Views Navigation

Göngu Views Navigation

Today
  • Fjöllin okkar 2021

    Heilsuefling á fjöllum hefst þann 23.janúar 2021 og stendur til 26. júní. Við hefjum verkefnið á lægri og léttari göngum og tröppum okkur rólega upp í meiri hæð og lengd...

    Gjaldfrjálst
  • Snæfellsjökull 1446 m

    Snæfellsjökullinn er 1446 m hár. Ganga á jökulinn er frekar létt jöklaganga og við hæfi allara sem eru í almennt góðu gönguformi.  Gönguhækkun fer eftir aðstæðum og eftir því hversu greiðfært er upp Kýrskarðið en stundum hefst gangan við Sönghellinn í tæplega 200 m hæð og þannig gæti gönguhækkun orðið um 1200 m. Gangan gæti tekið  6-8 klst, jafnvel meira og þannig 11-15 km löng. Þegar komið er upp á jökulröndina fer fólk í beltin,  línur verða settar upp og þannig gengur fólk sem einn maður í línu alla leið upp undir stjórn línustjóra. Við munum halda hópnum eins þéttum og hægt er.

    Gjaldfrjálst
  • Hvannadalshnúkur 2110 m

    Ganga á Hvannadalshnúk er einstök upplifun í alla staði og hæsta markmið okkar hérlendis enda hæsti tindur Íslands!    Ferðatilhögun fyrir Hvannadalshnúk. Við munum hefja gönguna á tímabilinu 02:00-05:00 aðfararnótt laugardagsins 03.júní. Þetta ræðst...

    Gjaldfrjálst
  • Hrútfjallstindar 1756 m

    Hér er um langa og krefjandi göngu að ræða en jafnframt eina af mögnuðustu gönguleiðum landsins, þar sem stórbrotið landslagið er allt um kring og ótrúlegt útsýni í allar áttir með Svínafellsjökull á hægri hönd og Skaftafellsjökull á vinstri hönd. Hvannadalshnúkur blasir svo við í suðu-austurátt, tignarlegur að sjá frá þessu ótrúlega sjónarhorni og eins má sjá í góðu skyggni vel yfir Grímsvötn og Esjufjöll!

    Gjaldfrjálst
  • Birnudalstindur 1326 m

    Birnudalstindur er 1326 m hár, glæsilegur tindur í Kálfafellsfjöllum í Suðursveit, leiðin um þessa fjallasali er sannarlega stórkostleg og gleymist seint. Tindurinn er sunnan við jökuljaðarinn og austan Kálfafellsdals. Gönguleiðin...

    Gjaldfrjálst
  • Fimmvörðuháls

    Leiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls, yfir í Goðaland til Þórsmerkur. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu og mögnuðustu gönguleið á Íslandi en e.t.v....

    Gjaldfrjálst