Löðmundur 1097 26. júní

Löðmundur 1097 26. júní
Löðmundur og fossinn
Löðmundur 1097 m er meðal hæstu fjalla á Landmannaafréttio g stendur fið Löðmundarvatn rétt við Landmannahelli. Gangan hefst við bílastæði við Landmannahelli og stikum fylgt í sveig upp að vesturenda fjallsins og síðan er gegnið austur eftir fjallinu á hæstu kollana. Þaðan er gríðarlegt útsýni yfir þetta einstaka svæði og eins má sjá alla helstu jökla landsins þegar skyggni er gott.
Eftir göngu á Löðmunds munum við skella okkur að Rauðufossum sem blasa við ferðafólki þegar ekið er einn í Laugar og ekki annað hægt en að koma við þar. Gangan þangað er stutt eða um 1,7 km að fossinum.
Komið í bæinn aftur að kveldi
Hæð: 1097
Gönguvegalengd: 9 km
Göngutími: 4 klst
Gönguhækkun:
Brottför: Mæting kl. 07:00 við Grjóthási 1 eða við fjallið Löðmund kl 09;00 póstur kemur þegar nær dregur að göngu.
Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.
Erfiðleikastig: 3
Verð: 15.900,-kr
Staðfestingargjald: 5.900,-
Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
531184-0849
0111-26-501696
Löðmundur 1097 26. júní
Verð: 15.900,-kr
Staðfestingargjald: 5.900,-
Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
531184-0849
0111-26-501696





