Hér er um ævintýraland að ræða fyrir göngufólk sem vill ganga á nýjar slóðir utan alfaraleiðar. Hér ríkir kyrrð og ró. Það sem er innifalið í verðinu sem er 107.000,00,- krónur er; Sigling frá Norðurfirði yfir í Reykjarfjörð, gisting á Gistiheimilinu í Reykjarfirði, kvöldmáltíð alla daga, gönguferðir í Reykjarfirði, sigling yfir í Norðurfjörð, gisting í Bergistanga og súpa á Kaffi Norðurfirði, gönguferð að Rjúkanda. Matseðill birtis í júlí, en reikna má með súpu, fiskibollum, lambi á grillið. Fólk sér að öðru leiti um allan anna mat sjálfat, bæði morgunmat og allt nesti. Ferðalangar koma á eigin bílum í Norðurfjörð. Eftir aðstæðum munum við bregða á leik utandyra, svo sem með jóga og öndunaræfingum og öðru dekri líkt og meðfylgjandi myndir sýna. Slökun í heitri lauginni alla daga.
Fyrirhugað ferðaplan.
18.júlí fimmtudagur. Siglt inn í Reykjarfjörð frá Norðurfirði snemma morguns. Dagurinn tekinn rólega, jóga og sund. Hægt að kaupa sögustund hjá heimamönnum fyrir 1500,- krónur. Súpa.
19.júlí föstudagur. Gengið á Geirólfsnúp sem er á milli Reykjarfjarðar og Skjaldbjarnarvíkur. Vaða þarf ósana á leiðinni. Reikna má með uþb 13 km göngu og 6-7 klst. Eftir göngu skellum við okkur í sund í lauginni í Reykjarfirði. Fiskibollur.
20.júlí laugardagur. Gengið um Þaralátursnes sem er létt 10 km löng hringleið. Jóga, slökun og sund. Hægt verður að kaupa sögustund hjá heimamannni fyrir kr. 1500,- krónur. Lambalæri af grillinu.
21.júlí sunnudagur. Slökun, sund og jóga fyrri hluta dags. Hægt verður að kaupa sögustund hjá heimamannni fyrir 1.500,-kr. Siglt yfir í Norðurfjörð. Gist í Bergistanga og súpa í Kaffi Norðurfirði.
Athugið, að við áskiljum okkur rétt til breytinga vegna aðstæða.
Verð: 107.000,00-kr
Staðfestingargjald: 37.000,-krónur sem skal greiða viku eftir bókun.
Ferð fullgreidd fyrir: 1.júní 2024
kt: 531184-0849
0111-26-501696
Sjá skilmála hér