
- This event has passed.
Hábarmur, Grænihryggur, Skalli og Laugar
ágúst 12
Frítt
Hábarmur, Grænihryggur, Skalli og Laugar
ágúst 12 Ný og spennandi gönguleið!
Þetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.
Við hefjum gönguna inn við Kirkjufellsvatn og göngum á Hábarm sem gefur okkur magnað útsýni yfir Fjallabak enda hæsti barmur öskjunnar. Þaðan liggur leiðin niður að Grænahrygg, Útigönguból, Hattver, Skalla og niður að Landmannalaugum.
Reikna má með 27 km langri göngu og um 10-12 klukkustundum, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150-200 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs.
Hæð: 1200 m
Gönguvegalengd: 27 km
Göngutími: 10-12 klst
Gönguhækkun: frá 600 m upp í tæplega 1200 m hæð
Bröttför: Frá Grjóthálsi með rútu
Erfiðleikastig: 3 skór
Verð: 33.000,- kr með rútu
Staðfestingargjald: 15.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1. júlí 2023
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér
Lýsing
- Dagsetning:
- ágúst 12
- Kostnaður:
- Frítt
- Göngu flokkur:
- Sumarferðir
- Göngu tag:
- Einstök ganga, Fjallabak, Grænihryggur, Hábarmur, Hattver., Kirkjufell, landmannalaugar, Líparít, Stórkostleg náttúra
Skipuleggjandi
- Þórður Ingi Marelsson
- Símanúmer:
- 8987350
- Netfang:
- thordur@fjallavinir.is