Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Esjan haust 2022

september 15, 2022 - nóvember 20, 2022

Free

Með Sushi, kleinum og kakó!

Haustverkefni Fjallavina fer af stað um miðjan september. Þetta verkefni er
hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta
útiveru á fjöllum. Það verður gengið alla fimmtudaga, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á
þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi
lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli en einnig
kleinur og heitt kakó!
Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.
Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. Rétt er að geta þess að Skessuhorn er ekki á Esju.
Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um
veglega konfektkassa fyrir jólin, súkkulaðirúsínuglaðninga og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem
mætir í flestar göngurnar. Áskiljum okkur rétt til breytinga á ferðum vegna veðurs og aðstæðna.
Verð í verkefnið er 39.900,- kr. Staðfestingargjald er 20.000,- krónur. Rúta að Brekkukambi er
aukakostnaður. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Fjallavina www.fjallavinir.is og á fésbókinni Fjallavinir.is

Fimmtud 15. sept Steinn
Laugard 17. sept Skálatindur
Fimmtud 22. sept Steinn eða stígakerfi
Laugard 24. sept Þverfellshorn, Kambshorn og Bjarnastígur að Steini
Þriðjud 27. sept Sandhryggur, hringleið,
Fimmtud 29. sept Steinn eða stígakerfi, sund og gufa
Laugard 1. okt Kistufell, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar – Sushi!
Þriðjud 4. okt Kvensöðlar
Fimmtud 6. okt Steinn eða stígakerfi
Laugardagur 8.okt Skessuhorn. Esan til var er leið á Esju
Fimmtud 13. okt Steinn eða stígakerfi
Þriðjud 18. okt Karl, hringleið að Míganda, kleinur og kakó
Fimmtud 21. okt Steinn eða stígakerfi,
Laugard 22. okt Brekkukambur i Hvalfirði. Gufubað, grill og gaman!
Fimmtud 27. okt Steinn eða stígakerfi,
Þriðjud 1. nóv Kvennagöngugil og Miðloka
Fimmtud 3. nóv Steinn eða stígakerfi
Laugard 5. nóv Tröllafoss og Þríhnúkar
Fimmtud 10. nóv Steinn
Þriðjud 14. nóv Norski hringurinn að Kollafjarðará, kleinur og kakó

Skráning er hafin á thordur@fjallavinir.is

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina, 0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2022

Details

Start:
september 15, 2022
End:
nóvember 20, 2022
Cost:
Free
Event Category:
Event Tags:

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Phone
8987350
Email
thordur@fjallavinir.is