Hér er á ferðinni einstaklega spennandi ganga með miklu innihaldi. Rúta mun aka okkur inn í Landmannalaugar og þar verður gengið um þetta fallega svæði, á Bláhnúk og að Brennisteinsöldu eftir aðstæðum. Gist verður í Laugum.
Næsta dag hefst svo hin eiginlega Laugavegsganga, ein allra fallegasta gönguleið í landsins Við munum ganga í góðum takti frá Laugum að Álftavatni, nokkuð löng dagleið en vel gerleg fyrir fólk í góðu gönguformi. Gist við Álftavatn.
Vöknum í rólegheitum og síðan gegnið af stað í Emstur. Góð dagleið. Hugsanlega gengið á Hvanngilshnausa á leið okkar um Hvanngil, en það ræðst að aðstæðum. Gist í Emstrum.
Frá Emstrum verður síðan gengið inn í Bása. Nokkuð löng dagleið en frekar létt. Vaða þarf Þröngá áður en komið er inn í Þórsmörk. Síðan krossum við Krossá og komum okkur fyrir í skála í Básum, grillum og gerum okkur glatt kvöld.
Á síðasta degi munum við haga seglum eftir vindi. Taka létta göngu í Básum og/eða ganga inn í Stakkholtsgjá og stoppa síðan við Merkurker þar sem við munum upplifa þetta skemmtilega svæði og vaða í gegnum hellinn. Síðan haldið heim.
Listi vegna útbúnaðar og nánari upplýsinga verður sendur þátttakendum, ásamt tillögu að matseðli þegar nær dregur
Heildargönguvegalengd: 60-70 km
Göngutími: Misjafn eftir dögum, 6-8 klst
Gönguhækkun og lækkun: Misjöfn eftir dögum, 5-600 m mest
Brottför: Með rútu frá Grjóthálsi
Erfiðleikastig: 2-3
Verð: 117.000,00-kr
Staðfestingargjald: 43.000,-kr – Skal greitt viku eftir bókun.
Ferð fullgreidd fyrir: 5.maí 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér
Verð: 117.000,00-kr
Staðfestingargjald: 43.000,-kr – Skal greitt viku eftir bókun.
Ferð fullgreidd fyrir: 5.maí 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér