Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kattartjarnaleið – Kvöldganga

júní 23, 2022 kl.17:00

Frítt

Þetta er létt ganga um fáfarið svæði og hentar flestu göngufólki sem vill njóta útiveru í fallegri náttúru og fá góða hreyfingu í góðum félagsskap á björtu sumarkvöldi. Gönguhækkun mun verða róleg inn í ótrúlega falleg gil og gljúfur, stöldrum við við Kattartjarnir og höldum síðan áfram inn að heitu böðuðum í Reykjadalnum svo þeir sem vilja taka með sundföt og létt handklæði. Eins er mikilvægt að hafa meðferðis vaðskó.
Í þessari göngu verðum við með ýmskonar uppákomur. Við munum vera með happdrætti, þar sem allir göngumenn eru með í útdrætti. Dregið verður um veglegan vinning! Allir göngumenn munu fá Fjallavina höfuðklút og að göngu lokinni munum við svo fagna og bjóða upp á Jager og léttan drykk
Aðalvinningurinn er svo glæsilegur Grillpakki frá Réttinum að verðmæti 28.000,-.

Hæð: 395 m
Gönguvegalengd: 16 km
Göngutími: 6 klst
Gönguhækkun: 280 m
Brottför: Kl 17:00 frá Grjóthálsi með rútu
Rúta: Innifalið í verði
Böð: Í Reykjadal geta þeir sem vilja skellt sér í heitu böðin, svo sundföt og handklæði með í för

Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.

Erfiðleikastig: 1
Verð: 11.500,- kr
Staðfestingargjald: 5.000,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 9.júní 2022

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér

Details

Date:
júní 23, 2022
Time:
17:00
Cost:
Frítt
Event Category:

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is