Esjan haust með Úllanum 2026

Esjan haust með Úllanum 2026
Göngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi
Haustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum.
Það verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum..
Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum.
Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút eins og tíðkast hefur, en nú bjóðum við upp á þrjá liti sem eru að slá í gegn og eru árgerð 2026😊 Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli á einum fallegasta útsýnisstað Esjunnar. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar.
Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Verð í verkefnið er 39.900,- Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.
Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,
0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Fimmtudagur 10.sept Úlfarsfell, hittingur og spjall
Laugardagur 12.sept Ný leið en gömul undir Esjuhlíðum að Vigtinni frá Esjustofu.
Fimmtudagur 17.sept Steinn og Úlfarsfell
Þriðjudagur 22.sept Sandhryggur, hringleið
Fimmtudagur 25.sept Steinn eða stígakerfi Esjunnar
Laugardagur 26.sept Móskarðahnúkar og Laufskörð, hringleið
Þriðjudagur 29.sept Kvensöðlar
Fimmtudagur 1.okt Hringleið um Kvennagöngugil og Norðurloku
Fimmtudagur 8.okt Úlfarsfell/Steinn
Þriðjudagur 15.okt Karl, hringleið að Míganda
Fimmtudagur 17.okt Úlfarsfell
Fimmtudagur 24.okt Steinn og Úlfarsfell
Laugardagur 26.okt Ný leið um Hrútadal yfir á Smáþúfu, um 13 km hringleið
Þriðjudagur 29.okt Úlfarsfell
Laugardagur 7.nóv Dýjadalshnúkur frá Þjóðskarði
Esjan haust með Úllanum 2026
Verð í verkefnið er 39.900,- Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.
Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,
0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Esjan haust 2026