Loading Göngur

« Allar Göngur

Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell

nóvember 10 kl.08:00 - nóvember 29 kl.17:00

Nían í nóvember/ Esjan og Úlfarsfell

 

Fjallavinir fara af stað með Níuna þann 10. nóvember, og er ætlunin að trítla á fell og fjall fram í lok nóvember.

Við munum þræða svæði á Esju og Úllanum, allt eftir aðstæðum hverju sinni og áskiljum okkur því rétt til að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru göngumönnum í hag.

Markmiðið er að viðhalda góðri heilsu í þessu mesta skammdegi og lýsa upp myrkrið í aðdraganda jóla.

Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.

Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa undir lok verkefnisins.

 

Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Verð í verkefnið fyrir ykkur er  kr. 18.000,00

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,

0111-26-501696 og kt. 531184-0849,

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

 

Þriðjudagur    10.nóvember      Úlfarsfell, hittingur og spjall

Fimmtudagur     12.nóvember       Steinn og Úlfarsfell

Laugardagur     14.nóvember          Tröllafoss  2/ 3 klst

Þriðjudagur       17.nóvember    Úlfarsfell

Fimmtudagur   19.nóvember    Stígakerfi Esjunnar

Laugardagur     21.nóvember    Óvissuferð eftir veðri á topp Esjunnar

Þriðjudagur       24.nóvember    Úlfarsfell og eða Steinn

Fimmtudagur   26. nóvember   Úlfarsfell

Laugardagur        28. Nóvember     Óvissuferð

 

 

Svo er það verkefnið Fjöllin okkar 2027!

Þetta er metnaðarfullt verkefni sem smellpassar fyrir þig og þína!

Svo er þetta tilvalin jólagjöf frá þér til þín eða þinna 😉

Verkefnið hefst 29.janúar 2027

Skráning er hafin. Aðeins 37 sæti í boði!

Verkefnið verður nánar kynnt á næstu dögum á heimasíðu okkar.

Kveðja Þórður og Fríða

Lýsing