Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Esjan haust 2024

september 12 kl.17:30 - nóvember 2 kl.17:30

Free

Göngur og gleði með Sushi veislu og öðrum glaðningi

Haustverkefni Fjallavina fer að venju af stað um miðjan september og nú með breyttu sniði. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum.

Það verður gengið alla fimmtudaga ýmist að Steini eða mismunandi leiðir á Úlfarsfellið, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum..

Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi. Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum.

Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli á einum fallegasta útsýnisstað Esjunnar. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa  og annað góðgæti undir lok verkefnisins og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar.

Við áskiljum okkur rétt til breytinga á göngum vegna veðurs og aðstæðna.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Verð í verkefnið er 39.900,-  Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,

0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

Fimmtudagur     12.sept                 Úlfarsfell, hittingur og spjall

Laugardagur       14.sept                 Dýjadalshnúkur frá Þjóðskarði

Fimmtudagur     19.sept                 Steinn og Úlfarsfell

Þriðjudagur        24.sept                 Sandhryggur, hringleið

Fimmtudagur     26.sept                 Steinn eða stígakerfi Esjunnar

Laugardagur       28.sept                 Móskarðahnúkar og Laufskörð, hringleið

Þriðjudagur        1.okt                      Kvensöðlar

Fimmtudagur     3.okt                      Úlfarsfell

Fimmtudagur     10.okt                   Úlfarsfell

Þriðjudagur        15.okt                   Karl, hringleið að Míganda

Fimmtudagur     17.okt                   Úlfarsfell

Fimmtudagur     24.okt                   Steinn og Úlfarsfell

Laugardagur       26.okt                   Kistufell, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar

Þriðjudagur        29.okt                   Úlfarsfell

Laugardagur       2.nóv                     Tröllafoss og Þríhnúkar

 

 

Verð í verkefnið er 39.900,- kr.

Staðfestingargjald er 20.000,- kr

 

 

 

 

 

 

 

 

Details

Start:
september 12 kl.17:30
End:
nóvember 2 kl.17:30
Cost:
Free
Event Categories:
, , ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone
8987350
Email
thordur@fjallavinir.is