Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Grænihryggur, Skalli, Laugar

september 2, 2023 kl.08:00 - 17:00

Frítt
Grænihryggur Skalli Laugar

Grænihryggur, Skalli, Laugar

september 2

Hægt er að gista á Landhóteli og njóta góðra veitinga og lúxus gistingar dagana 1.-3. September.

Rútan mun stoppa við Landhótel sem stendur við Landveg á leið okkar inn í Landmannalaugar fyrir þá gesti sem gista þar og hafa skráð sig í þessa ferð.

Á Landhóteli er lúxus gistiaðstaða, notalegur veitingastaður og þar er tilvalið að skella sér í SPA eftir góðan göngudag með okkur.

Tilboð fyrir þáttakendur:

Gisting í Standard DBL herbergi með morgunverði í tvær nætur 57.800 kr. Fyrir tvo

Gisting í Standard SGL herbergi með morgunverði í tvær nætur : 53.800 fyrir einstakling

Bókanir fyrir gistingu skal senda á booking@landhotel.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum.

Hægt er að skoða nánar um Landhótel á www.landhotel.is

Þetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.

Leið A

Gengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður.

Leið B

Sama leið gengin inn að Grænahrygg, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs.

Hæð:  1100 m
Gönguvegalengd: 16-20 km
Göngutími: 8-11 klst
Gönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð
Bröttför: Frá Grjóthálsi með rútu

Erfiðleikastig: 2-3

Verð: 33.000,- kr með

Grænihryggur, Skalli, Laugar

Details

Date:
september 2, 2023
Time:
08:00 - 17:00
Cost:
Frítt
Event Category:
Event Tags:
, , , , ,

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is