Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Snæfellsjökull

mars 25, 2023

Frítt

Snæfellsjökull 1446 m.

mars 25 kl.07:00 – 19:00

Hægt er að gista á Arnarstapa  og njóta góðra veitinga og lúxus gistingar dagana 24.-25. Mars.

Tilboð fyrir þáttakendur:

Gisting í 2 manna herbergi með morgunverði í tvær nætur 50.000.00 kr.

Eins manns herbergi á kr.  21.000,00kr

Þriggja rétta Kvöldverður er á 8.900,00kr per mann, nesti kr.2.900,00 kr per mann

Bókanir fyrir gistingu skal senda á  booking@arnarstapicenter.is og taka þarf fram að þið séuð í hóp með Fjallavinum.

Hægt er að skoða nánar um gistinguna á  www.arnarstapicenter.is

 

Snæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er.

 

Sérstakur jöklabúnaður.

Í þessa göngu þarf sérstakan jöklabúnað sem samanstendur af; ísöxi, klifurbelti með CE merktri karabínu og jökla-broddum. Margir eiga nú þegar þennan búnað en hann er einnig hægt að leigja t.d. hjá Fjallakofanum og víðar. Á þessum tíma eru fjölmargir að ganga á jökla og því getur verið mikil ásókn í þennan búnað svo kannið þetta strax og pantið. Allar helstu útivistarverslanir leigja þennan búnað, og verðið er misjafnt. Ef fólk hyggur á margar jöklagöngur þá borgar sig að eiga þennan útbúnað. Kannið þetta bara.

 

Hæð: 1446 m

Gönguvegalengd: 11-15 km eftir aðstæðum

Göngutími: 6-8 klst

Gönguhækkun: 1200 m

Sérstakur útbúnaður: Jöklabúnaður; ísöxi, klifurbelti með CE merktri karabínu og jöklabroddar. Þennan búnað er hægt að leigja hjá helstu útivistarverslunum.

 

Brottför: Lagt af stað frá Grjóthálsi kl. 07:00 eða fyrr. Aksturinn eru um 200 km og  tekur um 3 klst. Með því að sameinast í bíla er hægt að deila bensínkostnaði.

Breytingar vegna aðstæðna og veðurs: Við munum fyrst og fremst horfa til veðurs og aðstæðna á svæðinu, en ganga á Hrútfjallstinda kallar á góðar aðstæður. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar og hnika ferðinni í samræmi við það til að göngufólk fái sem mest út úr göngunni. Sunnudagur er því alltaf varadagur og mikilvægt að göngufólk geri ráðstafanir vegna þess.

 

Erfiðleikastig: 3 skór

Verð: 17.900,- kr

Staðfestingargjald: 7.900,- kr

Ferð fullgreidd fyrir: 1.mars 2023

kt: 531184-0849
0111-26-501696

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér.

 

Þegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt, býðst þátttakendum að taka æfingagöngur með okkur alla fimmtudaga að Steini frá  2.febrúar og fram til 30.mars. Einnig býðst þeim að ganga með  Fjallavinum á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars.

 

 

Klæðnaður – alls engar bómullarflíkur !

Innst klæða.  Ullarnærbolur, helst síðerma og síðar ullarnærbuxur.  Til eru sérstakar “boxer” ullarnærbuxur og ullartoppar sem mörgum þykir gott að klæðast á löngum göngum. Góðir og hlýir göngusokkar mikilvægir.

Millilag.  Göngubuxur eða flísbuxur, gott ef þær eru styttanlegar. Flís peysa eða ullarpeysa, primaloft jakki eða dúnjakki.

Ysta lag.  Vatns- og vindheldur klæðnaður með öndun, bæði buxur og jakki.

 

Annar mikilvægur klæðnaður.

Húfa, höfuðklútar, auka vettlingar, einnig er gott að klæðast þunnum flís/silki fingravettlingum innanundir, vatnsheldir vettlingar, háar legghlífar og auðvitað góðir gönguskór (ath að yfirfara reimar). Aukasokka í bakpokanum. Gott að bera vel á skóna og vatnsverja þá fyrir ferðina. Aukafatnaður s.s. primaloft eða góð dúnúlpa til að skella yfir sig í stoppum og á toppnum.

 

Annar búnaður.

  • Myndavél
  • Skíðagleraugu eða öflug sólgleraugu
  • Göngustafir, stillanlegir
  • Sessa
  • Sólarvörn og það þarf öfluga vörn
  • Sólarvarasalvi er mikilvægur (margir brenna illilega á vörum á jöklum)
  • Sjúkravörur s.s. íbúfen, panodil, hælsærisplástrar, blöðruplástrar, plástrar, þrúgursykurtöflur
  • Asmalyf mikilvæg fyrir þá sem þurfa
  • Omnitape (íþróttateip 4-5 cm á breidd) Vinir geta deilt rúllu.

 

Góður bakpoki er nauðsynlegur í svona dagsferð og þarf hann að vera 30-45 ltr. Hann þarf að sitja vel á mjöðmunum og vera með góðar breiðar axlarólar. Í hann þarf að  komast allur aukabúnaður, auk nestis og nauðsynjavara, en eins þarf að vera hægt að festa á hann ísöxi og brodda. Skipuleggið þetta vel og tímanlega.

Við mælum með góðum morgunverði áður en lagt er af stað, en við munum gera stutt stopp í Olís í Borgarnesi á leið okkar. Þessi ganga kallar eðlilega á gott nesti og töluvert magn af vökva. Við mælum með t.d. 1-2 matarmiklum samlokum, sviðasultusneið, ca 2 flatkökur með hangikjöti eða kæfu, eða sambærilegu  og að sjálfsögðu  eftir ykkar þörf.

Þá er mikilvægt  að hafa með orkuríkt narsl (hnetur, möndlur, rúsínur, súkkulaði) sem er aðgengilegt að grípa í á göngu á leiðinni. Drykki að lágmarki 1,5 ltr og eitthvað heitt á brúsa. Orkudrykkir eru góðir eftir margra tíma göngu og ágætt að eiga þá til vara. Eins er gott að hafa þrúgursykurtöflur í bakpokanum í neyðartilfellum.

 

Details

Date:
mars 25, 2023
Cost:
Frítt
Event Category:
Event Tags:

Skipuleggjandi

Þórður Ingi Marelsson
Símanúmer:
8987350
Netfang:
thordur@fjallavinir.is