Herðubreið – drottningin sjálf!
Herðubreið er 1682 m hátt móbergsfjall í Ódáðahrauni, norðan Vatnajökuls og innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er gjarnan nefnd “Drottning íslenskra fjalla” þar sem hún þykir einstaklega formfalleg. Að auki var Herðubreið valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002. Lengi vel var hún talin ókleif, en árið 1908 var fyrst gengið á hana.
Uppgöngutími er áætlaður um 4,5 klst með góðum stoppum, en gangan sjálf fram og til baka er aðeins rúmir 6 km frá fjallsrótum að toppi. Hækkun er snörp, úr tæpum 700 m upp í tæpa 1700 m. Að göngu lokinni munum við svo fagna og skála í léttum drykk fyrir göngu dagsins.
Aðeins er jeppafært inn að upphafsstað göngunnar!
Hæð: 1682
Gönguvegalengd: 6,2 km
Göngutími: 6-7 klst
Gönguhækkun: 1016 m
Brottför: Fararstjórar Fjallavina fara úr bænum á föstudagsmorgni og munum við keyra Mývatnsöræfin inn að Herðubreiðarlindum þar sem fararstjórar munu gista. Þar er hægt að panta í skála.
Við munum hittast á tjaldsvæðinu við skálann klukka 9:00 og hefja gönguna stuttu síðar. Það gæti þó breyst, en nánari póstur mun koma þegar nær dregur.
27.ágúst (28.ágúst til vara)
Erfiðleikastig: 3 (hér viljum við tákn t.d. skó )
Verð: 21.000,00,-kr
Staðfestingargjald: 9.000,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 10.ágúst 2022
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má finna hér