Snæfellsjökull 1446 m.
mars 22 kl.07:00 – 19:00
Hægt er að gista á Arnarstapa og njóta góðra veitinga og lúxus gistingar dagana 21.-22. Mars.
Tilboð fyrir þáttakendur:
Bókanir fyrir gistingu skal senda á booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum.
Hægt er að skoða nánar um gistinguna á www.arnarstapicenter.is
Snæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi. Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið 6-8 klst, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin, línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er.
Sérstakur jöklabúnaður.
Í þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara.
Hæð: 1446 m
Gönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum
Göngutími: 6-8 klst
Gönguhækkun: 1200 m
Sérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum.
Brottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði.
Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.
Erfiðleikastig: 3 skór
Verð: 18.900,- kr
Staðfestingargjald: 8.900,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1.mars 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.
Þegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur í verkefninu Fjöllin okkar 2025 allar þær göngur er eru í viðri viku.
Klæðnaður – alls engar bómullarflíkur !
Innst klæða. Ullarnærbolur, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur. Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir.
Millilag. Göngubuxur eða flísbuxur, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa, primaloft jakki eða dúnjakki.
Ysta lag. Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun, bæði buxur og jakki.
Annar mikilvægur klæðnaður.
Húfa, höfuðklútar, auka vettlingar, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir, vatnsheldir vettlingar, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum.
Annar búnaður.
Góður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að komast allur aukabúnaður, auk nestis og nauðsynjavara, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega.
Við mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum, sviðasultusneið, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu, eða sambærilegu og að sjálfsögðu eftir ykkar þörf.
Þá er mikilvægt að hafa með orkuríkt narsl (hnetur, möndlur, rúsínur, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum.
Verð: 18.900,- kr
Staðfestingargjald: 8.900,- kr
Ferð fullgreidd fyrir: 1.mars 2025
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.