Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Grænihryggur 4. sept. 2021

september 4, 2021

Frítt

Grænihryggur, Skalli, Laugar

Þetta er óneitanlega ein fallegasta gönguleið landsins, í mögnuðu og ógleymanlegu landslagi.

Leið A

Gengið verður um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Reikna má með 16-17 km göngu og um 8-9 klst, allt eftir því hversu lengi við njótum! Gangan hefst í um 600 m hæð og munum við rokka nokkrum sinnum upp og niður um 150 m mestan hluta leiðarinnar. Gangan er nokkuð þægileg um stórkostlegt og einstaklega litríkt og fjölbreytt landslag og jafnframt ógleymanlegt. Að lokinni göngu ekur rúta okkur inn að Landmannalaugum og þar gefst göngumönnum kostur á að taka léttar göngur eða baða sig í laugunum þar til hópur B kemur niður.

 

Leið B

Sama leið gengin inn að Grænahrygg, en þaðan er haldið áfram inn að Uppgönguhrygg og þaðan inn í Landmannalaugar. Reikna má með rúmum 20 km og 10-11 klst göngu. Hóparnir munu svo hittast í Landmannalaugum. Það má því reikna með löngum degi og heimkomu eftir miðnætti.

 

Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningu vegna veðurs.

Hæð:  1100 m

Gönguvegalengd: 16-20 km

Göngutími: 8-11 klst

Gönguhækkun:  frá 600 m upp í tæplega 1100 m hæð

Bröttför: Frá Grjóthálsi með rútu

 

Erfiðleikastig: 2-3

Verð: 25.000,- kr með rútu

Staðfestingargjald: 12.000,-kr

Ferð fullgreidd fyrir: 14.ágúst 2021

kt. 531184-0849
0111-26-501696

 

Details

Date:
september 4, 2021
Cost:
Frítt
Event Category:
Event Tags:
, , , , , , ,

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is