Haustverkefni Fjallavina fer af stað um miðjan september. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum. Það verður gengið alla fimmtudaga, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli en einnig kleinur og heitt kakó!
Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.
Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa fyrir jólin, súkkulaðirúsínuglaðninga og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar. Áskiljum okkur rétt til breytinga á ferðum vegna veðurs og aðstæðna.
Verð í verkefnið er 39.900,- kr. Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.
Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina, 0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2023
Fimmtud 14. sept Steinn
Laugard 16. sept Skálatindur
Fimmtud 21. sept Steinn eða stígakerfi
Laugard 23. sept Þverfellshorn, Kambshorn og Bjarnastígur að Steini
Þriðjud 26. sept Sandhryggur, hringleið,
Fimmtud 28. sept Steinn eða stígakerfi,
Laugard 30. sept Kistufell, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar – Sushi!
Þriðjud 3. okt Kvensöðlar
Fimmtud 5. okt Steinn eða stígakerfi
Fimmtud 12. okt Steinn eða stígakerfi
Þriðjud 17. okt Karl, hringleið að Míganda,
Fimmtud 19. okt Steinn eða stígakerfi,
Laugard 21. okt Móskarðahnúkar, Laufskörð, hringleið
Fimmtud 26. okt Steinn eða stígakerfi,
Þriðjud 31. okt Sandhóll, Fálkaklettur
Fimmtud 2. nóv Steinn eða stígakerfi
Laugard 4. nóv Tröllafoss, Þríhnúkar
Fimmtud 9. nóv Steinn
Þriðjud 14. nóv Norski hringurinn, Kollafjarðará. Kleinur og kakó