Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár!

Við Fjallavinir fögnum 16 ára afmæli í ár!
Af því tilefni bjóðum við sérstakt verð í eina af okkar skemmtilegustu vorgöngum sem er yfir Leggjabrjót þann 15. júní 2027 og það er kvöldganga!
Já, við hófum göngur sem Fjallavinir haustið 2011 og höfum frá þeim tíma gengið vítt og breitt um landið okkar fallega og farið oftar en oft á mörg fjöll og fell. Þetta höfum við gert með ykkur, okkar góðu og traustu fjallavinum og höfum þannig lagt inn í heilsubankann, bæði andlega og líkamlega. Það er sannarlega mikil gæfa að hafa góða heilsu og enn mikilvægara að viðhalda henni. Heilsubankinn er mikilvægasti bankinn og þar þurfa allir að eiga innistæðu fyrir komandi ár. Að geta gengið til fjalla er algjörlega frábært, að finna orkuna magnast, vöðvana styrkjast, þolið aukast, kyrrðina, fuglasönginn, vindinn og náttúruna sem umvefur okkur er algjörlega einstök upplifun sem allir ættu að þekkja!
Og við erum alls ekkert á því að hætta, því lofum við!
Verðið í þessa einstöku göngu verður 12.000,- krónur en eftir göngu bjóðum við upp á veitingar og afmælisköku!
GG sport mun einnig gefa vinning í tilefni af afmælis okkar!
Kvöldganga (þriðjudagur) – hressing í lok göngu!
Leggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16-18 km löng, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6-7 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga en löng. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta, en ekki þjóta.
Við munum svo fagna göngulokum með ykkur, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk.
Hæð: 490
Gönguvegalengd: 16-18 km
Göngutími: 6-7 klst
Gönguhækkun: 350 m
Brottför: 16:30 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg
Erfiðleikastig: 3
Verð: 12.000,00,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 6.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Leggjabrjót þann 15. júní 2027
Verð: 12.000,00,-kr með rútu
Staðfestingargjald: 6.000,-kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2027
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.





