Loading Göngur

« Allar Göngur

  • This event has passed.

Leggjabrjótur – Kvöldganga – Sumarsólstöður

júní 22, 2021 kl.17:00 - 23:59

Frítt

kvöldganga ( þriðjudagskvöld) – Sumarsólstöður,  hressing í lok göngu!

 

Leggjabrjótur er forn þjóðleið sem liggur milli Þingvalla og Hvalfjarðar um skarð sem liggur milli Botnsúlna og Búrfells. Gangan er rúmlega 16 km löng, aflíðandi hækkun um 350 m fyrstu 8 km en síðan tekur við lækkun niður í 50 m niður í Botnsdal. Reikna má með að hún taki rúmar 6 klst í heildina. Þetta er ekki erfið ganga. Leiðin liggur um afskaplega fallega forna varðaða þjóðleið þar sem fara þarf yfir vöð nokkrum sinnum, en við munum staldra við á áhugaverðum og undurfallegum stöðum á leið okkar. Við mælum með vaðskóm sem eru nauðsynlegir og léttu handklæði, (laxapokar duga í sumum tilfellum) nú eða vel vatnsheldum skóm, en sumstaðar má stikla yfir á steinum en það fer allt eftir árferði. Útsýnið er afskaplega fallegt og víða vert að staldra við og njóta, en ekki þjóta.

Allir þátttakendur í göngunni fara sjálfkrafa í pott og munum við draga út heppna þátttakendur sem hreppa veglega vinninga. Fyrsti vinningur er glæsilegur grillpakki frá Réttinum að verðmæti 28.000,-króna. Fleiri vinningar verða einnig dregnir út fyrir heppna þáttakendur. Við munum  svo fagna göngulokum með ykkur, skála fyrir göngu dagsins og bjóða léttan drykk inni í Botnsdal.

 

Hæð: 490

Gönguvegalengd: 16 km  – 18 km 

Göngutími: 6/7 klst 

Gönguhækkun: 350 m

Brottför: 17:00 frá bílastæðinu undir Helgafelli við Þingvallaveg

 

Erfiðleikastig: 2  (hér viljum við tákn t.d. skó )

Verð: 10.500,-kr með rútu

Staðfestingargjald: 5.000,-kr

Ferð fullgreidd fyrir: 30.maí 2021

kt. 531184-0849
0111-26-501696

Lýsing

Dagsetning:
júní 22, 2021
Tímasetning:
17:00 - 23:59
Kostnaður:
Frítt
Göngu flokkur:
Göngu tag:

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is