Loading Events

« All Events

Fjöllin okkar 2024 – Hefst 27. janúar      

janúar 27 - júní 22

Frítt

 Fjöllin okkar 2024

Fjöll og félagsskapur

Heilsuefling á fjöllum hefst þann 27.janúar 2024 og stendur til 22. júní. Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. Mikið innihald og stútfullt af góðum göngum!

Munum að heilsubankinn vill sitt.

Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn.

Gengið verður á hin ýmsu fjöll. Einnig verða æfingagöngur alla fimmtudaga frá 1.feb- til 21.mars upp að Steini sem hefjast kl 17:30.

Fellin tökum við svo í mars á þriðjudögum.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan.

Allir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi.

Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir góða gönguskó. Allir fá svo páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir þátttakendudr. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.

 

Verð verkefnis er 73.000,-kr. Staðfestingargjald er 33.000,-kr.

Ganga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 7.janúar.

Semja má um greiðslufyrirkomulag.   

Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

                                           

27.jan   laugardagur       Mosfell Mosfellsbæ

1.feb fimmtudagur     Esja að Steini

 8.feb   fimmtudagur     Esja að Steini

10.feb   laugardagur       Meðalfell í Kjós  

15.feb   fimmtudagur     Esja að Steini

17.feb   laugardagur       Þyrill

22.feb   fimmtudagur     Esja að Steini

 24.feb   laugardagur       Þorbjörn Grindavík eða Búrfell Grímsnesi

 29.feb   fimmtudagur     Esja að Steini

 4.mars   mánudagur      Helgafell í Hafnarfirði

5.mars  þriðjudagur       Reykjafell

 7.mars fimmtudagur     Esja að Steini

9.mars   laugardagur       Stóra Kóngsfell og Drottning      

11.mars  mánudagur      Helgafell Hafnarfirði

12.mars   þriðjudagur      Þverfell

 14.mars  fimmtudagur     Esja að Steini

 16.mars   laugardagur      Dýjadalshnjúkur

 18.mars   mánudagur     Helgafell í Hafnarfirði

  19.mars    þriðjudagur       Grímannsfell

   21.mars  fimmtudagur    Esja að Steini

   25.mars    mánudagur     Helgafell í Hafnarfirði

   26.mars    þriðjudagur      Búrfell og Búrfellsgjá

   30.mars   laugardagur       Kjölur  frá Fossá

  13.apríl   laugardagur       Hengill langur           

  20.apríl   laugardagur       Hrafnabjörg

  4.maí    laugardagur       Sauðadalahnjúkar

 11.maí    laugardagur       Geirhnjúkur        

  18.maí    laugardagur       Fanntófell

   1.júní    laugardagur       Skjaldbreiður

   22.júní    laugardagur       Þórisjökull eða Ok, frjálst val

 

 

Skráning á www.fjallavinir.is

Nokkrar myndir úr ferðum okkar í ár 2023;

 

 

Details

Start:
janúar 27
End:
júní 22
Cost:
Frítt
Event Categories:
, , ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is

Fjöllin okkar 2024

Fjöll og félagsskapur
Verð verkefnis er 73.000,-kr. Staðfestingargjald er 33.000,-kr.

Ganga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 7.janúar.

Semja má um greiðslufyrirkomulag.

Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

0 Going
11 Laus sæti, 6 days left to RSVP
Skráðu þig hér