Þátttakendum í þessari gönguferð býðst eftirfarandi tilboð í gistingu á Westman Islands Inn helgina 26.-28.maí 2023. Gistihúsið stendur við Bárustíg 2 en nýir eigendur tóku við því árið 2021 og hafa unnið hörðum höndum að endurbótum á því. Það er staðsett í hjarta miðbæjarins og stutt í alla þjónustu. Þeir eru ekki með morgunmat en kaffihús er á neðri hæðinni og Vigtin bakhús er í tveggja mínútna fjarlægð. Þeir bjóða upp á 4 herbergi og 4 íbúðir sem eru eingöngu tveggja manna, en einnig eru 7 herbergi og íbúðir fyrir tvo eða fleiri. Herbergin eru frá 20 fermetrum upp í 40 fermetra íbúðir.
Verð fyrir tveggja manna herbergi er 20.900,-kr á nóttina.
Verð fyrir þriggja manna herbergi er 24.900,-kr á nóttina.
Til að bóka herbergi skal senda póst á westmanislandsinn@gmail.com
Vestmannaeyjar – gengið á helstu tindana!
Laugardagur: 27.maí. Gangan mun hefjast klukkan 08:00 frá gististað okkar og reikna má með hún taki allan daginn. Þetta er einstök gönguferð um dásamlega eyju sem skilur eftir sig góðar minningar. Við hefjum gönguna á Heimakletti en þaðan er svo tekin hringleið um helstu tindana sem gefa okkur dásamlegt útsýni í allar áttir. Reikna má með um 18 km langri göngu sem tekur um 8 klst með stoppum. Uppsöfnuð gönguhækkun eru tæpir 1100 m.
Eftir göngu er kjörið að skella sér í sundlaugina en eftir það borðar hópurinn saman á Gott veitingastað og nýtur góðrar samveru.
Þátttakendur koma sér til Vestmannaeyja á föstudegi. Haldinn verður fundur klukkar 20:00 á Brothers Brewery þar sem farið verður yfir ferðatilhögun.
Sunnudagur 28.maí: Bröttför heim eins og hverjum og einum hentar.
Þátttakendur sjá sjálfir um að panta í Herjólf, sjá www.herjolfur.is
Verð: 19.000,- kr
Staðfestingargjald: 10.000,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1. apríl 2023
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér