- This event has passed.
Kjölur frá Fossá…nýtt og spennandi

Kjölur – Laugardagur 13.júní 2026
Þessi ferð er í raun algjört leyndarmál og ekki margir gengið hana.
Við Fjallavinir fögnum 15 ára afmæli í ár!
Af því tilefni bjóðum við allar konur sérstaklega velkomnar og þær fá rós í upphafi ferðar og að auki fá þær allar drykkinn “Prosecco” kaldan og svalandi 😊
Fjallavinir ætla að bjóða upp á eina ferð þangað í sumar þegar sól er komin hátt á loft. Ofan af Kili er gríðarlega víðáttumikið og fallegt útsýni sem kemur öllum á óvart.
Það er nokkuð þægileg hækkun frá Fossá fyrstu 7 km en síðan er gengið í 700 m hæð næstu 4 km þar sem gríðarlega fallegt 360° útsýni blasir við langt inn í land.
Síðan tekur við lækkun til suðausturs og Suðurlandsundirlendið opnar faðm sinn.
Þetta er kjörin ganga fyrir vinahópa sem vilja eyða góðum göngudegi saman og njóta þess sem náttúran býður uppá.
Eftir gönguna bjóðum við upp á drykki.
Þá verður einnig happdrætti í lok ferðar og við munum draga út einn 12.000,- króna vinning sem er inneign í göngu hjá Fjallavinum!
Gangan mun hefjast við Fossá. Reikna má með um 20 km langri göngu sem gæti tekið um 8 klst. Þetta er löng ganga en ekki mjög krefjandi. Þó nokkuð samfelld 8 km hækkun úr 50 m og upp í rúmlega 700 m hæð en eftir það tekur við flatneskja næstu kílómetrana og síðan lækkun í átt til Þingvalla. Útsýnið ofan af Kili kemur á óvart og er hreint út sagt magnað, en þaðan er einstaklega víðsýnt. Það lagt verður af stað klukkan 08:00 frá Helgafelli í Mosfellsbæ. Á leiðinni er vað, svo takið með vaðskó!
Hressing í lok göngu!
Við munum svo fagna göngulokum með ykkur, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk.
Hæð: 750
Gönguvegalengd: 20 km
Göngutími: 7-8 klst
Gönguhækkun: 350 m
Brottför: 08:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg
Erfiðleikastig: 2-3
Verð: 15.900,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 6.500,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1.maí 2026
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.





