Norðurfjörður á Ströndum

22. júlí 2027 – 26. júlí 2027
Eftir aðstæðum munum við bregða á leik utandyra, svo sem með jóga og öndunaræfingum og öðru dekri líkt og meðfylgjandi myndir sýna.
22.júlí fimmtudagur. Komið í Bergistanga þar sem gist verður. Gengið á Reykjaneshyrnu. Reikna má með um 4 km og 1,5 klst göngu.
23.júlí föstudagur. Gengið með leiðsögn um svæðin. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði.
24.júlí laugardagur. Gengið að einum fallegasta fossi Vestfjarða, Rjúkanda sem er inn af Ófeigsfirði. Reikna má með um 6,5 km göngu og tæplega 3 klst.
25.júlí sunnudagur.Gengið á Glissu 741 m. Um 12-13 km ganga.
26.júlí mánudagur. Farið frá Norðurfirði. Síðan er eftirfarandi hugsanlegur möguleiki, en fer alfarið eftir aðstæðum því okkur þykir mjög spennandi að taka stefnuna út í Grímsey í Steingrímsfirði. Það er aðlgjörlega háð veðri og sjólagi. Rölt verður um eyjuna og svo hugsanlega sjósund og að lokum heitir pottar á Drangsnesi. Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðina út í eyju, verði hún farin.
Athugið, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.
Verð: 113.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér
Norðurfjörður á Ströndum
Verð: 113.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér





