Loading Events

« All Events

Norðurfjörður á Ströndum 21. júlí

júlí 21, 2025 kl.08:00 - júlí 25, 2025 kl.17:00

Free

Norðurfjörður á Ströndum

21. júlí 2025 – 25. júlí 2025

Hér er um  ævintýraland að ræða fyrir göngufólk sem vill ganga á nýjar slóðir. Það sem er innifalið í verðinu sem er 101.900,- krónur er; fjögurra nátta gisting á Bergistanga og kvöldmatur á föstudegi, laugardegi og sunnudeginum. Matseðillinn birtist í júlí, en reikna má með súpu, fiskibollum og lambi á grillið. Einnig er siglingin frá Norðurfirði yfir í Reykjarfjörð innifalin. Fólk sér að öðru leiti um allan annan mat sjálft, bæði morgunmat og allt nesti. Ferðalangar eru á eigin bilum. Við munum einnig skoða mjög áhugaverða og einstaka staði, svo sem Kistuvog og Grástein og reglulega munum við láta líða úr okkur í Krossneslaug.
Eftir aðstæðum munum við bregða á leik utandyra, svo sem með jóga og öndunaræfingum og öðru dekri líkt og meðfylgjandi myndir sýna.
Fyrirhugað ferðaplan.

21.júlí  fimmtudagur. Komið í Bergistanga þar sem gist verður. Gengið á Reykjaneshyrnu. Reikna má með um 4 km og 1,5  klst göngu.

22.júlí föstudagur. Siglt inn í Reykjarfjörð og gengið á Geirólfsnúp sem er á milli Reykjarfjarðar oag Skjaldbjarnarvíkur. Reikna má með uþb 9,5 km göngu og 5 klst. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði.

23.júlí laugardagur. Gengið að einum fallegasta fossi Vestfjarða, Rjúkanda  sem er inn af Ófeigsfirði. Reikna má með um 6,5 km göngu og tæplega 3 klst.

24.júlí sunnudagur. Gengið á Urðartind og Hlíðarfjall. Um 5,5 km ganga og 3-4 klst.

25.júlí mánudagur. Farið frá Norðurfirði. Síðan er eftirfarandi hugsanlegur möguleiki, en fer alfarið eftir aðstæðum því okkur þykir mjög spennandi að taka stefnuna út í Grímsey í Steingrímsfirði. Það er aðlgjörlega háð veðri og sjólagi. Rölt verður um eyjuna og svo hugsanlega sjósund og að lokum heitir pottar á Drangsnesi.  Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðina út í eyju, verði hún farin.

Athugið, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.

Verð:
101.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2025

kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér

 

Details

Start:
júlí 21, 2025 kl.08:00
End:
júlí 25, 2025 kl.17:00
Cost:
Free

Norðurfjörður á Ströndum 21. júlí

Verð: 101.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér

0 Going
22 Laus sæti
Skráðu þig hér