Loading Events

« All Events

Fjöllin okkar 2025 – Hefst 1. febrúar

janúar 30, 2025 kl.08:00 - september 28, 2025 kl.17:00

Free

Heil og sæl kæru fjallavinir

Nýtt gönguár okkar Fjallavina hefst þann 1.febrúar 2025, og eins og alltaf  þá hefjum við gönguárið á styttri og léttari göngum meðan skammdegið liggur enn yfir okkur, en með hækkandi sól göngum við bæði lengra og hærra!

Við verðum með fullt af æfingagöngum til frekari styrkingar!

Regluleg hreyfing og þá sérstaklega utandyra í okkar fallegu og einstöku náttúru er með betri heilsueflingu sem hægt er að hugsa sér því þar nærum við bæði líkama og sál. Við aukum þol og styrk í skemmtilegum og hvetjandi félagskap! Njótum þess að vera saman og takast á við allskonar verkefni og áskoranir sem náttúruöflin bjóða upp á. Það er lítil heilsuefling fólgin í því að sitja inni og bíða eftir góðu veðri, nýtum hvert tækifæri sem gefst og förum út og klæðum okkur samkvæmt því sem þetta dásamlega land okkar hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttar gönguleiðir sem gaman er að upplifa.

GG sport og Fjallavinir taka höndum saman og gefa tvo glæsilega vinninga, samtals  að verðmæti um 350.000,-krónum. Fyrsti vinningur um 200.000,- kr og annar vinningur um 150.000,-kr.

Þetta árið stefnum við á eftirfarandi göngur:

1.feb      laugardagur          Úlfarsfell
6.feb       fimmtudagur        Mosfell
13.feb      fimmtudagur       Úlfarsfell
15.feb      laugardagur         Litli-Meitill
20.feb      fimmtudagur      Arnarhamar
22.feb      laugardagur        Hengill 
27.feb      fimmtudagur      Úlfarsfell
    
8.mars       laugardagur        Eyrarfjall og Sandfell um Fossá
13.mars     fimmtudagur      Úlfarsfell
15.mars     laugardagur        Geitafell
20.mars    fimmtudagur      Esja að Steini
29.mars    laugardagur         Stóri-Meitill   
     
12.apríl    laugardagur       Reynivallaháls
19.apríl    laugardagur       Geitahlíð
 
 3.maí       laugardagur       Sköflungur  
10.maí      laugardagur       Skálatindur
17.maí      laugardagur       Tungukollur
 
31.maí     laugardagur        Reyðarbarmur
21.júní     laugardagur       Högnhöfði

Allir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum.

Að auki fá allir páskaeggjaglaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir þátttakendur. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.

Ef þú ætlar að vera með okkur og okkar góðu fjallavinum þá er um að gera að skrá sig sem fyrst!
Verið velkomin með okkur Fjallavinum 😊
Kveðja Þórður og Fríða

Verð verkefnis er 73.000,-kr. Staðfestingargjald er 33.000,-kr.
Ganga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 10.janúar.
Semja má um greiðslufyrirkomulag. 
Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

                                           

Details

Start:
janúar 30, 2025 kl.08:00
End:
september 28, 2025 kl.17:00
Cost:
Free
Event Categories:
,

Fjöllin okkar 2025 – Hefst 1. febrúar

Verð verkefnis er 73.000,-kr. Staðfestingargjald er 33.000,-kr.
Ganga þarf frá greiðslu sem allra fyrst eftir skráningu eða eigi síðar en 10.janúar.
Semja má um greiðslufyrirkomulag. 
Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

13 Going
22 Laus sæti
Skráðu þig hér