21.júlí fimmtudagur. Komið í Bergistanga þar sem gist verður. Gengið á Reykjaneshyrnu. Reikna má með um 4 km og 1,5 klst göngu.
22.júlí föstudagur. Siglt inn í Reykjarfjörð og gengið á Geirólfsnúp sem er á milli Reykjarfjarðar oag Skjaldbjarnarvíkur. Reikna má með uþb 9,5 km göngu og 5 klst. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði.
23.júlí laugardagur. Gengið að einum fallegasta fossi Vestfjarða, Rjúkanda sem er inn af Ófeigsfirði. Reikna má með um 6,5 km göngu og tæplega 3 klst.
24.júlí sunnudagur. Gengið á Urðartind og Hlíðarfjall. Um 5,5 km ganga og 3-4 klst.
25.júlí mánudagur. Farið frá Norðurfirði. Síðan er eftirfarandi hugsanlegur möguleiki, en fer alfarið eftir aðstæðum því okkur þykir mjög spennandi að taka stefnuna út í Grímsey í Steingrímsfirði. Það er aðlgjörlega háð veðri og sjólagi. Rölt verður um eyjuna og svo hugsanlega sjósund og að lokum heitir pottar á Drangsnesi. Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðina út í eyju, verði hún farin.
Athugið, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.
Verð: 101.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér
Verð: 101.900,-kr Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun. Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér