Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fjöllin okkar 2023

janúar 28, 2023 - júní 24, 2023

Frítt

Fjöllin okkar 2023

Fjöll og félagsskapur        

Heilsuefling á fjöllum hefst þann 28.janúar 2023 og stendur til 24. júní. Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. Mikið innihald og stútfullt af góðum göngum!
Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn.
Gengið verður á hin ýmsu fjöll. Einnig verða æfingagöngur alla fimmtudaga frá 2.feb-30.mars upp að Steini og á mánudögum í mars bætast við æfingagöngur á Helgafell í Hafnarfirði.
Fellin tökum við svo í  mars á þriðjudögum.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Vegna göngu á Elliðahamar verður gisting á Arnarstapa fyrir þá sem vilja, en greitt er sérstaklega fyrir það. Þá er greitt sérstaklega fyrir rútu þegar gengið verður um Kóngsveg.

Allir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi.

Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir gönguskó. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.

Verð verkefnis er 71.000,00,-kr. Staðfestingargjald er 31.000,-kr.
Ganga þarf frá greiðslu viku eftir skráningu eða eigi síðar en 6.janúar. Semja má um greiðslufyrirkomulag.
Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

28.jan     laugardagur       Helgafell Hafnarfirði
2.feb        fimmtudagur     Esja að Steini
9.feb        fimmtudagur     Esja að Steini
11.feb       laugardagur       Hafrahlíð – Reykjaborg- Þverfell
16.feb      fimmtudagur     Esja að Steini
18.feb      laugardagur       Skálafell Hellsiheiði
23.feb      fimmtudagur     Esja að Steini
25.feb      laugardagur       Akrafjall
2.mars    fimmtudagur     Esja að Steini
6.mars    mánudagur        Helgafell Hafnarfirði
7.mars    þriðjudagur        Reykjafell
9.mars    fimmtud              Esja að Steini
11.mars   laugardagur       Dalfell
13.mars   mánudagur        Helgafell Hafnarfirði
14.mars   þriðjudagur        Húsfell
16.mars   fimmtudagur    Esja að Steini
18.mars   laugardagur      Blákollur
20.mars  mánudagur       Helgafell Hafnarfirði
21.mars   þriðjudagur      Grímannsfell
23.mars   fimmtudagur    Esja að Steini
27.mars   mánudagur       Helgafell Hafnarfirði
28.mars   þriðjudagur      Vífilsfell
30.mars   fimmtudagur   Esja að Steini
1.apríl       laugardagur     Kóngsvegur
15.apríl     laugardagur     Reynivallaháls
22.apríl    laugardagur     Hróarstindur
6.maí        laugardagur     Laugarvatnsfjall
13.maí      laugardagur     Kvígindisfell
20.maí     laugardagur      Elliðahamar
3.júní       laugardagur      Hrútaborgir og Kolbeinstaðafjall
24.júní    laugardagur     Hvalfell

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér

Details

Start:
janúar 28, 2023
End:
júní 24, 2023
Cost:
Frítt
Event Category:
Event Tags:
, ,

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is