Loading Göngur

« Allar Göngur

  • This event has passed.

Esjan haust 2021. Með Sushi, kleinum og kakó!

september 16, 2021 kl.08:00 - nóvember 18, 2021 kl.17:00

Frítt

Haustverkefni Fjallavina fer af stað um miðjan september. Þetta verkefni er hugsað fyrir fólk sem vill halda sér í gönguformi og undirbúa sig fyrir næsta árs verkefni. Það verður gengið alla fimmtudaga, nokkra laugardaga og annan hvorn þriðjudag. Á þriðjudögum tökum við stuttar og fáfarnar gönguleiðir á Esjunni, en á laugardögum göngum við spennandi lengri leiðir. Þetta er verkefni sem hentar flestum. Við munum bjóða upp á Sushi-veislu á fjalli en einnig kleinur og heitt kakó!

Allar göngur hefjast kl. 18:00 nema laugardagsgöngur sem hefjast að morgni til eftir birtustigi.
Fararstjórar fremst og aftast í öllum göngum.
Allir þátttakendur fá Fjallavina höfuðklút. Þá munum við vera með happdrætti þar sem dregið verður um veglega konfektkassa fyrir jólin, súkkulaðirúsínuglaðninga og eins munum við veita verðlaun fyrir þann sem mætir í flestar göngurnar.

Áskiljum okkur rétt til breytinga á ferðum vegna veðurs og aðstæðna.
Verð í verkefnið er 37.000,- kr. Staðfestingargjald er kr. 17.000

Fimmtud 16. sept Steinn
Laugard 18. sept Skálatindur
Fimmtud 23. sept Steinn eða stígakerfi
Laugard 25. sept Þverfellshorn, Kambshorn og Bjarnastígur að Steini
Þriðjud 28. sept Sandhryggur, hringleið, kleinur og kakó
Fimmtud 30. sept Steinn eða stígakerfi, sund og gufa
Laugard 2. okt Kistufell, fallegasti útsýnisstaður Esjunnar – Sushi!
Þriðjud 5. okt Kvensöðlar
Fimmtud 7. okt Steinn eða stígakerfi
Fimmtud 14. okt Steinn eða stígakerfi
Þriðjud 19. okt Karl, hringleið að Míganda, kleinur og kakó
Fimmtud 21. okt Steinn eða stígakerfi,
Laugard 23. okt Móskarðahnúkar, Laufskörð, hringleið
Fimmtud 28. okt Steinn eða stígakerfi,
Þriðjud 2. nóv Sandhóll, Fálkaklettur
Fimmtud 4. nóv Steinn eða stígakerfi
Laugard 6. nóv Tröllafoss, Þríhnúkar
Fimmtud 11. nóv Steinn
Þriðjud 16. nóv Norski hringurinn að Kollafjarðará, kleinur og kakó
Fimmtud 18. nóv Steinn
Skráning er hafin á thordur@fjallavinir.is

Staðfestingargjald: 17.000,-kr greiðist við skráningu, eða viku síðar.
Verkefnið fullgreidd fyrir: 6. September 2021.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina,
0111-26-501696 og kt. 531184-0849

Lýsing

Start:
september 16, 2021 kl.08:00
End:
nóvember 18, 2021 kl.17:00
Kostnaður:
Frítt
Göngu flokkur:
Göngu tag:

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is