Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Leggjabrjótur – Kvöldganga

júní 14, 2022 kl.17:00 - 23:00

Frítt

kvöldganga (Þriðjudagur ) – hressing í lok göngu!

Leggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta, en ekki þjóta.

Allir þátttakendur í göngunni fara sjálfkrafa í pott og munum við draga út heppinn þátttakenda sem hreppa veglegan vinning. Vinningurinn er glæsilegur grillpakki frá Réttinum að verðmæti 28.000,-króna.  

Við munum  svo fagna göngulokum með ykkur, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk.

Hæð: 490
Gönguvegalengd: 16 km  – 18 km
Göngutími: 6/7 klst
Gönguhækkun: 350 m
Brottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg

Erfiðleikastig: 2  (hér viljum við tákn t.d. skó )

Verð: 11.500,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 5.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 24.maí 2022

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

Details

Date:
júní 14, 2022
Time:
17:00 - 23:00
Cost:
Frítt
Event Category:

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is