Kristínartindar

Kristínartindar
Kristínartinda sem eru 1126 metra háir og rísa upp af Skaftafellsheiði í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Tindarnir eru reyndar tveir, eins og nafnið bendir til, og er sá lægri 979 m en sá hærri 1126 m. Afar gott útsýni er af Kristínartindum yfir Morsárdal, Kjós, Skaftafellsjökuls og til Hrútfjallstinda og Hvannadalshnúks. Leiðin liggur um hina kjarri vöxnu Skaftafellsheiði, áfram upp fyrir Skerhól, upp á Fremrihnauk og Nyrðrihnauk, um Gemludal og síðan áfram upp um brattar hlíðar þegar ofar dregur. Áætluð vegalengd er um 16-17 km og hækkun á göngu er rúmlega 1000 metrar.
Gera verður ráð fyrir að þessi ganga taki allan daginn!
Verð: 17.900,- kr
Staðfestingargjald: 7.900,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 15. júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér
Hæð: 1126
Gönguvegalengd: 17 km
Göngutími: 8 klst
Gönguhækkun: 1000 m
Brottför: Mæting kl. 09:00 við skálann í Skattafelli póstur kemur þegar nær dregur að göngu.
Við viljum benda á, og í raun mæla með að fólk gisti t.d á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur eða í næsta nágrenni svo stuttur akstur sé að upphafsstað göngu. Frá Kirkjubæjarklaustri er aðeins tæplega 1 klst akstur að Lómagnúpi.
Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.
Kristínartindar
Verð: 17.900,- kr
Staðfestingargjald: 7.900,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 15. júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér





