Loading Events

« All Events

Esjan haust 2024

september 19 kl.17:30 - nóvember 19 kl.17:30

Frítt

Með Sushi, kleinum og kakó!

Haustverkefni Fjallavina fer af stað um miðjan september. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni ásamt því að njóta útiveru á fjöllum. Það verður gengið alla fimmtudaga, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli en einnig kleinur og heitt kakó!

Allar göngur hefjast kl. 17:30 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.
Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum. Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa fyrir jólin, súkkulaðirúsínuglaðninga og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar. Áskiljum okkur rétt til breytinga á ferðum vegna veðurs og aðstæðna.

Verð í verkefnið er   Staðfestingargjald er 20.000,- krónur.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina, 0111-26-501696 og kt. 531184-0849, Esjan haustið 2024

Details

Start:
september 19 kl.17:30
End:
nóvember 19 kl.17:30
Cost:
Frítt
Event Categories:
, , ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone:
8987350
Email:
thordur@fjallavinir.is