

Já, við hófum göngur sem Fjallavinir haustið 2011og höfum frá þeim tíma gengið vítt og breitt um landið okkar fallega og farið oftar en oft á mörg fjöll og fell. Þetta höfum við gert með ykkur, okkar góðu og traustu fjallavinum og höfum þannig lagt inn í heilsubankann, bæði andlega og líkamlega. Það er sannarlega mikil gæfa að hafa góða heilsu og enn mikilvægara að viðhalda henni. Heilsubankinn er mikilvægasti bankinn og þar þurfa allir að eiga innistæðu fyrir komandi ár. Að geta gengið til fjalla er algjörlega frábært, að finna orkuna magnast, vöðvana styrkjast, þolið aukast, kyrrðina, fuglasönginn, vindinn og náttúruna sem umvefur okkur er algjörlega einstök upplifun sem allir ættu að þekkja!

Og við erum alls ekkert á því að hætta, því lofum við!

Verðið í þessa einstöku göngu verður 12.000,- krónur en eftir göngu bjóðum við upp á veitingar og afmælisköku. Þá verður einnig happdrætti í lok ferðar þar sem einn göngumaður fær 12.000,- kr gjaldið endurgreitt í lok ferðar og að auki drögum við út tvo 12.000,- kr vinninga sem er inneign í göngu hjá Fjallavinum!

GG sport mun einnig gefa vinning í tilefni af afmælis okkar!

Síðar á árinu munum við svo halda áfram að fagna þessum áfanga okkar, svo fylgist með á fésbókinni og heimasíðunni www.fjallavinir.is !

 

kvöldganga (Fimmtudagur ) – hressing í lok göngu!

Leggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16-18 km löng, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6-7 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga en löng. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta, en ekki þjóta.

Við munum  svo fagna göngulokum með ykkur, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk.

Hæð: 490
Gönguvegalengd: 16-18 km
Göngutími: 6-7 klst
Gönguhækkun: 350 m
Brottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg

Erfiðleikastig: 3

Verð: 12.000,00,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 6.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 19.maí 2026

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

Lýsing

Leggjabrjótur – Kvöldganga  28.maí 2026 

Verð: 12.000,00,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 6.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 19.maí 2026

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

11 Going
24 Laus sæti
Skráðu þig hér