Loading Events

« All Events

Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi!

júlí 11 kl.08:00 - júlí 15 kl.17:00

Frítt

Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi 

11.júlí – 15. júlí

 

Hér er á ferðinni einstaklega spennandi ganga með miklu innihaldi. Rúta mun aka okkur inn í Landmannalaugar og þar verður gengið um þetta fallega svæði, á Bláhnúk og að Brennisteinsöldu eftir aðstæðum. Gist verður í Laugum.

Næsta dag hefst svo hin eiginlega Laugavegsganga, ein allra fallegasta gönguleið í landsins Við munum ganga í góðum takti frá Laugum að Álftavatni, nokkuð löng dagleið en vel gerleg fyrir fólk í góðu gönguformi. Gist við Álftavatn.

Vöknum í rólegheitum og síðan gegnið af stað í Emstur. Góð dagleið.  Hugsanlega gengið á Hvanngilshnausa á leið okkar um Hvanngil, en það ræðst að aðstæðum. Gist í Emstrum.

Frá Emstrum verður síðan gengið inn í Bása. Nokkuð löng dagleið en frekar létt. Vaða þarf Þröngá áður en komið er inn í Þórsmörk. Síðan krossum við Krossá og komum okkur fyrir í skála í Básum, grillum og gerum okkur glatt kvöld.

Á síðasta degi munum við haga seglum eftir vindi. Taka létta göngu í Básum og/eða ganga inn í Stakkholtsgjá og stoppa síðan við Merkurker þar sem við munum upplifa þetta skemmtilega svæði og vaða í gegnum hellinn.   Síðan haldið heim.

Listi vegna útbúnaðar og nánari upplýsinga verður sendur þátttakendum, ásamt tillögu að matseðli þegar nær dregur

 

Heildargönguvegalengd: 60-70 km

Göngutími: Misjafn eftir dögum, 6-8 klst

Gönguhækkun og lækkun: Misjöfn eftir dögum,  5-600 m mest

Brottför:  Með rútu frá Grjóthálsi

 

Erfiðleikastig: 2-3

Verð: 113.000,00-kr

Staðfestingargjald: 43.000,-kr – Skal greitt viku eftir bókun.

Ferð fullgreidd fyrir: 1.maí 2024

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Sjá skilmála hér

Details

Start:
júlí 11 kl.08:00
End:
júlí 15 kl.17:00
Cost:
Frítt
Event Categories:
, , ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is

Laugavegurinn með meiru – 5 daga ferð með rútu og trússi! 11. júlí - 15. júlí

Verð: 113.000,00-kr
Staðfestingargjald: 43.000,-kr – Skal greitt viku eftir bókun.
Ferð fullgreidd fyrir: 1.maí 2024
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér

7 Going
13 Laus sæti
Skráðu þig hér