Birnudalstindur er 1326 m hár, glæsilegur tindur í Kálfafellsfjöllum í Suðursveit, leiðin um þessa fjallasali er sannarlega stórkostleg og gleymist seint. Tindurinn er sunnan við jökuljaðarinn og austan Kálfafellsdals. Gönguleiðin er í stórbrotnu landslagi og útsýnið er hreint út sagt magnað í allar áttir meðal annars til Öræfajökuls, Þverártindseggja og víðar.
Gangan sjálf er frekar krefjandi, eða um 18 km og gæti tekið okkur 8-10 klst. sem eðlilega fer eftir aðstæðum og pásum og hversu langt við náum að aka inn eftir Staðardalnum.
Hæð: 1326 m
Gönguvegalengd: 18 km
Göngutími: 8-10 klst
Gönguhækkun: 1800 m
Brottför: milli 7-9
Gisting: Í Suðursveit
Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu og þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.
Erfiðleikastig: 4-5 skór
Verð: 21.000,- kr
Staðfestingargjald: 9.000,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 8.maí 2021
kt. 531184-0849
0111-26-501696