Loading Göngur

« Allar Göngur

  • This event has passed.

Námskeið í vetrarfjallamennsku

febrúar 5, 2022

Frítt

Laugardaginn 5.febrúar  munu Fjallavinir standa fyrir námskeiði í vetrarfjallamennsku. Þetta námskeið er hugsað fyrir fjallgöngufólk sem vill bæta þekkingu sína og verða öruggari með notkun á þessum búnaði. Þeir sem huga að göngu á jökla ættu sérstaklega að tryggja sér sæti. Þetta er bæði fróðlegt og skemmtilegt námskeið en fyrst og fremst afar gagnlegt.

Farið verður yfir:

  • Tilheyrandi jöklabúnað, axir og brodda, og hvenær viðeigandi er að nota þennan búnað.
  • Broddanotkun, muninn á Esju-broddum og jöklabroddum og hvernig maður beitir þeim.
  • Verklega göngutækni í snjó, hjarni og ís.
  • Notkun á ísexi þar sem við æfum ísaxarbremsu í mismunandi stellingum og hvernig skal beita henni í mismunandi aðstæðum.
  • Leiðarval
  • Fjallað um snjóflóð og hvernig hægt er að forðast þau, og eins þörfina á því að afla sér þekkingar á snjóflóðafræðum ef ætlunin er að ferðast í þannig landslagi.
  • Rætt um ferðahegðun og ákvarðanatöku, “BUDDY” kerfi og veðurþáttinn.

Greiðslu skal leggja inn á reikning Fjallavina 0111-26-501696 og kt 531184-0849.
Verð fyrir þetta námskeið er 15.000,-kr. Fjöldi takmarkast við 20 manns

 

Lýsing

Dagsetning:
febrúar 5, 2022
Kostnaður:
Frítt
Göngu flokkur:
Göngu tag:
,

Skipuleggjandi