Loading Events

« All Events

Norðurfjörður á Ströndum. 15.ágúst 19. ágúst

ágúst 15 - ágúst 19

Frítt

Norðurfjörður á Ströndum.

15.ágúst 19. ágúst

 

Norðurfjörður á Ströndum. 

Hér er um  ævintýraland að ræða fyrir göngufólk sem vill ganga á nýjar slóðir. Það sem er innifalið í verðinu sem er 99.900,- krónur er; gisting á Bergistanga og kvöldmatur á föstudegi, laugardegi og sunnudeginum. Matseðillinn birtist í júlí, en reikna má með súpu, fiskibollum og lambi á grillið. Einnig er siglingin frá Norðurfirði yfir í Reykjarfjörð innifalin. Fólk sér að öðru leiti um allan annan mat sjálft, bæði morgunmat og allt nesti. Ferðalangar eru á eigin bilum.

Eftir aðstæðum munum við bregða á leik utandyra, svo sem með jóga og öndunaræfingum og öðru dekri líkt og meðfylgjandi myndir sýna.

Fyrirhugað ferðaplan.

15.ágúst fimmtudagur. Komið í Bergistanga þar sem gist verður. Gengið á Reykjaneshyrnu. Reikna má með um 4 km og 1,5  klst göngu.

16.ágúst föstudagur. Siglt inn í Reykjarfjörð og gengið á Geirólfsnúp sem er á milli Reykjarfjarðar oag Skjaldbjarnarvíkur. Reikna má með uþb 9,5 km göngu og 5 klst. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði.

17.ágúst laugardagur. Gengið að einum fallegasta fossi Vestfjarða,  Rjúkanda  sem er inn af Ófeigsfirði. Reikna má með um 6,5 km göngu og tæplega 3 klst.

18.ágúst sunnudagur. Gengið á Glissu 741 m. Um 12-13 km ganga.

19.ágúst mánudagur. Farið frá Norðurfirði. Síðan er eftirfarandi hugsanlegur möguleiki, en fer alfarið eftir aðstæðum því okkur þykir njög spennandi að taka stefnuna út í Grímsey í Steingrímsfirði. Það er aðlgjörlega háð veðri og sjólagi. Rölt verður um eyjuna og svo hugsanlega sjósund og að lokum heitir pottar á Drangsnesi. Ef þetta gengur ekki upp þá er planið að rölta upp á Bæjarfellið á Drangsnesi. Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðina út í eyju, verði hún farin.

Athugið, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.

Verð: 99.900,00-kr

Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun.

Ferð fullgreidd fyrir: 15.júní 2023

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Sjá skilmála hér

Details

Start:
ágúst 15
End:
ágúst 19
Cost:
Frítt
Event Categories:
, ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is

Norðurfjörður á Ströndum. 15.ágúst 19. ágúst

Verð: 99.900,00-kr
Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun.
Ferð fullgreidd fyrir: 15.júní 2024
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér

3 Going
17 Laus sæti
Skráðu þig hér