Loading Göngur

« Allar Göngur

  • This event has passed.

Tvennuáskorun! Hvannadalshnúkur 2110 m og Hrútfjallstindar Hátindur 1875 m

apríl 22, 2023 - maí 6, 2023

Frítt

Hvannadalshnúkur 2110 m þann 22.apríl og Hrútfjallstindar Hátindur 1875 m 6.maí

Tvennu áskorun!

Tökum þessa tvo saman í vor! Þetta er fyrir þá sem ætla sér að vera komnir í toppform! Drífum í þessu!

Ferðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk þann 22.apríl

Við munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins. Þetta ræðst af veðurspá og veðri sem skýrist þegar nær dregur.

Við upphafsstað göngunnar undir Sandfelli þurfa allir að vera mættir tímanlega samkvæmt fyrirmælum og klárir í bátana, klæddir og með allan sinn búnað vel skipulagðan í bakpoka og utaná bakpoka. Farið því vel yfir útbúnað áður en lagt er af stað úr Reykjavík. Ekki gleyma jöklabúnaði! Við förum af stað um nótt eða undir morgun og þá er yfirleitt kalt. Verum eins léttklædd og hægt er, kaldstart er gott, því okkur hitnar um leið og við leggjum af stað upp nokkuð brattar hlíðar. Eins hækkar hitastig þegar dagur rís en aftur kólnar þegar ofar er komið og á toppnum er yfirleitt ekki hlýtt þó lofthiti við sjávarmál sé töluverður. Sjaldan er logn á toppnum! Mikilvægt er að hafa narsl og  drykkjarbrúsa innan seilingar og geta sopið á reglulega án mikillar fyrirhafnar og án þess að þurfa að taka af sér bakpokann.


Ferðatilhögun fyrir Hrútfjallstinda þann 6.maí

Hér er um langa og krefjandi göngu að ræða en jafnframt eina af mögnuðustu gönguleiðum landsins, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökul á hægri hönd og Skaftafellsjökul á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðausturátt, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn og Esjufjöll!

Lagt verður af stað í gönguna á bilinu 02:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna, en hægt er að gista á Hofi og Svínafelli og auðvitað víðar. Á Svínafelli er hægt að gista í tjöldum en þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna eða hvers konar aftaníhýbýli. Þar er einnig góð eldunaraðstaða, stór matsalur, kæliskápar, sturtur og wc.

Gönguleiðin. Leiðin er nokkuð brött og eins er nokkuð um lækkanir á leiðinni og þess vegna telst hún erfiðari en ganga á Hvannadalshnúk. Við munum hefja gönguna við Hafrafell og ganga upp bratta brekkuna og inn að Sveltisskarði. Efrimenn og Fremrimenn blasa við okkur ásamt stórkostlegu útsýni yfir einstaka náttúru. Sannarlega ein flottasta gönguleið landsins, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökul á hægri hönd og Skaftafellsjökul á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðurátt, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn, Esjufjöll og víðar.  Hrútfjallstindar eru fjórir; Hátindur 1875 m, Vesturtindur, Suðurtindur og Miðtindur og munum við stefna á Hátind. Reikna með 25-26 km og 13-15 tíma göngu og að auki uppsafnaðri hækkun upp á 2300 m.

Erfiðleikastig: 5 skór

Verð:  31.000,- kr  í hvora ferð samtals 62.000,- kr.

Staðfestingargjald: 22.000,- kr

Ferð fullgreidd fyrir: 1. apríl 2023

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Sjá skilmála hér

Þegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 2.febrúar og fram til 30.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars

 

Lýsing

Start:
apríl 22, 2023
End:
maí 6, 2023
Kostnaður:
Frítt
Göngu flokkur:
Göngu tag:
, , ,

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is