Esjan haust með Úllanum 2025
Göngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi
Haustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum.
Það verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum..
Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum.
Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli á einum fallegasta útsýnisstað Esjunnar. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar.
Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Verð í verkefnið er 39.900,- Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.
Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,
0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Fimmtudagur 11.sept Úlfarsfell, hittingur og spjall
Laugardagur 13.sept Dýjadalshnúkur frá Þjóðskarði
Fimmtudagur 18.sept Steinn og Úlfarsfell
Þriðjudagur 23.sept Sandhryggur, hringleið
Fimmtudagur 25.sept Steinn eða stígakerfi Esjunnar
Laugardagur 27.sept Móskarðahnúkar og Laufskörð, hringleið
Þriðjudagur 30.sept Kvensöðlar
Fimmtudagur 2.okt Úlfarsfell
Fimmtudagur 9.okt Úlfarsfell
Þriðjudagur 14.okt Karl, hringleið að Míganda
Fimmtudagur 16.okt Úlfarsfell
Fimmtudagur 23.okt Steinn og Úlfarsfell
Laugardagur 25.okt Kistufell, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar
Þriðjudagur 28.okt Úlfarsfell
Laugardagur 1.nóv Tröllafoss og Þríhnúkar
Verð í verkefnið er 39.900,- kr.
Staðfestingargjald er 20.000,- kr
Verð í verkefnið er 39.900,- kr.
Staðfestingargjald er 20.000,- kr
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér