Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sveinstindur  2044 m

apríl 27

Free

Sveinstindur  2044 m

  1. apríl 2024

 

Hér skartar náttúran sínu allra fegursta enda stórkostlegt og stórbrotið landslag. Gönguleiðin er algjörlega einstök og gefur óviðjafnanlegt útsýni um víðáttumikið landssvæði enda næst hæsti tindur landsins. Ganga á Sveinstind er bæði krefjandi og löng og því aðeins fyrir fólk í góðu gönguformi. Gengið verður frá Kvískerjum.

 

Lagt verður af stað í gönguna á bilinu 02:00-05:00 aðfararnótt göngudags. Þátttakendur koma sér sjálfir austur í Öræfi degi fyrir brottför og sjá sjálfir um gistinguna.

Gönguleiðin Frá Kvískerjum

Hæð: 2044 m

Gönguvegalengd 24 km

Göngutími:  16-18 klst

Gönguhækkun: 2011 m

Sérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum.

Brottför: Á bilinu 02:00-05:00 frá Kvískerjum

Gisting: Á eigin vegum í Öræfum

Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu, en ganga á Sveinstind  kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.

Erfiðleikastig: 5 skór

Verð:  39.900,-

Staðfestingargjald: 20.000,- kr

Ferð fullgreidd fyrir: 1.apríl 2024

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Sjá skilmála hér

Þegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá 1.febrúar og fram til 21.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars.

Details

Date:
apríl 27
Cost:
Free
Event Categories:
,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone
8987350
Email
thordur@fjallavinir.is