Heilsuefling á fjöllum hefst þann 28.janúar 2023 og stendur til 24. júní. Þetta er verkefni fyrir þá sem vilja njóta útiveru og heilsueflingar í góðum félagsskap. Mikið innihald og stútfullt af góðum göngum!
Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur upp í meiri hæð og lengd fram á sumar. Fararstjórar fremst og aftast sem halda utan um hópinn.
Gengið verður á hin ýmsu fjöll. Einnig verða æfingagöngur alla fimmtudaga frá 2.feb-30.mars upp að Steini og á mánudögum í mars bætast við æfingagöngur á Helgafell í Hafnarfirði.
Fellin tökum við svo í mars á þriðjudögum. Laugardagsgöngur verða samkvæmt dagsetningum hér að neðan. Vegna göngu á Elliðahamar verður gisting á Arnarstapa fyrir þá sem vilja, en greitt er sérstaklega fyrir það. Þá er greitt sérstaklega fyrir rútu þegar gengið verður um Kóngsveg.
Allir sem skrá sig og ganga frá greiðslu fá höfuðklút merktan Fjallavinum og að auki veglegan gjafapakka frá Lýsi.
Í byrjun febrúar munum við svo draga út heppinn þátttakanda sem hneppir gönguskó. Allir fá svo páskaeggja glaðning frá Góu þegar líður að páskum og að venju drögum við út glæsileg páskaegg fyrir göngufólk. Fésbókarsíða verður fyrir hópinn þar sem tjáskipti fara fram.
Verð verkefnis er 71.000,00,-kr. Staðfestingargjald er 31.000,-kr.
Ganga þarf frá greiðslu viku eftir skráningu eða eigi síðar en 6.janúar. Semja má um greiðslufyrirkomulag.
Greiðsla leggist inn á reikning 0111-26-501696 á kt 531184-0849
28.jan laugardagur Helgafell Hafnarfirði
2.feb fimmtudagur Esja að Steini
9.feb fimmtudagur Esja að Steini
11.feb laugardagur Hafrahlíð – Reykjaborg- Þverfell
16.feb fimmtudagur Esja að Steini
18.feb laugardagur Skálafell Hellsiheiði
23.feb fimmtudagur Esja að Steini
25.feb laugardagur Akrafjall
2.mars fimmtudagur Esja að Steini
6.mars mánudagur Helgafell Hafnarfirði
7.mars þriðjudagur Reykjafell
9.mars fimmtud Esja að Steini
11.mars laugardagur Dalfell
13.mars mánudagur Helgafell Hafnarfirði
14.mars þriðjudagur Húsfell
16.mars fimmtudagur Esja að Steini
18.mars laugardagur Blákollur
20.mars mánudagur Helgafell Hafnarfirði
21.mars þriðjudagur Grímannsfell
23.mars fimmtudagur Esja að Steini
27.mars mánudagur Helgafell Hafnarfirði
28.mars þriðjudagur Vífilsfell
30.mars fimmtudagur Esja að Steini
1.apríl laugardagur Kóngsvegur
15.apríl laugardagur Reynivallaháls
22.apríl laugardagur Hróarstindur
6.maí laugardagur Laugarvatnsfjall
13.maí laugardagur Kvígindisfell
20.maí laugardagur Elliðahamar
3.júní laugardagur Hrútaborgir og Kolbeinstaðafjall
24.júní laugardagur Hvalfell
Skilmálar vegna greiðslu fyrir göngur má hér