Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fjöllin okkar 2022

janúar 22, 2022 - júní 25, 2022

Free

Fjöll og félagsskapur

Heilsuefling á fjöllum hefst þann 22.janúar 2022 og stendur til 25. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn.

Gengið verður alla fimmtudaga kl 18:00 upp að Steini frá 3.febrúar og fram til 31.mars. Einnig förum við á Helgafell í Hafnarfirði alla mánudaga í mars og fram til 11.apríl.  Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Farið verður með rútu bæði að Kattartjarnarleið og Löðmund og greitt er sérstaklega fyrir það þegar að því kemur. Þeir sem vilja geta gist i Eyjum, annars er ferjan tekin til baka. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir rútuferðir, ferju og gistingu.

Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap.

Allir sem  skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi.

Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir Scarpa Mojito gönguskó frá Fjallakofanum. Einnig drögum við út heppinn þátttakanda sem fær glæsilegan grillpakka frá Réttinum að verðmæti 28.000,-kr. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.

Verð verkefnis er 63.000,-kr. Staðfestingargjald er 27.000,-kr.

Ganga þarf frá greiðslu eigi síðar en 10.janúar en semja má um greiðslufyrirkomulag.

Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849

22. jan.    Mosfell
29.  jan.   Helgafell Hafnarfirði
12. feb.    Arnarfell og Miðfell
19. feb.    Grímannsfell
26. feb.    Hafnarfjall
12. mars  Brekkukambur – Guðlaug eftir göngu
19. mars  Hvalfellshringur
2.  apríl    Þríhyrningur
16. apríl   Blikdalshringur  A / Blikdalurinn B
23. apríl   Kattartjarnaleið
7.  maí     Ármannsfell
14. maí    Kvígindisfell
21. maí    Vestmannaeyjar – gengið á helstu tindana
4.  júní     Prestahnjúkur
25. júní    Löðmundur

Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér

Details

Start:
janúar 22, 2022
End:
júní 25, 2022
Cost:
Free
Event Category:
Event Tags:
, ,

Organizer

Þórður Ingi Marelsson
Phone
8987350
Email
thordur@fjallavinir.is

Venue

Esjan
Rétt hjá moso
Mosó, Gullbringusýsla Iceland
+ Google Map