Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell

Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell
Fjallavinir fara af stað með Níuna þann 10. nóvember, og er ætlunin að trítla á fell og fjall fram í lok nóvember.
Við munum þræða svæði á Esju og Úllanum, allt eftir aðstæðum hverju sinni og áskiljum okkur því rétt til að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru göngumönnum í hag.
Markmiðið er að viðhalda góðri heilsu í þessu mesta skammdegi og lýsa upp myrkrið í aðdraganda jóla.
Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.
Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa undir lok verkefnisins.
Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Verð í verkefnið fyrir ykkur er kr. 18.000,00
Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,
0111-26-501696 og kt. 531184-0849,
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Þriðjudagur 10.nóvember Úlfarsfell, hittingur og spjall
Fimmtudagur 12.nóvember Steinn og Úlfarsfell
Laugardagur 14.nóvember Tröllafoss 2/ 3 klst
Þriðjudagur 17.nóvember Úlfarsfell
Fimmtudagur 19.nóvember Stígakerfi Esjunnar
Laugardagur 21.nóvember Óvissuferð eftir veðri á topp Esjunnar
Þriðjudagur 24.nóvember Úlfarsfell og eða Steinn
Fimmtudagur 26. nóvember Úlfarsfell
Laugardagur 28. Nóvember Óvissuferð
Svo er það verkefnið Fjöllin okkar 2027!
Þetta er metnaðarfullt verkefni sem smellpassar fyrir þig og þína!
Svo er þetta tilvalin jólagjöf frá þér til þín eða þinna 😉
Verkefnið hefst 29.janúar 2027
Skráning er hafin. Aðeins 37 sæti í boði!
Verkefnið verður nánar kynnt á næstu dögum á heimasíðu okkar.
Kveðja Þórður og Fríða





