Loading Göngur

« Allar Göngur

Esjan haust með Úllanum 2027

september 9, 2027 kl.17:30 - nóvember 13, 2027 kl.17:00
Gjaldfrjálst

Esjan haust með Úllanum 2027

Göngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi

Haustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum.

Það verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum..

Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum.

Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút eins og tíðkast hefur, en nú bjóðum við upp á þrjá liti sem eru að slá í gegn og eru árgerð 2027. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar.

Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Verð í verkefnið er 39.900,-  Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,

0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

Nánar síðar!

Lýsing

Esjan haust með Úllanum 2027

Verð í verkefnið er 39.900,-  Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,

0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

0 Going
23 Laus sæti